Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2013, Page 115

Frjáls verslun - 01.11.2013, Page 115
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 115 nálg un á leiðtogahlutverkið á þeim veruleika sem leiðtogar búa við í dag en ekki um miðbik síðustu aldar þegar margar stjórn unarkenningar voru settar fram og víst er að margt er sett fram í bókinni á hagnýtari hátt en oft áður og ljóst að höfundur nýtir sér reynslu sína og bak ­ gr unn í skrifum sínum. Höfund­ ur legg ur mikið upp úr því að „þýða“ kenningar yfir á manna ­ mál og setur fram sínar reglur og lögmál byggt á fræðilegum kenn ingum. Dæmi um það eru fimm lögmál forystuúlfsins sem eru samskipti, ástríða, misskilning­ urinn um að vita svörin við öllu, mikilvægasta eign fyrirtækis ins er starfsfólkið og valdtraust. Höfundur byggir nálgunina á leiðtogahlutverkið á þeim veruleika sem leiðtogar búa við í dag en ekki um miðbik síðustu aldar. Leadership Conversations: Munurinn á leið­ toga og stjórn­ anda Í gegnum tíðina hefur mikið verið rætt og ritað um muninn á leið­ toga og stjórnanda. Sú umræða er yrkisefni bókarinnar Leader- ship Conversations eftir Berson og Stieglitz. Höfundar bókarinnar halda því fram að í viðskiptaum­ hverfi dagsins í dag geti leið­ togar/stjórnendur ekki leyft sér þann lúxus að vera annað hvort. Stjórnandinn þarf að tileinka sér hæfni leiðtogans og öfugt til að ná hámarksárangri sem kallar á hæfnina til að vega og meta hvenær hvort hlutverk um sig á við og hvenær á að setja á sig hatt leiðtogans og hvenær hatt stjórnandans. Sama hver staða þín er innan fyrirtækisins; þú ert í senn leiðtogi og stjórnandi, og þarft að læra að blanda þessum tveimur hliðum á peningnum saman með áhrifaríkum hætti. Þeim hætti sem hvetur hámarks­ vöxt og árangur starfsmanna þinna. Í bókinni eru settar fram spurningar sem krefja lesand­ ann til að skoða hvernig hann eða hún leiðir hópinn sinn í dag, skora á lesandann að marka sér sýn um hvernig hann mun stjórna og leiða í framtíðinni og hvetja hann til að aðstoða aðra til að gera slíkt hið sama. Spurn­ ingarnar sem höfundar varpa fram í bókinni eru einfaldar en um leið soðnar niður í það sem skiptir meginmáli. Sá stjórn­ andi sem les bókina og svarar spurningum höfunda mun átta sig betur á sinni stöðu, veikleik ­ um sínum og styrkleikum. Hvar hann þarf að spýta í og hvar hann þarf að slaka á klónni. Höfundar bókarinnar halda því fram að í viðskiptaumh­ verfi nútímans geti leiðtogar og stjórnendur ekki leyft sér þann lúxus að vera annað hvort. True North: vertu þú sjálf(ur) Í bókinni True North eftir Bill Ge orge er kastljósinu beint að mikilvægi þess fyrir stjórnand­ ann að þekkja sjálfan sig til að hann geti komið fyrir sem ósvikinn leiðtogi og þannig náð enn meiri árangri en ella. Leiðtogar þurfa oftar en ekki að taka fjölda afdrifaríkra ákvarð ­ ana á hverjum degi í sín um störfum. Þær ákvarðanir geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir þá sjálfa og alla hagsmunaaðila, starfsmenn, við skiptavini, hluthafa og svo mætti lengi telja. Sá leiðtogi sem stendur föstum fótum á jörðinni, þekkir gildi sín og lífsreglur, veit hvað hvetur hann áfram, byggir upp fólkið í kringum sig og nær jafnvægi á öllum sviðum lífs síns er sannur leiðtogi og trúverðugur sem slíkur. Þess vegna fylgir fólk honum fúslega í átt að sameigin­ legri sýn, þrátt fyrir erfiðar og stundum óvinsælar ákvarðanir, en ekki af því að það á að gera það. Slíkur leiðtogi nær meiri árangri en hinir „hefðbundnu“ leið togar sem krefjast fylgis í skjóli stöðu sinnar og setja eigin hag framar hag heildarinnar. Bókin hjálpar lesand­ anum að styrkja stoðir sínar svo hann geti staðið styrkari í ólgusjó hins dag lega amsturs. True North leggur höfundur áherslu á að stjórnandinn þekki sjálfan sig til að hann geti komið fyrir sem ósvik­ inn leiðtogi og þannig náð enn meiri árangri en ella. Lean in: Konur – Látið vaða! Í kvennablaðinu var fjallað um þá bók sem hefur fengið eina mestu umfjöllun frá útgáfu af öll ­ um þeim sem komu út á þessu ári. Það er bók Cheryl Sand­ berg, framkvæmdastjóra rekstrar hjá Facebook, Lean In. Sand­ berg fjallar þar um þau skref sem konur þurfa að stíga til að raunverulegt jafnrétti náist. Bókin hefur notið fádæma vinsælda og á haustdögum kom hún út í íslenskri þýðingu. Bókin á rætur að rekja til erindis Sandberg á Ted.com þar sem hún gefur konum ráð um hvað þær þurfa að gera til að marka dýpri spor á vinnumarkaði. Ráðin sem hún gefur eru í raun lexíur sem hún hefur lært á sínum farsæla ferli sem stjórnandi en í bókinni segir hún ófáar sögur af sigrum og mistökum sínum og annarra. Þótt megininntak bókarinnar sé það sama og í erindinu á TED er farið mun dýpra í efnið í bókinni og fleiri efnisþættir teknir með í reikninginn. „Hvað myndir þú gera ef þú værir óhrædd“ er grundvallarspurningin sem Sheryl vill spyrja konur til að hvetja þær til að opna augun fyrir því hvers þær eru megnu­ gar ef óttanum er ýtt til hliðar. Hún vill hvetja konur til að beina kastljósinu að því hvað þær geta gert til að breyta stöðu sinni í stað þess að einblína á það sem þær geta ekki. Megintilgangur bókarinnar er að hvetja konur til þess að láta vaða þegar til áhrifa kemur á hverju því sviði sem þær kjósa að láta til sín taka á og ef þær vilja á annað borð láta að sér kveða. Þetta er bók sem allar konur í atvinnulífinu þurfa að lesa – og karlar líka! Bill Ge orge höfundur true North.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.