Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 123

Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 123
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 123 H eimkoma fjár mála­ manns vekur athygli. Það eru þrátt fyrir allt gjald eyrishöft og mikið óunnið enn við að koma fjármálakerfi land s ins á réttan kjöl eftir banka hrunið 2008. Heiðar skýrir heim komuna svo: „Sem Íslendingur treysti ég mér til að fjárfesta á Íslandi. Ég tel að alþjóðlegir aðilar þori það ekki en málið horfir öðruvísi við mér enda ætla ég mér að búa í landinu,“ segir hann. Heiðar hefur verið í fréttum fyrir að bjóða með öðrum í stór an hluta HS­veitna og hann hefur skrifað óvenjulega bók um tækifærin á Íslandi. Hann lítur á legu landsins sem kost og ekki galla. Bókina kallar hann Norður ­ slóðasókn – Ísland og tæki færin. Hún kom út í sept em ber og hef ur þegar selst í yfir þúsund eintökum. Yfirleitt standa fjár ­ mála menn, ekki komnir á miðjan aldur, ekki í bókar skrifum. Heiðar fæddist árið 1972. Gríðarlegar auðlindir Heiðar nefnir nokkrar stað reynd ­ ir sem gera það vert að horfa til norðurs: Norður heim skautið, svæðið norðan heim skautsbaugs, nær yfir 15% af landsvæði jarðar. Þar eru 25% af öllum kolvetn um, olíu og gasi. Stórar námur með frum efnum eru þar með járni, gulli og dem öntum. Einnig mestu vatnsbirgðir jarðar. Íbúar svæðis ­ ins eru hins vegar innan við fjórar milljónir og innviðir, svo sem hafnir, flugvellir og rafkerfi, mjög veikburða. „Aukin fólskfjölgun ýtir mann ­ kyninu nú til þess að nýta þessar auðlindir. Tæknibreytingar hafa síðan orðið þess valdandi að auð lindirnar hafa aldrei verið að ­ gengilegri en nú,“ segir Heiðar. „Ég segi að mikil líkindi séu með sókninni á norðurslóðir nú og þegar forfeður okkar numu land hér og á Grænlandi fyrir 1.200 árum. Tæknibreytingar gera það að verkum að fólks ­ fjölg un er mikil og menn þurfa að finna nýjar auðlindir. Fyrir þúsund árum var það land bún­ aðar byltingin sem loksins barst til Norðurlanda, og Noregs sér staklega þar sem einungis 3% lands eru nýtanleg til ræktunar, sem jók mjög fólksfjölda og kröfu um að ný landsvæði væru num in. Á þeim tíma varð Ísland miðstöð þjónustu á norður ­ heim skautinu,“ segir Heiðar um fram tíðarsýnina sem hann birtir í bók sinni. Nágranninn í vestri Heiðar telur einnig að lega lands ­ ins sé illa nýtt auðlind: „Hnatt ­ ræn staða Íslands er sú sama á Atlantshafi og Anchorage í Alaska er í Kyrrahafi. Flugvöll urinn í Alaska er einn af fimm stærstu flugvöllum heims í frakt flugi. Ice landair hefur þegar byggt upp þjónustu í kringum far þega flutn ­ inga en tækifærin eru enn meiri,“ segir Heiðar. Hann bendir einnig á að á Græn landi var samþykkt 24. október sl. að opna tvær námur á suð vesturhorninu: „Umsvifin í kringum námurnar verða meiri en þreföld landsframleiðsla Græn lands og ljóst að engin höfn eða flugvöllur liggur betur við að þjónusta það svæði en á Íslandi. Framkvæmdirnar nema um 600 milljörðum króna og um það bil 4.000 manns þarf að flytja til Grænlands til að vinna við uppbygginguna. Það kallar á flutn inga og þjónustu sem best er sinnt frá Íslandi. Tilraunaboranir eftir olíu munu einnig hefjast við Austur­Grænland á næstu fjórum árum,“ segir Heiðar. „Þarna eru miklir mögu leikar fyrir þjónustu­ og verktakaf yrir ­ tæki á Íslandi og þetta er ekki ein hver óljós framtíðarmúsík heldur verkefni sem þegar blasa við,“ segir hann ennfremur. „Til að nýta þessa möguleika skiptir miklu að markaðssetja landið og legu þess. Mikið af inn viðunum er þegar til. Sunda ­ höfn er í dag mikilvægasta Heiðar Guðjónsson hefur starfað á alþjóðlegum fjármálamarkaði í 17 ár. Hann flytur til Ís lands eftir að hafa starfað lengst af í New York, London og Zürich. Hann segir tækifærin á Íslandi vera öfundsverð næstu áratugi og að lífsgæðin geti hæglega komist á það stig sem best gerist alþjóðlega. tæKifærin á Heiðar Guðjónsson fjárfestir: norðurslóð TexTi: gíSli kriSTJánSSon / Myndir: geir ÓlafSSon og Úr Safni
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.