Víkurfréttir - 05.01.2012, Síða 2
2 FIMMTUdagUrInn 5. janúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
ENDURNÝJUN
UMSÓKNA UM HÚSA-
LEIGUBÆTUR
VEGNA ÁRSINS 2012
Endurnýja þarf umsóknir um húsaleigubætur fyrir
16. janúar 2012.
Sótt er um á Mitt Reykjanes.is (www.mittreykjanes.is)
Þar er einnig hægt að sækja um lykilorð og hægt að
velja um að fá lykilorðið sent í pósti eða netbanka.
Með umsókninni þarf að skila inn upplýsingum um:
ársins 2011
Vinnumálastofnun eða öðrum launagreiðendum
og önnur gögn er varða laun
ekki þegar verið skilað inn
í fullu gildi
Umsókn inn á www.mittreykjanes.is þarf að hafa
borist eigi síðar en 16.janúar 2012
Sigurbjörg Gísladóttir húsnæðisfulltrúi.
ÞRETTÁNDAGLEÐI OG
ÁLFABRENNA
-
Brenna er staðsett við Ægisgötu.
boði Reykjanesbæjar.
Suðurnes.
LIFANDI OG SKEMMTI-
LEGT STARF
fjölbreytt og skemmtilegt og hentar jafnt konum sem
-
frestur er til 16. janúar.
Upplýsingar gefur forstöðumaður Fanney St.
Sigurðardóttir í síma 420-3250
fanney.st.sigurdardottir@reykjanesbaer.is
Fjölskyldu- og félagssvið Reykjanesbæjar
MATRÁÐUR ÓSKAST
fanney.st.sigurdardottir@reykjanesbaer.is
Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2012 var samþykkt eftir síðari umræðu í
bæjarstjórn sl. þriðjudag. Áætlunin gerir ráð fyrir
að rekstrarafgangur fyrir afskriftir og fjármagnsliði
verði um 525,1 m.kr. fyrir bæjarsjóð (A-hluta)
og 2.499,5 m.kr. fyrir samstæðu. (A+B hluta).
Rekstrarafgangur bæjarsjóðs (A-hluta), að teknu
tilliti til afskrifta og fjármagnsliða, verður um 230,1
m.kr. Áætlað að halli samstæðu, að teknu tilliti
til fjármagnsliða verði um 452,2 m.kr. Stærstu
fyrirtæki og stofnanir sem falla undir B-hluta eru:
Reykjaneshöfn, Fasteignir Reykjanesbæjar ehf.,
og HS Veitur hf. Þrátt fyrir góðan rekstrarhagnað
fyrir fjármagnsliði er áfram gert ráð fyrir að mikill
fjármagnskostnaður falli á Reykjaneshöfn og
félagslegar fasteignir bæjarins og er ástæða hallans.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri sagði í umræðum á
bæjarstjórnarfundi sl. þriðjudag að reksturinn væri á
réttri leið og að staðan væri að styrkjast með lækkun
skulda um 3 milljarða á árinu og allar helstu kennitölur
í rekstri væru að batna eins og veltufjárhlutfall og
eiginfjárhlutfall. Óvissuþættir væru helstir tengdir
Eignarhaldsfélaginu Fasteign. Fyrir árið 2012 er þó gert
ráð fyrir að allt viðhald og rekstur eigna í bænum sem
tilheyra EFF sé komið á hendur Reykjanesbæjar og er
gert ráð fyrir þeim kostnaði í fjárhagsáætlun. Áhrif
væntanlegra breytinga á efnahagsreikning eru þó ekki
tekin inn í fjárhagsáætlun. Ráðgert er að sveitarfélögin
ljúki samningum við EFF og bankastofnanir nú í
janúarmánuði.
Lækkun skulda næst mest með sölu á Magma
skuldabréfi sem bærinn á og en áætlað söluverð þess
er 6,1 milljarður króna. Þá er einnig gert ráð fyrir sölu
á 15% hlut í HS Veitum fyrir um 1,5 milljarð. Áfram
muni Reykjanesbær þó eiga 51% hlut í HS Veitum.
„Þegar litið er til fjárhagsáætlunar Reykjanesbæjar fyrir
árið 2012 sést að skuldavandi sveitarfélagsins er orðinn
þess valdandi að meirihluti sjálfstæðismanna stefnir í
nýjar hæðir í sölu eigna Reykjanesbæjar á árinu,“ segir
m.a. í bókun Samfylkingarinnar.
Samfylkingin hefur lengi gagnrýnt viðvarandi
hallarekstur sjálfstæðismanna sem bjargað hefur verið
fyrir horn á hverju ári með því að ganga jafnt og þétt
á eignir bæjarins. Vegna þess að aðvaranir okkar til
margra ára hafa verið hundsaðar er Reykjanesbær
í þeirri stöðu að selja þarf eignir til að borga niður
skuldir. Samfylkingin er því sammála að alvarleg
fjárhagsstaða Reykjanesbæjar kalli á sölu Magma
skuldabréfsins.
„Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar eru aftur
á móti alfarið andvígir því að selja nokkuð af
hlut Reykjanesbæjar í HS Veitum. Samfylkingin í
Reykjanesbæ er – og hefur verið – andvíg því að ein
af grunnstoðum okkar samfélags – HS Veitur nú og
þar áður HS Orka – verði seld til að bjarga bænum
frá afleiðingum fjármálastjórnar sjálfstæðismanna.
Aftur á móti vill Samfylkingin losa bæinn undan
ábyrgð á rekstri Víkingaheima sem eingöngu hefur
fylgt kostnaður fyrir samfélagið og fyrirsjáanlegt er að
svo verði áfram. Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2012
ber keim af erfiðleikum og þröngri stöðu í fjármálum
sveitarfélagsins. Lítið svigrúm er til breytinga, á flestum
sviðum er komið að ystu brún og enn þrengir að,“ segir
jafnframt í bókun Samfylkingarinnar.
Kristinn Jakobsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í
bæjarstjórn bókaði ekki sérstaklega um fjárhagsáætlun
og sagðist ætla að bíða eftir ársreikningi bæjarins til að
tjá sig frekar. Hann sagði að mikilvægt væri að huga
betur að almenningssamgöngum bæjarins.
Breytingartillögur Samfylkingar felldar
Fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram tillögu
að breytingum í 12 liðum við seinni umræðu
fjárhagsáætlunar. Þar er m.a. lagt til að færa til um 30
millj. króna á milli liða sem eru að upphæð 87 millj.
kr. M.a. má nefna að Samfylkingin lagði til að hækka
framlag til átaks í atvinnumálum um 5 m.kr., um 12
m.kr. til Afreks- og styrktarsjóðs og 6,5 m.kr. verði
settar í stefnumótun í ferðaþjónustu. Í staðinn skyldu
upphæð í kynningarmál og markaðsstarf lækkuð um
17 m.kr. og hætt yrði við að senda fulltrúa bæjarins
og íþróttafólk á vinabæjarmót. Þá skyldi upphæð
til jólaskreytinga lækkuð um 2 m.kr. og framlag til
stjórnmálasamtaka í bæjarfélaginu að upphæð 3,6
m.kr. fellt niður.
Miklar umræður spunnust um tillögur Samfylking-
arinnar hjá minni- og meirihluta. Þær fengu ekki
brautargöngu við atkvæðagreiðslu. Sögðust fulltrúar
meirihlutans ekki geta orðið við þessum breytingum.
Slíkt myndi kalla á að aðilar innan meirihlutans hefðu
án efa áhuga á að færa til peninga í ýmsum liðum
og því væri ekki hægt að verða við þessu. Fulltrúar
Samfylkingarinnar lýstu yfir vonbrigðum sínum með
viðbrögð meirihlutans við þessum tillögum.
-nýjar hæðir í sölu eigna til að laga reksturinn og margir óvissuþættir, segir minnihlutinn
›› Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2012 samþykkt:
Staðan styrkist og skuldir lækka
Sama útsvarsprósenta
– leikskólagjöld hækka um 20%
Ingólfs minnst
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar minntist á fundi sínum sl.
þriðjudag Ingólfs Bárðarsonar
sem lést í síðustu viku. Ingólfur var
forseti bæjarstjórnar Njarðvíkur í
fjögur ár en sat í bæjarstjórninni
í tólf ár.
Böðvar Jónsson, forseti bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar flutti stutta
tölu um Ingólf á fundinum og að
því loknu vottuðu bæjarfulltrúar og
gestir á fundinum Ingólfi minningu
sína með því að rísa úr sætum.
Nokkrar lykiltölur
úr fjárhagsáætlun
Reykjanesbæjar 2012:
Útsvarsprósenta verður áfram
14,48%. Álagningar-prósentur
fasteignagjalda verða áfram
óbreyttar. Sorphirðugjald og
sorpeyðingargjald hækka og
frá 1. jan. taka HS Veitur við
innheimtu vatnsgjalda.
Þjónustugjöld hækka að
jafnaði eftir vísitölu:
Skólamáltíðir í áskrift
verða kr. 275.
Mánaðargjald á leikskóla
verður kr. 24.000, (var 20.000).
Matargjald til leikskólabarna
verður kr. 7.480 á mánuði.
Umönnunargreiðslur verða kr.
25.000. Áfram verður frítt í sund
fyrir börn á grunnskólaaldri.
Áfram verða gjaldfrjálsar
almenningssamgöngur og á
safna- og listsýningar bæjarins.
Fræðslu- og uppeldismál eru sem
fyrr langstærsti málaflokkurinn
en útgjöld til fræðslumála nema
55% af heildarútgjöldum til
allra málaflokka. Fjölskyldu- og
félagsþjónusta er með 14%,
íþrótta- og tómstundamál nema
10%, umhverfis-, umferðar- og
skipulagsmál eru með 6%,
menningarsvið er með 4% af
heildarútgjöldum og brunamál
og almannavarnir taka til sín 2%.
Sameiginlegur kostnaður nemur
8% af heildarútgjöldum en undir
þennan málaflokk falla nefndir
og ráð, rekstur bæjarskrifstofa,
tölvu- og upplýsingamál fyrir
allar stofnanir og aukaframlag
í lífeyrissjóð. Inni í þessum
málaflokki er einnig utanumhald
um framlög til Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum.