Bæjarins besta - 02.08.2007, Síða 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
Fimmtudagur 2. ágúst 2007 · 31. tbl. · 24. árg.
Vestfirðingar
eiga ekki að
láta bjóða sér
hvað sem er
– sjá viðtal í miðopnu við leikarann
Pálma Gestsson sem er Vestfirðingur í
húð og hár, með sterkar skoðanir á
kvótakerfinu og uppbyggingu Vestfjarða
Nemendum
í MÍ fjölgar
Alls eru 307 nemendur
skráðir til náms á haust-
önn við Menntaskólann á
Ísafirði og eru það tölu-
vert fleiri en voru skráðir
á sama tíma í fyrra. Þá
höfðu 280 nemendur skráð
sig í dagskóla um mitt
sumar. Alls bárust 86 um-
sóknir um nýskráningu í
skólann.
Nýnemar úr grunn-
skóla eru 54, sjö koma
með mat úr öðrum skól-
um og 25 endurinnrita sig
eftir hlé frá námi hér.
Lokatölur um fjölda nem-
enda munu þó ekki liggja
fyrir fyrr en í ágúst þar
sem nemendur í kvöld-
skóla og þeir sem eru að
snúa aftur til náms innrita
sig yfirleitt frekar seint.
315 nemendur hófu
nám þegar skólinn var
settur ágúst sl. og þar af
71 nýnemi. Þá fækkaði
nemendum í MÍ um tæp-
lega 13% á milli áranna
2005-2006 samkvæmt
tölum frá Hagstofu Ís-
lands. Enn meiri fækkun
var frá árinu 2004 til
2005, en fyrrnefnda árið
voru 438 nemendur skráð-
ir í MÍ, og 289 það síðara
og er fækkunin 22% á
milli ára. Árið 2004 voru
dagskólanemendur 339
en voru 298 árið 2005.
Menntaskólinn á Ísa-
firði verður settur í 38.
sinn þann 22. ágúst.
Upp á síðkastið hefur nokk-
uð borið á því að rangar upp-
lýsingar til lögreglu- og sjúkra-
flutningamanna hafi valdið
töfum í útköllum, nú síðast
um helgina þegar bifhjólaslys
varð í Dagverðardal. Fyrstu
upplýsingar gáfu til kynna að
slysið hefði verið á Botnsheiði
og fóru lögreglumenn því í
gegnum Vestfjarðagöng. Þetta
var leiðrétt stuttu síðar og
sjúkrabíll fór frá Ísafirði sem
leið lá upp Dagverðardal.
Þá hefur það gerst að minn-
sta kosti í tvígang að sjúkra-
flutningamenn hafa verið kall-
aðir að heimilisfangi á Ísafirði,
þegar neyðin er í samnefndri
götu í öðrum þéttbýliskjarna
Ísafjarðarbæjar. Vilja sumir
meina að vanþekking starfs-
manna Neyðarlínunnar á stað-
háttum valdi þessum mis-
skilningi, en aðspurður tekur
Önundur Jónsson, yfirlög-
regluþjónn Lögreglunnar á
Vestfjörðum, ekki undir þær
raddir. „Þeir sem hringja í
Neyðarlínuna eru skiljanlega
oft í miklu uppnámi og gefa
ekki nógu nákvæmar upplýs-
ingar. Neyðarlínan þarf kann-
ski betur að brýna fyrir fólki
að gefa nákvæmar upplýsing-
ar um staðsetningu, en ég vil
ekki kenna þekkingarleysi
starfsmanna um“, segir Ön-
undur.
Ekki náðist í Þórhall Ólafs-
son, forstjóra Neyðarlínunnar
við vinnslu þessarar fréttar.
Rangar upplýsing-
ar hafa tafið útköll
Stjórn Bakkavíkur í Bol-
ungarvík ákvað á fundi á
föstudag að stoppa rækju-
vinnslu tímabundið meðan
verið er að tryggja vinnslunni
hráefnis til a.m.k. þriggja
mánaða. Þriggja mánaða hrá-
efnisbirgðir eru um það bil
1.500 tonn. Taka því uppsagn-
ir 12 starfsmann gildi nú um
n.k. mánaðamót. Enn eru 14
starfsmenn starfandi í fyrir-
tækinu sem ekki hefur verið
sagt upp. Starfsfólki hefur ver-
ið tilkynnt um þessa ákvörð-
un.
Stjórnendur fyrirtækisins
vonast til að vinnsla geti hafist
að nýju eigi síðar en um næstu
mánaðamót, ef það gengur
eftir þarf að ráða 14-16 starfs-
menn. Í dag er verið að landa
400-450 tonnum af rækju í
Bolungarvík til vinnslu hjá
Bakkavík. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá fyrirtækinu. Í
lok apríl sagði Bakkavík upp
48 starfsmönnum í landvinn-
slu. Ástæða þeirra voru langvar-
andi erfiðleikar í rækjuvinnslu.
Bakkavík hættir
vinnslu tímabundið
Bakkavík í Bolungarvík.