Víkurfréttir - 05.01.2012, Qupperneq 7
7VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 5. janúar 2012
Halldóra J. Guðmundsdóttir,
Elín Jóhanna Ingólfsdóttir, Joe A. Livingston,
Arnar Ingólfsson, Anna Birna Árnadóttir,
Ragnhildur Helga Ingólfsdóttir, Ólafur Birgisson,
Brynja Ingólfsdóttir, Jóhann B. Magnússon,
Guðmundur Þórir Ingólfsson, Karlotta Sigurbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ingólfur Bárðarson,
rafverktaki, Kjarrmóa 15, Njarðvík
lést á Landspítalanum við Hringbraut, þriðjudaginn 27. desember.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, föstudaginn 6. janúar kl. 13:00.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er
bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Join me in a cozy place where we can
gently free our bodies from pain, open
our minds to innite possibilities, and
learn to trust our loving and happy inner
voice.
It is my pleasure to invite everyone without
charge for the duration of November. (note:
no class 24/11) My rst certication to teach
Hatha yoga came from Gudjon Bergmann in
2009.
And, this year I went to the southwest coast
of India to live and study and received
another honored certicate from Santhi
Global School of Yoga & Vedanta Studies.
These, along with my 10 year career as a
therapeutic massage and body worker will
make your yoga class unique and profound.
All NEW TIMES TO SHINE
Tuesday and Thursday 8:30 & 20:00
Idavellir 9, entrance beside Dosasel
ALL
BODIES
ALL
AGES
ALL
CLASSES
OPEN
WITH
CARLA S.
EVANS
HAPPY NEW
YOGA YEAR BEGINS 10. JAN
Forseti Íslands sæmdi á nýársdag ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Meðal þeirra var Hafsteinn
Guðmundsson fyrrverandi forstöðumaður hjá Keflavík, hlaut hann
riddarakross fyrir forystu á vettvangi íþróttastarfs á Suðurnesjum og á
landsvísu. Hafsteinn Guðmundsson lék fjóra landsleiki í knattspyrnu
á árunum 1946-1951,
var stjórnarmaður
í KSÍ 1968-1971,
landsliðsnefndarmaður og
síðar landsliðseinvaldur
eins og það var kallað, og
formaður ÍBK til fjölda
ára. Hafsteinn var sæmdur
heiðurskrossi KSÍ á 50
ára afmæli sínu í október
1973, en heiðurskrossinn
er æðsta heiðursmerki
KSÍ og veitist aðeins
þeim sem unnið hafa
knattspyrnuíþróttinni
ómetanlegt gagn.
Árleg þrettándagleði í Reykja-nesbæ verður haldin 6.
janúar. Dagskrá hefst kl.18.00
með skrúðgöngu frá Myllubakka-
skóla að hátíðarsvæðinu við
Hafnargötu 8. Brennan verður
svo staðsett við Ægisgötu.
Á dagskránni verður m.a.: Álfa-
brenna, tónlist, söngur, álfakóngur
og drottning, púkar, Grýla, Leppa-
lúði og jólasveinar. Boðið verður
upp á heitt kakó í boði Reykjanes-
bæjar.
Karlakór Keflavíkur, Kvennakór
Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur og
tröllastelpan Fjóla, Skátarnir, Björg-
unarsveitin Suðurnes og Léttsveit
og Trommusveit Tónlistarskólans
munu taka þátt í dagskránni.
Flugeldasýning verða á vegum
Björgunarsveitarinnar Suðurnes.
Hafsteinn Guðmundsson
sæmdur riddarakrossi
Hafsteinn við hlið forseta Íslands, þriðji frá vinstri. Á myndinni til vinstri er Hafsteinn með Ellerti B. Schram, Birki
Kristinssyni og syni sínum, Hauki Hafsteinssyni. Ljósmyndir: Gunnar G. Vigfússon.
Þrettándagleði og álfabrenna
AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja
verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensks
sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks
sjávarútvegs og fiskeldis.
Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni
með þetta að markmiði.
Skilafrestur umsókna er til kl. 17, 1. febrúar 2012.
Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið
avs@avs.is og bréflega á póstfangið AVS
rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Háeyri 1, 550
Sauðárkrókur
Styrkir sem sjóðurinn veitir falla undir þrjá flokka:
a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna
Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða
þróunarverkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins.
Veittur er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn
gera grein fyrir verkþáttum og fjármögnun. Hver
styrkur getur numið allt að átta milljónum króna.
Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri
verkefna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri
tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um
styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt,
þarf að gera grein fyrir fullnægjandi framvindu
verkefnisins áður en styrkumsókn er afgreidd.
b. Smá- eða forverkefni
Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða
verkefna til undirbúnings stærri verkefna á sviði
rannsókna og/eða þróunar. Styrkupphæð er allt að
einni milljón króna og skal verkefninu lokið innan tólf
mánaða frá úthlutun.
c. Atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum
Veittir eru styrkir til verkefna, sem stuðla að nýjum
störfum og aukinni verðmætasköpun í
sjávarbyggðum. Horft er til ýmissa verkefna, sem
geta tengst t.d. framboði á sjávarfangi,
ferðaþjónustu, nýjum vörum eða þjónustu.
Hámarkstími verkefna er 12 mánuðir og
hámarksupphæð styrkja er þrjár milljónir króna.
Um alla styrki gildir að framlag sjóðsins má ekki
fara fram yfir 50% af heildarkostnaði og sjóðurinn
tekur ekki þátt í að styrkja fjárfestingar.
Nánari upplýsingar og umsóknarblað er að finna
á heimasíðu sjóðsins www.avs.is.
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi starfar á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins
og veitir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem auka verðmæti sjávarfangs.
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi ∙ Háeyri 1 ∙ 550 Sauðárkrókur ∙ sími 453 6767 ∙ www.avs.is
AVS rannsóknasjóður
í sjávarútvegi
auglýsir eftir umsóknum
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Bendum sérstaklega á nám í grunndeild raðna.
Innritun fer fram dagana 5. og 6. janúar frá kl. 17:00 - 19:00 við
aðalinngang FS og á heimasíðu skólans www.fss.is/kvoldskoli
Á heimasíðunni má skoða námsframboð og stundaskrá.
Kennsla hefst 16. janúar.
Allar nánari upplýsingar fást hjá Sigrúnu Eugenio Jónsdóttur
í síma 899-3709 eða í gegnum tölvupóst kvold@fss.is
INNRITUN STENDUR YFIR
Í KVÖLDSKÓLA FS