Víkurfréttir - 30.08.2012, Side 29
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 30. ÁGÚST 2012 29
Framkvæmdir
ganga vel við
Nesvelli
Framkvæmdir við byggingu á nýju hjúkrunarheimili á
Nesvöllum í Reykjanesbæ eru
nú í fullum gangi og ganga vel.
Undanfarið hefur uppsteypa
gengið vel fyrir sig og gert er
ráð fyrir að vinnu við sökkla og
undirstöðu ljúki þann 30. septem-
ber næstkomandi. Verktakinn,
Hjalti Guðmundsson ehf. vinnur
að fyrsta áfanga framkvæmda.
Framundan er svo útboð á næsta
áfanga verkefnisins sem er upp-
steypa á öllu húsinu, ásamt frágangi
með gluggum og hurðum.
Nýtt hjúkrunarheimili í Reykja-
nesbæ verður 4.350 m2 að stærð,
með 60 nýtískulegum einstaklings-
íbúðum, en auk þess verður hluti
af þegar byggðri þjónustumiðstöð
á Nesvöllum nýtt fyrir starfsemi
hjúkrunarheimilis. Stefnt er að
því að taka nýtt hjúkrunarheimili í
notkun í byrjun ársins 2014.
Hafnargata 29 - s. 421 8585
20%
AFSLÁTTUR
frá fimmtudegi til mánudags
ljósanótt
Minnum á í krossmóa
opið á ljósanótt - 40%-80% afsláttur
„Mér finnst að það hljóti að vera
hægt að gera meira til þess að fá
ferðamenn til að kíkja í miðbæinn
okkar. Mér finnst alveg sorglega fátt
fólk hérna svona miðað við þessa
milljón ferðamanna sem heimsækja
landið.“ Oddgeir Garðarsson hjá
Stapafelli við Hafnargötu segir að
sumarið í ár sé með svipuðum hætti
og í fyrra hvað varðar ferðamenn
sem heimsækja miðbæ Keflavíkur.
Þó er hann á því að það sé búinn
að vera stígandi straumur ár frá
ári. Hann hefur verið á Hafnargötu
með verslun sína í tæp tvö ár á nú-
verandi stað en áður var hann með
verslun sem bar sama nafn neðar
í götunni. Verslun hans er með
vörur og minjagripi sem ætlaðar
eru ferðamönnum að mestu leyti.
„Þegar maður fer í miðbæinn í
Reykjavík þá þarf maður nánast að
tala annað tungumál en íslensku,
það er alveg krökkt af útlend-
ingum.“ Oddgeir segir að mikill
meirihluti af ferðamönnum komi
til hans frá hótelunum og einnig
njóti hann góðs af því að vera stað-
settur gegnt 10-11 versluninni á
Hafnargötu.
Hvaða vörur eru ferðamennirnir
að versla?
„Fólk er mikið að skoða og spá í
hlutina. Maður tekur eftir því að
fólki finnst vera dýrt hérna á landi.
Það er mikið verið að spá í því hvað
allt kostar og gengið reiknað út í
þaula.“ Íslensku lopapeysurnar eru
sívinsælar en mörgum þykir þær
vera orðnar í dýrari kantinum, en
Oddgeir telur að þeir sem eru að
prjóna lopapeysur séu að fá frekar
lág laun. „Það tekur um 30 klukku-
stundir að prjóna eina góða lopa-
peysu og hún er að fara á rúmar 20
þúsund krónur. Af þessum rúmu
20 þúsundum fara svo kannski
fimm þúsund í virðisaukaskatt,“
þannig að það gefur auga leið að
tímakaupið er ekki ýkja hátt ef
miðað er við þetta.
Oddgeiri finnst algengt að fólk sé
mjög ánægt eftir ferðalag sitt á Ís-
FerðaÞjónustuaðilar á suðurnesjum virðast
vera sammála um nokkur atriði. Flestir þeir sem
blaðamaður Víkurfrétta hefur rætt við á undan-
förnum vikum eru sammála um það að svo virðist
sem skortur sé á samstöðu meðal fólks sem hefur
atvinnu af ferðamönnum hér á svæðinu. margir
þeirra eru einnig óánægðir með að ekki skuli vera
almennilegar samgöngur við leifsstöð og aðstaða þar
til þess að sækja ferðamenn. Það liggur ljóst fyrir að
ferðamennskan er sífellt vaxandi grein hér á landi og
mikilvægt er að nýta þá auðlind sem best.
Jákvætt viðhorf
gagnvart Íslandi
landi. Því finnist Ísland vera flott og
yfirleitt er jákvætt viðhorf gagnvart
landi og þjóð. Helst er fólk að setja
út á verðlagið að mati Oddgeirs.
„Það virðist vera að sumarið
sé flottur tími hjá ferðaaðilum á
svæðinu. Það þyrfti að vera hérna
Suðurnesjaættuð ferðaskrifstofa
sem myndi einbeita sér að ferðum
hérna um svæðið. Það þyrfti ein-
hver að taka sig til og gera það.“
Oddgeir talar um að ekki sé nægileg
samstaða meðal aðila hér á svæðinu
en blaðamaður hefur orðið var við
þá skoðun víða á svæðinu. „Það er
eitthvað um það að fólk sé hvort á
móti öðru og jafnvel hrætt um það
að einhver annar sé að græða meira
o.s.frv. Kannski er það eðlilegt, ég
veit það ekki. Það þarf að gera eitt-
hvað en kannski eru allir að bíða
eftir því að einhver annar taki af
skarið.“
Oddgeir telur að það þurfi líka
nauðsynlega að fá strætó sem fer
milli Flustöðvarinnar og Reykja-
nesbæjar. „Það er ekki hægt að láta
leigubílstjóra sjá um þetta að öllu
leyti. Það þarf bara að vera strætó
sem gengur reglulega hingað niður
í bæ.“