Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.05.2010, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 27.05.2010, Blaðsíða 2
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 21. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR2 REYKJANESBÆR Brekkustígur 40, Njarðvík Um er að ræða iðnaðar eða verslunar- húsnæði á góðum stað í Reykjanesbæ, möguleiki er að skipta húsnæðinu upp í tvær einingar. Nánari upplýsingar á skrifstofu Fífumói 5b, Njarðvík Um er að ræða skemtilega skipulagða íbúð á 2 hæð í fjölbýlishúsi. Íbúðin er laus strax. Leiguverð 75.000 per mánuð. Nánari upplýsingar á skrifstofu Heiðarhvammur 8, íbúð 302 Um er að ræða 2 herbergja íbúð á annari hæð í fjölbýlishúsi. Eignin er laus strax. Leiguverð 60.000 per mánuð. Nánari upplýsingar á skrifstofu. Túngata 12, Keflavík Um er að ræða studío íbúð á jarðhæð í 4 íbúða húsi ágóðum stað í miðbæ Keflavíkur, Íbúðin var tekin í geng fyrir ca 2 árum síðan, ath er skráð sem verslun- narpláss (fást ekki húsaleigubætur) Flott íbúð tilvalin fyrir einstakling. Leiguverð 57.000 per mánuð. Óðinsvellir 13, Keflavík Glæsilegt 4 herbergja, einbýlishús á tveimur hæðum á mjög góðum stað í Keflavík. s. 899 0555 - julli@es.is - Hafnargata 91 Framnesvegur 20-22, Keflavík Um er að ræða rúmgóða tveggja her- bergja íbúð á 6 hæð í fjölbýlishúsi ásamt geymslu og bílastæði í bílastæðahúsi. Lifta er í húsinu. íbúðin skiptist í hol, baðherbergi, svefnherbergi, þvottahús og eldhús, stofu. Leiguverð 85.000 Allar nánari upplýsingar á skrifstofu. Dalsbraut 12, Njarðvík Um er að ræða glæsilegar íbúðir í 10 íbúða húsi.4 herbergja íbúð á efri hæð, 3 herbergja á neðri hæð og tveggja herbergja á neðri hæð. Leiguverð 4 herbergja 95.000 per mánuð, 3 herbergja 85.000 per mánuð og 2 ja herbergja. 75.000 per mánuð. Nánari upplýsingar á skrifstofu. Hafnargata 67, eh., Keflavík Um er að ræða rúmgóða 4 herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi í miðbæ Keflavíkur Reykjanesbæ, Allar innréttingar og gólfefni er gamalt og tekur leiguverð mið af því. Leiguverð 75.000 per mánuð. Íbúðinn getur verið laus fljótlega. Hvalvík 4, Reykjanesbæ. Um er að ræða gott geymsluhúsnæði við Helguvík í Reykjanesbæ. Leiguverð 25.000 per mánuð. Nánari upplýsingar á skrifstofu. Tjarnargata 3, Keflavík Um er að ræða Studío íbúð í miðbæ Keflavíkur. Leiguverð 45.000 per mánuð. Nánari upplýsingar á skrifstofu. Erum með mikið af iðnaðarhúsnæði á skrá frá 25m2 upp í 3.000m2 Árleg úthlutun styrkja úr Manngildissjóði Reykjanesbæjar fór fram í Stapa á þriðj- dag en þar voru afhentir styrkir og gengið frá samningum fyrir samtals 30 milljónir króna. Hlutverk Manngildissjóðs er að veita fjárhags- legan stuðning, styrki og viðurkenningar til verkefna á sviði fræðslu, fjölskyldu- og forvarn- armála, menningar- og lista, umhverfismála, tómstunda- og íþróttamála eða til stuðnings verkefna í þágu mannræktar og aukins mann- gildis í Reykjanesbæ. Undir Manngildissjóð falla m.a.: Íþróttasjóður, Tómstundasjóður, Listaverkasjóður, Menn- ingarsjóður, Þróunarsjóður skóla, Forvarn- arsjóður og Umhverfissjóður. Við athöfnina var jafnframt skrifað undir samninga við menningar-, íþrótta- og tóm- stundafélög. Manngildissjóður var stofnaður árið 2003 og hefur síðan verið stærsti einstaki styrktaraðili manngildisverkefna í Reykjanesbæ og þó víðar væri leitað. Yfirstjórn sjóðsins er í höndum Bæj- arráðs Reykjanesbæjar en úthlutun fjármagns til einstakra verkefna er í höndum viðkomandi fagráða og nefnda á vegum bæjarfélagsins. Að þessu sinni er gengið frá úthlutun að fjárhæð 30 milljónir króna sem skiptist þannig: Til íþróttamála 12 milljónir Þróunarsjóður skóla 5,8 milljónir Menningarsjóður 4,5 milljónir Tómstundasjóður 2,9 milljónir Forvarnarsjóður 3,8 milljónir Umhverfissjóður 1 milljón Alls 76 verkefni fá úthlutun úr sjóðnum að þessu sinni en stjórn sjóðsins mun ákveða frek- ari úthlutun úr sjóðnum í tengslum við endur- skoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010. Stofnfundur atvinnurek-enda á Reykjanesi, SAR, verður haldinn í dag, fimmtu- daginn 27. maí kl.17.30 á Ránni. Hugmyndin að stofn- un samtakanna byggir á því að greiða götu atvinnutæki- færa á svæðinu. „Það hefur lengi verið skortur á talsmanni atvinnurekenda á Reykjanesi. Má leiða að því líkur að þörf á slíkum aðila hafi jafnvel aldrei verið meiri en einmitt nú,“ segir Ríkharð- ur Ibsen einn aðstandenda hins nýja félags. Ríkharður sagði aðstæður á markaði hafa versnað mikið síðan hrunið skall á og at- vinnuleysi á Reykjanesi hef- ur verið það mesta á landinu. Hann sagði nauðsynlegt að markaðurinn á svæðinu eign- aðist sterkan málsvara en um 1.600 fyrirtæki eru skráð á Reykjanesi. „Hlúa þarf að rótgrónum fyr- irtækjum og frjóvga jarðveg- inn þannig að nýir sprotar geti vaxið. Framtíðarsýn byggir á því að uppræta atvinnuleysi á svæðinu – vinna stöðugt að því að koma því niður í ásætt- anlega tölu. Spurningin er sú hversu langan tíma tekur það? Hvað er hægt að gera til að stytta þann tíma,“ sagði Rík- harður. Ríkharður sagði að meðal þess sem ný samtök myndu vinna að væri að aðstoða mark- aðinn við að sporna gegn atvinnuleysi og vera málsvari fyrirtækja á Reykjanesi í hags- munamálum atvinnulífsins. Þá væri nauðsynlegt að skapa nánari tengsl milli fyrirtækja og fjármálastofnana, lífeyr- issjóða og opinberra aðila. Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi stofnuð í dag Manngildissjóður úthlutar 30 milljónum króna Vilja skapa nýtt afl til að berjast fyrir hagsmunum svæðisins

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.