Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.04.2013, Qupperneq 8

Víkurfréttir - 18.04.2013, Qupperneq 8
fimmtudagurinn 18. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR8 Bílabúð Benna Reykjavík Notaðir bílar • Bíldshöfða 10 Sími: 590 2000 • notadir@benni.is Bílabúð Benna Reykjanesbær Nýir og notaðir bílar • Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 • notadir@benni.is Árgerð 2012 | dísel | sjálfskiptur | 184 hö | sjö manna Verð aðeins: 5.590.000 kr. Eigum eftir nokkur glæsileg eintök af Chevrolet Captiva bílaleigubílum á frábærum kjörum. CHEVROLET CAPTIVA • ESP stöðuleikastýring • Tölvustýrð spólvörn • ABS hemlalæsivörn • Fjarlægðarskynjari að aftan • 6 loftpúðar, gardína. • Þriggja punkta öryggisbelti • Hiti í speglum • Hiti í sætum • Hólf fyrir sólgleraugu • Kæling í hanskahólfi • Upphitunarkerfi • Aksturstölva • Aðgerðarstýri • Útihitamælir • Bluetooth tenging • Áttaviti • Hiti á rúðuþurrkum • Eco sparnaðarstilling • 6 hátalarar • USB tengi • Útvarpsfj arstýring í stýri • 17” álfelgur • Rafmagn í speglum, aðfellanlegir • Sjálfv. birtustillir í baksýnisspegli • Hleðslujafnari • Fjarstýrðar samlæsingar • Rafdrifnar rúður Dráttarbeisli að verðmæti 160.000 kr. í kaupbæti NOTAÐIR BÍLAR Bílabúð Benna Góðir bílar og betri kjör Margt góðra gesta var í sérstöku afmælishófi Brunavarna Suðurnesja um nýliðna helgi þar sem 100 ára afmælinu var fagnað. Um 400 gestir mættu í hófið sem haldið var í nýju slökkviliðs- minjasafni sem opnað hefur verið í samstarfi við Byggðasafn Reykjanesbæjar í Ramma á Fitjum. Brunavarnir Suðurnesja reka eitt af öflugustu slökkvi- liðum landsins og sjá einnig um sjúkrabílaakstur á Suðurnesjum, utan Grindavíkur. „Faglega þá hafa Brunavarnir Suðurnesja og slökkvilið aldrei verið öflugri en í dag. Það er ekki þar með sagt að við séum á endapunkti og þar ber húsnæðismál hæst. Það þarf að leysa þau mál,“ segir Jón Guðlaugsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja í samtali við Víkurfréttir á 100 ára afmæli BS. Stjórn Brunavarna Suðurnesja kom saman ásamt vara- stjórn á 100 ára afmælinu sl. mánudag. Hátíðarfundur var haldinn í nýju slökkviliðssafni á Fitjum. Þar var m.a. tekin ákvörðun um að endurnýja fyrsta útkallsbíl slökkviliðsins en það er stefna stjórnar BS að fyrsti útkallsbíll verði aldrei eldri en 10 ára. Það mun taka um eitt og hálft ár að fá nýjan bíl. Jón á von á því að húsnæðismál Brunavarna Suður- nesja leysist fljótlega. Verið er að skoða nokkra mögu- leika. Einn af þeim er að slökkvistöðin verði flutt í slökkvistöðina á Keflavíkurflugvelli og að sú bygging fari út fyrir girðingu flugvallarins. Jón segir það sína skoðun að slökkviliðið fyrir Keflavíkurflugvöll eigi að vera samrekið með slökkviliði Brunavarna Suðurnesja. Það væri farsælast fyrir sveitarfélögin og einnig fyrir flugvöllinn. Í dag eru 25 fastráðnir starfsmenn hjá Brunavörnum Suðurnesja og 20 í hlutastörfum. Brunavarnir Suður- nesja og Slökkvilið Sandgerðis eru í dag samrekin og um áramót er gert ráð fyrir að stofnað verði byggða- samlag um reksturinn samkvæmt sveitarstjórnar- lögum. Slökkviliðsminjasafn var opnað á hundrað ára af- mæli Brunavarna Suðurnesja í húsnæði Byggðasafns Reykjanesbæjar, gamla Rammahúsinu, um nýliðna helgi. Á safninu eru gamlir slökkvibílar og annar bún- aður frá slökkviliðum á Íslandi. Safnið og sýningin verður í húsinu a.m.k. næstu þrjú árin og verður opin um helgar fyrir almenning. Nánar verður fjallað um safnið í næsta blaði og birt viðtal við þá sem unnu að verkefninu. Stjórn og varastjórn Brunavarna Suðurnesja á 100 ára afmæli BS sl. mánudag. VF-mynd: Oddgeir Karlsson BRUNAVARNIR SUÐURNESJA 100 ÁRA Nýr slökkvibíll og úrbætur í húsnæðismálum Frumkvöðlar að byggingu safnsins, þeir Ingvar Georgsson t.v. og Sigurður Lárusson með Gunnlaug Búa Jónsson, fyrsta heiðursfélaga Félags áhugamanna um sögu slökkviliða á Íslandi. Fyrsti slökkvibíllinn í Keflavík, Ford árgerð 1947, hefur verið endurbyggður frá grunni og er allur hinn glæsilegasti. Þessir kappar allir komu að vinnu við uppsetningu Slökkviliðsminjasafnsins í Rammahúsinu. Sögusýning Brunavarna Suðurnesja byggist m.a. upp á blaðafregnum, aðallega úr Víkurfréttum

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.