Víkurfréttir - 30.08.2012, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 30. ÁGÚST 2012 21
Í TILEFNI LJÓSANÆTUR VERÐUR
LYFJA KEFLAVÍK MEÐ
20% AFSLÁTT
FIMMTUDAG TIL SUNNUDAGS AF
20% AFSLÁTTUR
AF BOSS, DIESEL,
ARMANI, CACHAREL, NAOMI,
AVRIL, CHRISTINA ofl.
húsa. En í hverju felst starf tæknimannsins? „Ég þarf
að sjá til þess að öll stef séu klár og ég þarf sérstaklega
að passa upp á tímasetningar í þáttum og fréttum.
Tíminn skiptir miklu máli þegar fréttamenn eru t.d. að
bóka viðtöl og annað þá þarf að púsla þessu rétt. Passa
þarf að fréttamenn fari ekki yfir á tíma og alltaf sé pláss
fyrir næsta innslag eða viðtal. Svo reyni ég að velja lög
við hæfi og passa að heyrist vel í öllum, eins þarf flæðið
að vera gott,“ en starf tæknimannsins er fjölbreytt. „Við
tæknimennirnir erum í raun að framleiða þessa þætti
þó svo að launin séu kannski ekki í samræmi,“ segir
Ingi og hlær við. „Þannig er vinnan bara og maður er
samviskusamur í þessu.“
Ingi er mikið í því að klippa og hljóðskreyta efni og þar
fær hann útrás fyrir því sem hann elskar að gera. „Það
er að vinna í hljóði, og finnst mér mjög skemmtilegt að
geta dundað mér í því.“
Ingi hefur verið viðloðinn tónlist frá unga aldri og
verið í ýmsum hljómsveitum. Hann hefur einnig verið
að fást við upptökur á tónlist eins og áður segir. „Ég er
alveg hættur í öllu hljómsveitarstússi. Það er enginn
peningur í því. Nú er maður bara í því sem gefur af
sér,“ segir Ingi og hlær.
Varðandi framtíðina í útvarpsbransanum þá hefur Ingi
ekki mikið verið að velta henni fyrir sér. Hann segist
ánægður í núverandi stöðu. „Ég vil bara halda þessu
áfram og sjá hvert það leiðir mig. Ég hef gaman af
þessu og er hamingjusamur.“
Þetta verður í fyrsta skiptið sem Ingi missir af Ljósa-
nótt. „Rétt áður en við Anna giftum okkur seldum
við íbúðina okkar og keyptum nýja íbúð í vesturbæn-
um í Reykjavík. Við gjörsamlega tókum hana í nefið,
gerðum hana fokhelda og hönnuðum allt upp á nýtt.
Færðum baðherbergið og eldhúsið og smíðuðum veggi
og gerðum ný svefnherbergi,“ þannig að þegar Ingi
er ekki í vinnunni er hann heima að smíða og brasa
og reynir að nýta hverja helgi. Ingi Þór verður svo að
sjálfsögðu á öldum ljósvakans þegar Ljósanótt stendur
sem hæst á laugardagskvöld.
verður í Cabo Hafnargötu 23 á Ljósanótt
frá fimmtudagskvöldi til sunnudags.
Verið velkomin
Dís
íslensk hönnun