Víkurfréttir - 05.01.2012, Blaðsíða 8
8 FIMMTUdagUrInn 5. janúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Sjálfboðaliðar árSinS
Björgunarsveitirnar á Suðurnesjum höfðu í miklu að snúast á árinu
2011. Erfið verkefni biðu þeirra bæði á Suðurnesjum og á landsvísu.
Erfiðust eru verkefnin þar sem leitað er einstaklinga sem svo finnast
látnir. Umfangsmikil leit var gerð að erlendum ríkisborgara í
Sandgerði. Hann fannst látinn í höfninni í Sandgerði eftir mikla leit.
SaMninGar árSinS
Fulltrúar ríkisvaldsins, Reykjanesbæjar og frá nýrri kísilverksmiðju
komu saman í Reykjanesbæ í febrúar í fyrra til að undirrita samninga
um byggingu kísilverksmiðju í Helguvík. Blekið á samningnum
er löngu orðið þurrt en tafir hafa orðið á upphafi framkvæmda.
Nú sér víst til lands og framkvæmdir hefjast á næstu vikum.
ÁHÆTTA Ársins
Stórhuga starri tók sannarlega áhættu ársins þegar hann gerði
sér hreiður á forláta gasgrilli í Sandgerði á árinu. Fimm egg
voru í hreiðrinu þegar þess varð vart og á örskömmum tíma
voru komnir tístandi ungar í hreiðrið. Þessir ungar voru ekki
grillaðir en því miður varð annað starrahreiður í Sandgerðislandi
fyrir því að verða grilllogum að bráð. Það var reyndar alveg
óvart og engin egg eða ungar voru komnir í það hreiður.
blað árSinS
Víkurfréttir tóku miklum
breytingum á árinu. Þegar vorið
gekk í garð stækkuðu Víkurfréttir
svo um munaði. Byrjað var að
prenta blaðið á dagblaðapappír og
í stærra broti en áður hafði þekkst.
Breytingarnar hafa almennt fallið
vel í fólk, enda hafa Víkurfréttir
með þessum hætti náð að bjóða
upp á meira lesefni í blaðinu.
ÓVEðUr árSinS
Veðrið gerði mikinn usla á
Keflavíkurflugvelli. Stórt gat kom
á flugskýli Icelandair og fólk sat
fast í þotum á flughlöðum í margar
klukkustundir. Björgunarsveitir
höfðu nóg að gera þennan daginn.
niðUrfEllinG árSinS
Endurreisn Sparisjóðsins í Keflavík var í fullum gangi á síðasta ári þegar Steingrímur J. Sigfússon,
þáverandi fjármálaráðherra mætti með óvænt útspil og ákvað að sameina SPKEF sparisjóð og
Landsbankann. Seint á árinu ákvað svo Landsbankinn að fella niður lán sem veitt voru til stofnfjárkaupa
í SPKEF í góðærinu og þar með kom bankinn í veg fyrir gjaldþrot fjölda heimila á Suðurnesjum.
MaGaVErkUr Eða klÓSEttfErð árSinS
Flugstjóri hjá stóru evrópsku flugfélagi fékk alveg ægilegan magaverk á leið sinni yfir Atlantshafið á síðasta
ári. Þar sem klósettið um borð í þotunni hans var upptekið var brugðið á það ráð að nauðlenda í Keflavík
og fá fylgd slökkviliðsmanna á klósettið. Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli vegna málsins.
brEYtinGar árSinS
Já, miklar breytingar urðu í
bankamálum á Suðurnesjum
þegar Sparisjóðurinn í Keflavík
rann inn í Landsbaknann. Þar
með ákvað BYR að opna útibú í
Reykjanesbæ og fjórar fræknar
starfsstúlkur úr Sparisjóðnum í
Keflavík gerðust starfsmenn Byrs
og fjöldi viðskiptavina fylgdi þeim
í nýja útibúið. Þar með var ekki
sagan öll, því seint á árinu keypti
Íslandsbanki Byr og því standa
starfsstúlkurnar úr Sparisjóðnum
í Keflavík aftur frammi fyrir
breytingum og verða starfsmenn
Íslandsbanka nú í janúar.
fÆðinG árSinS
Barn sem kom í
heiminn í afgreiðslu
Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja snemma
á árinu var svo
sannarlega að flýta
sér í heiminn.
Foreldrarnir komu
frá Sandgerði og rétt
náðu á sjúkrahúsdið
áður en barnið kom
í heiminn. Faðirinn
missti reyndar af
öllu saman, því
hann var að leggja
bílnum úti á bílastæði
meðan barnið kom í
heiminn í afgreiðslu
sjúkrahússins.
svipmyndir fr
á suðurnesju
m
frá nýliðnu fr
éttaári