Víkurfréttir - 27.05.2010, Qupperneq 19
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í ÞRJÁ ÁRATUGI! 19VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 27. MAÍ 2010
hefst kl. 21.30
Léttar veigar í boði
Pub-quiz
Halli Valli & Smári
Ástþór Óðinn
Freyr Sverrisson
28.
maí
Glóðin
föstudaginn
SUMARPARTÝ
Ungra framsóknarmanna
Við viljum sjá þig!
Suðurnesja fyrir góðan árangur
í stærðfræði. Hún fékk verðlaun
frá skólanum fyrir efnafræði,
líffræði, spænsku, íslensku og
eðlis- og jarðfræði. Birna fékk
einnig viðurkenningu fyrir störf
í þágu nemenda og verðlaun
frá Efnafræðafélagi Íslands
fyrir framúrskarandi árangur í
efnafræði. Þá fékk skiptineminn
Narat Suchartsunthorn gjöf til
minningar um veru sína í skól-
anum og á Íslandi.
Að venju veitti Sparisjóðurinn
í Keflavík nemendum skólans
viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur og afhenti Baldur
Þórir Guðmundsson þær fyrir
hönd Sparisjóðsins. Að þessu
sinni hlaut Óttar Steinn Magn-
ússon viðurkenningu fyrir góð-
an árangur í iðngreinum og Elín
Óla Klemensdóttir fyrir árangur
sinn í tungumálum. Birna Ás-
björnsdóttir fékk verðlaun fyrir
stærðfræði og raungreinar og
íslensku. Birna hlaut einnig við-
urkenningu fyrir hæstu einkunn
á stúdentsprófi og fékk að laun-
um 100.000 kr. styrk frá Spari-
sjóðnum.
Ragnheiður Gunnarsdóttir
kennari afhenti við athöfnina
styrki úr styrktarsjóði Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja. Sjóð-
urinn var stofnaður af Kaup-
félagi Suðurnesja og Gunnari
Sveinssyni, fyrrverandi kaup-
félagsstjóra og fyrsta formanni
skólanefndar Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Tilgangur sjóðsins
er að efla og auka veg skólans
með því að styrkja nemendur
skólans til náms, að styðja við
starfsemi sem eflir og styrkir
félagsþroska nemenda og að
veita útskriftarnemendum við-
urkenningar fyrir frábæran ár-
angur í námi og starfi. Þau Arn-
ór Sindri Sölvason, Daníel Freyr
Elíasson, Eyþór Ingi Júlíusson og
Sigurbjörg Magnúsdóttir fengu
öll 20.000 kr. styrk fyrir góða
frammistöðu í ræðumennsku
og góðan árangur í lífsleikni.
Sigfús Jóhann Árnason fékk
75.000 kr. styrk fyrir góðan ár-
angur í ræðumennsku og einnig
fyrir öflugt uppbyggingar- og
kynningarstarf á ræðumennsku
í skólanum og í grunnskólum.
Þá fékk nemendafélag skólans
100.000 kr. vegna útgáfu skóla-
blaðsins Vizkustykkis og söng-
keppninnar Hljóðnemans.
Foreldrafélag var stofnað við
skólann síðastliðið haust. Við
útskriftina afhenti Stefanía Val-
geirsdóttir, formaður foreldra-
félagsins, nemendafélagi skólans
að gjöf myndavél til að nota í
starfi félagsins.
Við lok athafnarinnar afhenti
skólameistari Magnúsi Óskari
Ingvarssyni gjöf frá skólanum.
Magnús, sem jafnan er kallaður
Mói, lætur nú af störfum eftir
34 ára starf við skólann en hann
hefur starfað við skólann frá
upphafi.
Að lokum sleit Kristján Ás-
mundsson skólameistari vorönn
2010.
Suðurnesjamenn
kjósa Víkurfréttir