Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.05.2010, Blaðsíða 31

Víkurfréttir - 27.05.2010, Blaðsíða 31
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í ÞRJÁ ÁRATUGI! 31VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 27. MAÍ 2010 Vocal Keflavík óskar sjómönnum til hamingju með daginn Sjómannaafsláttur af fordrykk hússins og bjór frá kl. 18:00 - 20:00 Laugardagur Humarsúpa, hægeldaðar, nautalundir með Bernaissósu, súkkulaðidesert hússins. Kr. 5900,- Sunnudagur 11:30 - 14:00 erum við með okkar stórglæsilega brunch kr. 2800 á mann. Hálfvirði fyrir börn yngri en 12, frítt fyrir 6 ára og yngri Borðapantanir í síma 4215222 Á BITANUM BRJÁLUÐ EUROVISION & KOSNINGAHELGI LÍTILL ÍS Á KR. 99,- (gildir 27. - 31. maí) 50% AFSLÁTTUR Á NAMMIBAR föstudag og laugardag (gildir 27. - 31. maí) NÝTT - NÝTT BITABÁTUR (Beikon eða pepperóní) OSTBORGARATILBOÐ kr. 790,- PYLSUTILBOÐ kr. 390,- Lúkas Kostic hefur verið rek- inn sem þjálfari Pepsi-deild- arliðs Grindavíkur í knatt- spyrnu. Liðið tapaði fjórða leiknum í röð í deildini í fyrrakvöld gegn Val. Grindavíkurliðið hefur ekki unnið sigur í síðustu tíu leikj- um. Liðið endaði síðustu leik- tíð með fimm tapsigrum og einu jafntefli og það hefur ekki unnið leik síðan það vann FH á útivelli í ágúst í fyrra. „Við höfum spilað langt undir væntingum og það er stærsta vandamálið en vissulega er ýmislegt sem gæti verið betra,“ sagði Orri Freyr Hjaltalín, fyr- irliði í samtali við VF. Ýmislegt var reynt að undan- förnu til að laga málin hjá Grindvíkingum, m.a. haldinn „pepp“-fundur í Bláa lóninu. Þar var m.a. rædd óánægja leikmanna með æfingarnar hjá Kostic. Leikmenn UMFG hafa virk- að þungir í byrjun leiktíðar og þegar Orri Freyr var spurður út í það sagði hann það vissulega rétt. „Við höfum verið óheppn- ir með meiðsli rétt fyrir mót og við virkum þungir.“ Grindvíkingar voru slakir í leiknum gegn Val á þriðju- dagskvöldið. Gilles Ondo jafn- aði eftir að Valur hafði komist yfir í byrjun seinni hálfleiks en svo fengu heimamenn annað mark í andlitið, nokkrum and- artökum síðar. Grindvíkingar hefðu svo með smá heppni getað jafnað á síðustu mínútu venjulegs leiktíma. Þá átti Scott Ramsey fast skot sem endaði í markstönginni. „Við fengum á lúðurinn hérna í upphafi móts og við þurfum að rétta það af. Menn þurfa að ná jafnvægi og sjálfstrausti og þá kemur þetta,“ sagði varn- arjaxlinn Auðunn Helgason sem kom til Grindavíkur fyrir þessa leiktíð. Tíundi leikur Grind- víkinga í röð án sigurs Lúkas Kostic rekinn frá Grindavík: Orri Freyr Hjaltalín, fyr- irliði í leiknum gegn Val. VF-mynd/Sölvi. -nýr þjálfari verður klár fyrir næsta leik Fylgist með kosn- ingafréttum á vf.is næstu daga! Hreystibraut opnuð í Reykjanesbæ

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.