Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.04.2013, Page 28

Víkurfréttir - 18.04.2013, Page 28
fimmtudagurinn 18. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR28 Við sjálfstæðismenn höfum allt frá því að herinn tilkynnti um brotthvarf sitt staðið í baráttu fyrir aukinni at- vinnusköpun hér á Suðurnesjum. Baráttu fyrir því að Suðurnesjamenn hefðu tækifæri til að sækja vel launuð framtíðar- störf. Þessi barátta hefur verið unnin í sam- vinnu við heimamenn og hefur Árni Sigfússon verið þar fremstur í flokki ásamt öðrum öflugum sveitarstjórna- mönnum á svæðinu. Álverið í Helgu- vík er gott dæmi um baráttumál sem sjálfstæðismenn hafa staðið þétt á bak við. Var svo komið að eftir undir- búning ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var fjárfestinga- samningur loks samþykktur í apríl 2009. Allir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins greiddu atkvæði með fjár- festingasamningnum. Þá stóð málið vel og allt útlit fyrir að framkvæmdir færu á fullt skrið. Það var því miður fyrir okkur Suður- nesjamenn að í kosningunum árið 2009 komst til valda fólk sem hefur alla tíð haft horn í síðu orkunýtingar og stóriðju, hvort sem er í formi ál- vers eða annars orkufreks iðnaðar. Framhaldið þekkjum við vel. Hindranir voru settar í veg fyrir orkuöflun vegna álversins sem, ásamt öðrum atriðum, hefur tafið málið eins og forstjóri HS Orku fór vel yfir í grein í Morgunblaðinu 10. apríl sl. Enn fremur var ráðist gegn hug- myndum um uppbyggingu á heilsu- tengdri ferðaþjónustu, tafir urðu á uppbyggingu á gagnaveri Verne Glo- bal og sömuleiðis var allt í uppnámi á ríkisstjórnarheimilinu vegna ECA flugverkefnisins. Sjávarútvegurinn og ferðaþjónustan máttu þola óvissu vegna fyrirhugaðra aðgerða ríkis- stjórnarinnar gagnvart þeim greinum og nú í lok þingsins kom berlega í ljós hversu lítill raunverulegur stuðn- ingur við Helguvíkurhöfn var til staðar af hálfu stjórnarflokkana. Þetta eru aðeins nokkur dæmi um hvernig Samfylkingin og Vinstri Grænir hafa haldið á málum á þessu kjörtímabili. Nú berast fréttir af því að í stefnu- skrá Framsóknarflokksins megi finna ályktun sem ef af verður setur orkuöflun fyrir álversframkvæmdir í uppnám. Að HS Orka fái ekki virkj- analeyfi nema fyrir 10 MW virkjanir vegna eignarhalds þess fyrirtækis. HS Orku er ætlað að skapa 150 MW af orkunni til álvers í Helguvík. Þann 27. apríl fáum við Suðurnesja- menn tækifæri til að láta í okkur heyra. Ég hvet ykkur þegar þið gangið til kosninga til að hugleiða hvaða flokkur sé líklegastur til að styðja í raun atvinnuuppbyggingu á svæð- inu. Ég vil sérstaklega nefna álverið í Helguvík, sem er sú framkvæmd sem mun tryggja vel launuð framtíðar- störf fyrir okkur Suðurnesjamenn og hátt í 1000 afleidd störf. Við sjáum vel hvernig álverið á Grundartanga hefur gjörbreytt aðstæðum á Akranesi þar sem atvinnuleysi er lítið og meðal- laun langt yfir meðallagi. Sjálfstæðisflokkurinn mun stuðla að því að verkefnið klárist. Við munum hvetja einkaframtakið áfram og stuðla að uppbyggingu annara atvinnutæki- færa á svæðinu. Nýtum tækifærin – hefjumst handa og sækjum fram! Ragnheiður Elín Árnadóttur Höfundur skipar 1. Sæti á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í Suðurkjördæmi Í tilefni að Grænum apríl ætlar Olís í samvinnu við Reykjanesbæ að gefa hverjum íbúa einn svartan ruslapoka og hvetja þannig til umhverfisátaks helgina 20.-21. apríl nk. Grænn apríl er v e r k e f n i s e m h ó p u r á h u g a - fó l k s u m u m - hverfismál hrinti í framkvæmd í fyrsta sinn árið 2011. Markmiðið er að fá ríkisstjórnina, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að kynna vöru, þekkingu og þjónustu sem er græn og umhverfisvæn og styður við sjálf- bæra framtíð á Íslandi. Aprílmánuður var meðal annars valinn vegna þess að dagur jarðar er haldinn hátíðlegur víða um heim í apríl og hinn íslenski dagur um- hverfisins er einnig í apríl ár hvert. Jafnframt er apríl sá mánuður þar sem Ísland er að vakna af vetrardvala og því tilvalið að takast á hendur verkefni sem snúa að umhverfinu. Tilgangur félagsins er að vinna að því að gera aprílmánuð að grænum mánuði á Íslandi þar sem lögð er áhersla á að kynna og bjóða upp á upplýsingar um þekkingu, vöru og þjónustu sem telst vera græn og um- hverfisvæn. Með sameinuðu átaki er ætlunin að gera umhverfisumræðuna skemmtilega, líflega og kúl fyrir alla Íslendinga. Grænn apríl er átak áhugafólks um umhverfisvernd, grænt atvinnu- líf og leiðtogamöguleika Íslands á sviði sjálfbærni. Með því að sameina kraftana má setja grænar framfarir í sviðsljósið einn mánuð á ári og kynna þannig fyrir almenningi öll þau mikilvægu grænu verkefni, vörur og þjónustu sem í boði eru á Íslandi í dag. Frekari upplýsingar um verkefnið er að finna á www. graennapril.is Laugardaginn 20. apríl nk. geta íbúar Reykjanesbæjar tekið virkan þátt í verkefninu og komið við á þjónustu- stöð Olís - Básinn við Vatnsnesveg, en þar er opið frá kl. 7.30-23.30, og fá þar hver einn svartan ruslapoka. Næst er svo að ganga um hverfið sitt þessa helgi og týna upp ruslið sem á vegi verður, loka pokanum vandlega þegar hann er fullur og skilja eftir við gangstétt eða þann stað þar sem hverfisvinir geta nálgast hann. Mánudaginn 22. apríl nk. tekur þjón- ustumiðstöðin við ábendingum um hvar poka er að finna í síma 420- 3200. Hverfisvinir fara því næst um bæinn og koma pokunum á réttan stað til förgunar. Margar hendur vinna létt verk og munum að þetta er bærinn okkar og ábyrgðin okkar. Kveðja Berglind Ásgeirsdóttir Garðyrkjufræðingur hjá Reykjanesbæ Á vef Víkurfrétta þann 9. apríl er grein eftir Ingva Þór Hákonarson þar sem komið er að málefnum HS Orku. Ég tel að ekki verði hjá komist að svara nokkrum atriðum sem þar koma fram. Ingvi fullyrðir að það að Suður- nesjamenn ráði ekki lengur eigin orkufyrirtækjum hafi seinkað upp- byggingunni í Helguvík. Þetta er ekki á nokkurn hátt rökstutt enda stenst fullyrðingin ekki skoðun. Frá því HS Orka varð til 2008 hafa hluthafar lagt fyrirtækinu til 7,2 milljarða í auknu hlutafé með vilyrði um frekari framlög, komi til fram- kvæmda. Vegna þessa nýja hlutafjár stendur HS Orka vel með yfir 53% eiginfjárhlutfall en án þess væri fyrir- tækið á mörkum þess að brjóta skilmála lánasamninga og þá ekki í stöðu til framkvæmda. Það er þetta nýja hlutafé sem skapar HS Orku möguleika á að ráðast í hugsanlegar framkvæmdir, náist samningar sem tryggja lágmarks arðsemi. Það er öllum held ég ljóst að engra slíkra framlaga hefði verið að vænta frá fyrri eigendum, sveitarfélögum og ríkissjóði, sem allir hafa meira en nóg með að sinna sínum skylduverkefnum. Ætla má sem dæmi að nýjar 150 MW virkjanir kosti um 60 milljarða og að eigið fé þyrfti þá að vera að lágmarki á bilinu 33–40% eða 20–24 milljarðar. Þeir tímar eru liðnir að alfarið sé unnt að fjármagna framkvæmdir eingöngu með lánsfé. Framkvæmdir af þessari stærðargráðu hefðu því ekki verið mögulegar með óbreyttu eignarhaldi. Varðandi ástæður seinkunar í Helguvík bendi ég á grein mína í Morgunblaðinu 10. apríl sem einnig má finna á heimasíðu HS Orku hf (hsorka.is) Ingvi greinir líka frá þeirri stefnu Framsóknar að virkj- anir yfir 10 MW skuli vera í eigu fyrirtækja sem a.m.k. eru að 2/3 hluta í opinberri eigu. Ljóst er að þessu ákvæði er sérstaklega beint gegn HS Orku sem er eina orku- fyrirtækið sem ekki uppfyllir þessi skilyrði. Að halda því svo fram að þetta hafi engin áhrif á hugsanlega bygg- ingu álvers í Helguvík er í besta falli barnaskapur, með slíku ákvæði væri HS Orka nánast dæmd frá verkefninu því fyrirtæki sem ekki fær virkjunarleyfi leysir ekki vandamál þeirra sem þurfa (mikla) orku. Ættu Lands- virkjun og Orkuveita Reykjavíkur (OR) að taka alfarið við verkefninu myndi það væntanlega rýra möguleikana verulega auk þess sem það hlýtur að vera spurning hvort rétt sé að slík uppbygging sé öll á ábyrgð skattgreiðenda eins og á við um rekstur Landsvirkjunar og OR. Til þess að HS Orka kæmist að 2/3 hlutum í opinbera eigu þyrfti einhver opinber aðili að verja a.m.k. 30 milljörðum til kaupa á hlutafé miðað við gengi í síðustu viðskiptum. Til þess að HS Orka gæti afhent 150 MW til álvers í Helguvík þyrfti þá einhver opinber aðili að leggja fram yfir 50 milljarða til hlutafjárkaupa og til fjárfestinga. Hverjum dettur eiginlega í hug að trúa að slíkt geti gerst við núverandi aðstæður a.m.k. Ingvi nefnir síðan fordæmi Norðmanna og það er rétt að þar eru svipaðar reglur í gildi. Þar voru hins vegar ekki til staðar öflug fyrirtæki í greininni sem verið var að svipta möguleika til nýtingar virkjunarkosta sem mikil vinna og fjármunir höfðu verið lagðir í. Má telja víst að slíkar reglur tækju ekki gildi án greiðslu umtals- verðra skaðabóta. Ég held að ég hafi rétt fyrir mér þegar ég segi að í Noregi voru reglurnar settar til að opna á þátttöku einkaaðila í ríkisfyrirtækjum, innan vissra marka, en ekki settar til höfuðs einu eða fleiri orkufyrir- tækjum. Ástæða þess að Norðmenn vildu opna á þessa þátttöku var í meginatriðum tvíþætt. Að fá fjármagn frá einkageiranum til fjárfestinga og svo að það auðveldaði þeim að setja fyrirtækjunum skýrar reglur til að tryggja að eðlileg rekstrarsjónarmið réðu rekstrinum en ekki pólitísk afskipti sem við þekkjum allt of vel hér á landi hjá opinberu fyrirtækjunum. Þær reglur sem Fram- sókn setur fram um tengingu veitingu virkjunarleyfa við eignarhald eru einfaldlega of seint fram komnar, þær hefðu þurft að koma þegar öll fyrirtækin voru í opinberri eigu og forsendur fjárfesta þá ljósar. Júlíus Jónsson Forstjóri HS Orku hf PÓSTKASSINN n Berglind ásgeirsdóttir sKriFAr: n rAgnheiður elín árnAdóttir sKriFAr: n júlíus jónsson sKriFAr: Einn svartur ruslapoki! Klárum verkefnið – tryggjum vel launuð framtíðarstörf HS Orka – eignarhald og möguleikar til fjárfestinga AÐALFUNDUR STARFSMANNAFÉLAGS SUÐURNESJA Verður haldinn fimmtudaginn 2. maí kl. 20:00 á Icelandair hóteli við Hafnargötu í Reykjanesbæ Venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt lögum félagsins. Lagabreytingar Önnur mál Kaffiveitingar Félagar hvattir til að mæta Stjórn STFS VIÐ SÉRHÆFUM OKKUR Í PÍPULÖGNUM STÓR SEM SMÁ VERK Upplýsingar í síma 842 6000 og á netfangið bennipip@simnet.is Benni pípari ehf er í Félagi Pípulagningameistara og er löggiltur pípulagningameistari.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.