Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.04.2013, Side 18

Víkurfréttir - 18.04.2013, Side 18
fimmtudagurinn 18. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR18 Keflvíkingurinn Flóra Karítas lærði förðun árið 2005 þegar hún sótti námskeið við skóla sem hét EMM school of make up. Flóra segist upprunalega hafa sótt nám- skeiðið til þess að gera sjálfa sig fína. Eftir námskeiðið fékk Flóra vinnu í snyrtivörubúðinni MAC og eftir það fór boltinn að rúlla og hún hefur verið önnum kafin síðan. Í gegnum vinnu sína hjá MAC varð Flóra hluti af svoköll- uðu „Event team“ en það er hópur fólks frá öllum Norðurlöndunum sem vinna saman að tískusýn- ingum. Undanfarið ár hefur Flóra farið alls sex sinnum til Kaup- mannahafnar að vinna með ýmsu fólki sem tengist þessum hóp. Hópurinn kom m.a. að Copen- hagen fashion week bæði í ágúst 2012 og aftur núna í lok janúar. Flóra hefur fengist við förðun fyrir ýmsa viðburði en henni finnst afar áhugavert að vinna við tísku- sýningar. „Það er svo gaman að fá tækifæri til að farða á tískusýn- ingum. Það er allt öðruvísi heldur en að farða fyrir myndatökur og sjónvarp. Það er mikil vinna en svo gott að fá þetta adrenalínkikk því þar þarf maður að vinna mjög hratt, það eru margar stúlkur sem þarf að farða og tíminn er naumur,“ segir Flóra Karítas. Ásamt því að vinna í MAC fékk Flóra hlutastarf í Þjóðleikhúsinu haustið 2011. Þar er hún enn. Hún segir það vera ólíkt starfi sínu hjá MAC. „Það er alveg allt annar handleggur en það er svo gaman að geta gert bæði. Ég læri svo mikið nýtt í Þjóðleikhúsinu. Að farða fyrir leiksvið og sjónvarp er sko ekki það sama!“ Ásamt því að vera í tveimur störfum er Flóra einnig að reyna fyrir sér á eigin vegum. „Ég var mjög stressuð að reyna fyrir mér í sjálfstæðum rekstri. Þar ertu í verktakavinnu og mér fannst það svo mikil áhætta, þar sem maður er jú ekki með föst laun á mánuði og þarf auðvitað að borga reikninga,“ segir hún og hlær. Það er búið að vera brjálað að gera hjá Flóru síðan hún skellti sér út í djúpu laugina að hennar sögn. Hún hef m.a. aðstoðað mikið aðalsminkurnar við auglýsingar MANNLÍF Fólk trúir ekki að þetta sé vinnan mín Flóra Karítas Buenaño ferðast vítt og breitt í starfi sínu sem förðunarfræðingur. Hún bjóst ekki við því að enda í þessum bransa en hún elskar fjöl- breytileikann sem fylgir starfinu. Hún hefur nóg fyrir stafni enda er Flóra nánast í þremur störfum. Hún er alltaf að læra eitthvað nýtt og segir engan vinnudag eins. og bíómyndir ásamt því að sjá um mikið af verkefnum sjálf. Þar á meðal tvö tónlistamyndbönd fyrir hljómsveitina Hjaltalín og eitt fyrir strákana í Valdimar. Hún hefur unnið við auglýsingar fyrir Ice- landair og Vodafone, förðun fyrir RFF (Reykjavík Fashion Festival) fyrir stuttu ásamt fjöldann allan af auglýsingum og myndatökum. „Allir sem þekkja mig vita að ég verð að hafa mikið fyrir stafni.“ Hún hefur nánast ekkert frí átt frá því hún byrjaði að vinna sjálf- stætt en hún segir þennan tíma hafa verið ómetanlegan. „Ég fæ að ferðast um landið og til útlanda og er alltaf að vinna með nýju fólki. Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt og enginn vinnudagur er eins hjá mér,“ segir Flóra en bætir því við að kannski sé það vegna þess að hún sé nánast í þremur vinnum. Það er nóg framundan hjá Flóru en þar á meðal er myndataka fyrir GK og annað tónlistarmynd- band fyrir Hjaltalín. Hún segir sjaldnast vera mikinn fyrirvara á verkefnum þegar þau dúkka upp en hún hefur í nógu að snúast. „Allir sem þekkja mig vita að ég verð að hafa mikið fyrir stafni.“ Flóra segir það alltaf vera jafn fyndið að heyra fólk á „setti“ spyrja hana hvað hún vinni við í alvöru. „Fólk trúir ekki að þetta sé vinnan mín, en ég vinn einungis við að farða fólk við ólíkar aðstæður og ég elska það. Ég ætlaði mér nú aldrei að vinna við þetta en það er æðislegt hvað lífið kemur manni sífellt á óvart,“ segir Flóra Karítas að lokum.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.