Víkurfréttir - 18.04.2013, Page 25
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 18. apríl 2013 25
VIÐ ÞÖKKUM ÖLLUM NÖGLUM Á ÍSLANDI
VEL UNNIN STÖRF Í VETUR.
SJÁUMST AFTUR 1. NÓVEMBER.
Á DEKKJAHÓTELI N1
BÝÐST ÞÉR AÐ
GEYMA DEKKIN
GEGN VÆGUGJALDI
ÞÚ FÆRÐ MIKIÐ ÚRVAL AF DEKKJUM OG FLJÓTA OG ÖRUGGA ÞJÓNUSTU HJÁ N1
Meira í leiðinni
N1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
REYKJANESBÆ | GRÆNÁSBRAUT 552
OPIÐ MÁN. - FÖS. KL. 8-18 OG LAU. KL. 9-13
SÍMI 440 1372 WWW.DEKK.IS
Framsókn opnar kosningaskrifstofu Sandgerðis og Garðs
í Sandgerði, við Strandgötu, föstudaginn 19. apríl, kl. 17:00
Frambjóðendur verða á staðnum og ræða við gesti.
Léttar veitingar í boði.
Frambjóðendur Framsóknar í Suðurkjördæmi.
Opnunartími á kosningaskrifstofum.
Við Strandgötu, í Sandgerði:
Virka daga 18:00 – 21:00
Við Hafnargötu 62, í Reykjanesbæ:
Virka daga 17:00 – 21:00
Laugardaga 10:30 – 16:00
Minnum á Framsóknarsúpuna í Reykjanesbæ,
fimmtudaginn 18. apríl, kl. 18:00,
ALLIR VELKOMNIR!
OPNUN KOSNINGASKRIFSTOFU
Ársreikningur Sandgerðis-bæjar fyrir árið 2012 var
lagður fram til fyrri umræðu í
bæjarstjórn 11. apríl sl. Seinni
umræða um reikninginn fer fram
8. maí. Ársreikningurinn sýnir
vel að aðhaldsaðgerðir og endur-
skipulagning fjármála og rekst-
urs síðustu ára skilar tilætluðum
árangri.
„Rekstrarstaða Sandgerðisbæjar
hefur batnað verulega og þróun
síðustu 3ja ára sýnir að rekstrarhæfi
bæjarfélagsins batnar jafnt og þétt.
Bæjarbúar, starfsfólk bæjarins og
samstarfsfólk mitt í bæjarstjórn
hefur lagt mikið af mörkum við
að koma rekstrinum í betra horf “,
segir Ólafur Þór Ólafsson for-
seti bæjarstjórnar, en samkvæmt
rekstrarreikningi samstæðu A og B
hluta var rekstrarniðurstaða ársins
2012 jákvæð um 244 mkr. Það er
mikill viðsnúningur frá árunum
þar á undan.
Rekstrartekjur A og B hluta
námu 1.580 mkr. en þar af námu
rekstrartekjur A hluta 1.375 mkr.
Til samanburðar námu tekjur A
og B hluta 1.350 mkr. árið 2011 og
rekstrartekjur A hluta 1.170 mkr.
Heildartekjur milli ára jukust því
um 17%.
Rekstrargjöld A og B hluta bæjar-
sjóðs námu 1.180 mkr. og stóðu
nánast í stað milli áranna 2011 og
2012.
Eignir bæjarfélagsins í lok árs
2012 námu 5.908 mkr., þar af var
handbært fé 1.340 mkr. Skuldir og
skuldbindingar A og B hluta námu
4.940 mkr. í árslok 2012.
Kennitölur úr rekstri sýna að fram-
legð ársins 2012 fyrir A og B hluta
er ríflega 25%. Árið 2011 var fram-
legðin tæp 14%, tæp 3% árið 2010
og neikvæð um ríflega 9% árið
2009.
Skuldahlutfall, þ.e. skuldir sem
hlutfall af árlegum tekjum fer lækk-
andi. Samkvæmt útreikningum
eftir reglugerð nr. 502/2012 um
fjárhagsleg viðmið og eftirlit með
fjármálum sveitarfélaga var skulda-
hlutfall ársins 2012 fyrir A og B
hluta 230% en 177% fyrir A hluta.
Til samanburðar var skuldahlut-
fallið árið 2011 310% fyrir A og B
hluta en 254% fyrir A hluta sam-
kvæmt sömu reglugerð.
Endurskipulagning
skilar verulegum árangri
n Sandgerðisbær: