Víkurfréttir - 18.04.2013, Page 10
fimmtudagurinn 18. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR10
TÓNLISTARSKÓLI
REYKJANESBÆJAR
Stórsveitadagurinn í Reykjavík
Hinn árlegi Stórsveitadagur sem Stórsveit Reykjavíkur
stendur fyrir, verður í Tónlistarhúsinu Hörpu sunnudag-
inn 21. apríl og hefst kl.13.00.
Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verður meðal
þeirra stórsveita sem koma fram á tónleikunum.
Allir áhugasamir hvattir til að mæta.
Aðgangur ókeypis.
Skólastjóri
NJARÐVÍKURSKÓLI
ATVINNA
Okkur vantar áhugasama kennara til starfa á næsta
skólaári.
Aðallega er um að ræða kennslu á yngra- og miðstigi
auk kennslu í náttúrufræði, upplýsingatækni og
stærðfræði.
Menntunar og hæfniskröfur:
Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
Góð mannleg samskipti
Umsóknarfrestur er til 2. maí 2013
Nánari upplýsingar gefur Ásgerður Þorgeirsdóttir
skólastjóri í s. 420 3000 / 863 2426
Sækja skal um starfið rafrænt á vef Reykjanesbæjar.
http://www.reykjanesbaer.is/stjórnkerfi/laus-storf
Í Njarðvíkurskóla er lögð áhersla á menntun og
mannrækt, árangursríkt skólastarf og stuðning við
jákvæða hegðun.
Sjá nánar um skólann á njardvikurskoli.is
DEILDARSTJÓRAR Í HEIÐARSKÓLA
ATVINNA
Heiðarskóli óskar eftir tveimur deildarstjórum
fyrir skólaárið 2013 – 2014
Starfssvið:
mannaforráð og stýrir hluta af skólastarfi
samráði við kennara og stjórnendur
og vera leiðandi í faglegri umræðu
Menntunar og hæfniskröfur:
Umsóknarfrestur er til 29. apríl nk.
Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar,
http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Í Heiðarskóla er lögð áhersla á metnaðarfullt skólastarf og
unnið er eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar.
Sjá nánar um skólann: www.heidarskoli.is.
Nánari upplýsingar veitir Sóley Halla Þórhallsdóttir,
skólastjóri, í síma 420-4500 eða 894-4502 eða á
netfangið soley.h.thorhallsdottir@heidarskoli.is
Hljómsveitin Valdimar og Lúðrasveit Tónlistar-skóla Reykjanesbæjar ætla að rugla saman
reitum á tónleikum í Andrews leikhúsinu á Ásbrú
laugardaginn 27. apríl nk., á sjálfan kjördaginn.
Þar er ætlunin að sveitirnar leiki saman lög eftir
hljómsveitina Valdimar. „Lúðrasveitin mun renna
inn í okkar músík,“ sagði Valdimar Guðmundsson
í samtali við Víkurfréttir nú í vikunni.
Valdarnir tveir í hljómsveitinni Valdimar, Þorvaldur
Halldórsson og Valdimar Guðmundsson hafa unnið
að útsetningunum ásamt fleirum, þeim Inga Garðari
Erlendssyni og Ásgeiri Aðalsteinssyni sem er einn af
meðlimum Hljómsveitarinnar Valdimars.
hafa unnið að útsetningum á lögum sveitarinnar þar
sem 40 manna lúðrasveit er bætt við hljómsveitina
Valdimar. Samtals eru þetta 15 lög sem sveitirnar
munu leika saman.
Flutt verða lög af tveimur fyrstu plötum hljómsveitar-
innar í nýjum og stórglæsilegum lúðrasveitarbúningi.
Lúðrasveit Tónlistarskólans er skipuð 40 afbragðs
nemendum og leikur undir styrkri stjórn Karenar
Sturlaugsson. Hljómsveitina Valdimar þarf vart að
kynna. Árið 2010 spruttu þeir fram á sjónarsviðið
með útgáfu plötunnar Undraland og urðu í fram-
haldi af því fljótlega ein af vinsælustu hljómsveitum
landsins. Í fyrra gáfu þeir svo út plötuna Um Stund
sem fékk gríðarlega góðar viðtökur frá gagnrýn-
endum og naut mikilla vinsælda. Haraldur Árni Har-
aldsson, skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar,
segir það mikil tímamót að Hljómsveitin Valdimar
og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar efni til samstarfs.
Valdimar sé ein af allra bestu hljómsveitum landsins
í dag með söngvarann Valdimar Guðmundsson í
fararbroddi. Þá sé Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar einnig í sínu allra besta formi þessa dagana.
Hana skipi úrvalslið blásara sem eigi að baki margra
ára spilamennsku. Þá sé einnig gaman að geta þess
að mikil tengsl séu á milli lúðrasveitarinnar, hljóm-
sveitarinnar Valdimars og Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar. Hljómsveitin Valdimar sé af stærstum hluta
sprottin út úr bæði tónlistarskólanum og lúðrasveit-
inni og þá séu margir af meðlimum Valdimars núna
kennarar við tónlistarskólann. Það hafi því verið hæg
heimatökin að setja upp þessa tónlistarveislu sem
verður laugardagskvöldið 27. apríl nk.
Tónleikarnir hefjast kl. 19:30 og miðasala fer fram á
midi.is. Miðaverð er 2000 kr. og það telst gjöf en ekki
gjald fyrir þá tónlistarveislu sem boðið verður uppá
í Andrews leikhúsinu. Þar verður mikið lagt upp úr
hljóði og búið að taka á leigu bæði vandað hljóðkerfi
og einnig fullorðins ljósashow. Tónleikarnir verða
án hlés þannig að allir ættu að komast heim eða á
kosningavökur í tæka tíð.
Listahátíð sem á erindi við okkur öll, líka þá sem halda
að hún sé bara fyrir hina.
Sveitarfélögin á Suðurnesjum og
MSS taka nú þátt í listahátíðinni
List án landamæra í 5. sinn með 4
spennandi viðburðum sem íbúar
eru eindregið hvattir til að taka þátt
í og njóta.
Dagskráin hefst í næstu viku á
sumardaginn fyrsta með opnun
samsýningar í Bíósal Duushúsa þar
sem leiðir saman hesta sína fólk
úr ólíkum áttum með fjölbreyttri
myndlist.
Á síðasta ári stóðu félagar í Björg-
inni og fleiri fyrir Geðveiku kaffi-
húsi í Svarta pakkhúsinu sem sló
heldur betur í gegn með trufluðum
veitingum og fjölbreyttum upp-
ákomum. Nú ætla þau að endur-
taka leikinn og eru allir hvattir til
að fylgjast með viðburðum þar.
Strætóskýli í bænum munu einnig
fá nokkra andlitslyftingu sem von-
andi lyftir einnig geðinu okkar
og léttir okkar lund. Þá láta Bestu
vinir í bænum sitt ekki eftir liggja
og hafa nú í annað sinn sett saman
nýja sýningu, Tímavélina, í Frum-
leikhúsinu, sem enginn má láta
framhjá sér fara. Ef þú misstir af
þeim síðast skaltu ekki láta það
gerast aftur.
Fylgist með dagskrá í næstu Vík-
urfréttum og á vef og Facebook
Reykjanesbæjar.
Lífið er yndislegt!
Dagskráin er styrkt af
Menningarsjóði Suðurnesja
n List án landamæra á Suðurnesjum:
Brýtur niður múra
og bætir heiminn!
Valdimar með Lúðra-
sveit TR í Andrews
Valdimar Guð-
mundsson, Þor-
valdur Halldórson,
Karen Sturlaugsson
og Haraldur Árni
Haraldsson.