Víkurfréttir - 27.05.2010, Síða 10
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 21. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR10
www.xdreykjanes.is
Nýtum kosningaréttinn
Við styðjum besta flokkinn
í Reykjanesbæ
Setjum x við D
xdreykjanes.is
xdreykjanes.is
Vaka
Sigfús Jóhann
Katla
Teitur
Bryndís
Árni Þór
BirnaMaría Ben
Sigtryggur
Björgvin Ívar
Ellen Agata
Fannar Óli- Hverju hafið þið sjálfstæð-
ismenn mest áorkað á kjör-
tímabilinu?
„Við höfum lagt gríðarlega
áherslu á að bæta umhverfi
okkar, bæta fjölskyldumálin.
Ég er mjög stoltur af forvarn-
arverkefninu sem er verið að
vinna fyrir yngstu aldurshóp-
ana og svo auðvitað höfum við
lagt sterkan grunn að atvinnu-
verkefnum sem menn þekkja
hér. Það er ekki bara álver,
sem mest hefur verið talað um
í fjölmiðlum, við erum líka
að tala um kísilver, gagnaver,
heilsusjúkrahús á Ásbrú.
-Eitt af þeim málum sem
meirihlutinn er gagnrýndur
fyrir eru fjármálin, erfið staða
og hallarekstur bæjarsjóðs.
Hverju svarar þú því?
„Mér þótti merkilegt að Guð-
brandur Einarsson, oddviti A-
listans, sagði í bæjarstjórn að
hann væri ekki að gagnrýna
stjórnun fjármála fyrir bruðl.
Hann var óánægður með áætl-
anagerð hjá okkur og það get-
ur vel verið að við getum bætt
hana. Það er nefnilega ekkert
bruðl hjá okkur. Þegar menn
skoða launatölur sveitarfélags-
ins, greiðslur sem við greiðum
okkar starfsfólki, fjölda starfs-
manna í samanburði við önn-
ur sveitarfélög á hvern íbúa þá
erum við með lægstu tölurnar.
Þannig að sveitarfélagið okkar
er rekið mjög hagkvæmt. Hins
vegar erum við í þessari upp-
byggingu, við erum að byggja
upp atvinnulífið, við erum í
Helguvík, við erum í þessum
stóru framkvæmdum. Það er
auðvitað það sem kostar en
það mun líka gefa af sér veru-
legar tekjur“.
-Þær breytingar sem urðu
á rekstri Hitaveitunnar er
mörgum áhyggjuefni. Hvert
er þitt svar við því?
„Ég finn að þær áhyggjur sem
fólk hefur eru líka vegna þess
að það hefur verið erfitt fyrir
okkur að koma upplýsingum á
framfæri. Það er eins og sumir
VÍKURFRÉTTIR TAKA PÚLSINN Á ODDVITUM FRAMBOÐSLISTANNA
KOSNINGAR Í REYKJANESBÆ Sjáið einnig viðtal íSjónvarpi VF á vf.is
Árni Sigfússon, oddviti Sjálstæðisflokks í Reykjanesbæ:
Sakaður um
bjartsýni
viti ekki að Samfylkingin setti
lög 2008 um uppskiptingu
Hitaveitunnar í virkjanarstarf-
emi og veitustarfsemi. Í virkj-
unarstarfseminni átti að vera
samkeppni og áhætturekstur.
Meira að segja Jóhanna Sig-
urðardóttir segir núna, þegar
verið er að selja hlut Geysis
í HS Orku, að nú vilji ríkið
ekki kaupa af því að þetta er
áhætturekstur. Lífeyrissjóðir
vilja heldur ekki kaupa af því
að þetta er áhætturekstur. Eiga
þá sveitarfélögin kaupa í þess-
um áhætturekstri? Við vorum
síðasta sveitarfélagið sem seldi
sig út úr HS Orku vegna þess
að við vildum fyrst tryggja
að við ættum auðlindina. Við
keyptum auðlindina, landið og
meirihlutann í HS Veitum sem
veitir grunnþjónustu með sölu
á heitu og köldu vatni.“
- Hvað viltu segja um þær
skoðanakannanir sem hafa
sýnt góðu útkomu fyrir þig
og Sjálfstæðisflokkinn. Ertu
bjartsýnn á að halda meiri-
hlutanum?
„Þær eru gott veganesti í kosn-
ingabaráttuna og mér þykir
vænt um að fá þennan stuðn-
ing. Samt er ákveðin undiralda
og mér finnst ég vera að berj-
ast við aðila í öllum flokkum.
Mér finnst ég vera að berjast
við Vinstri græna og hóp í
Samfylkingu. Það eru meira að
segja gamlir forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins sem mér finnst
vera að berja á mér. Þannig að
ég þarf á stuðningi allra að
halda óháð því hvar þeir eru
í pólitík. Já, ég er bjartsýnn á
að halda meirihlutanum. Ég er
alltaf bjarstýnn og hef reyndar
verið sakaður um það.“
Baldur Guðmunds-
son, sem er í bar-
áttusæti D-listans,
ásamt Þorbjörgu
Guðnadóttur konu
sinni á opnun kosn-
ingamiðstöðvar X-D
í byrjun maí.
Fullt var út úr dyrum við opnun kosningamiðstöðvar X-D þann
7. maí. Á myndinni sjást gestir hlusta af áhuga á erindi frá Árna
bæjarstjóra um framtíðarsýn D-listans fyrir Reykjanesbæ á næsta
kjörtímabili.
Haldið var í samstöðuför X-D meðfram strandleiðinni. Hægt var
að ganga, hlaupa eða hjóla en ferðinni var heitið heim til Árna
bæjarstjóra, þar sem hópurinn fékk hressingu að ferð lokinni.
Mikið fjör var á Fjölskylduhátíð X-D á Annan í Hvítasunnu,
sem um 500 manns sóttu.