Bæjarins besta - 02.08.2007, Síða 2
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 20072
Ráðist tvisvar á mann á heimili hans
Ráðist var á mann í tvígang á heimili hans á Ísafirði aðfaranótt laugardags. Tveir menn reyndu að
komast í samkvæmi en húsráðandi neitaði þeim inngöngu. Annar aðilinn tók sig þá til og sló hús-
ráðanda í andlitið, en hinn réðist að eiginkonunni og hrinti henni. Að svo búnu fóru mennirnir á braut.
Þeim fannst ekki nóg að gert og mættu aftur á staðinn klukkutíma seinna og réðust aftur að húsráðanda,
börðu og spörkuðu í hann áður en þeir hlupu af vettvangi. Aðfaranótt sunnudags var framin önnur
líkamsárás þar sem ungur maður réðist að enn yngri manni og sló hann í andlitið með flösku. Að því er
fram kemur í dagbók lögreglunnar eru áverkarnir ekki miklir, en verknaðurinn alvarlegur.
Ellefu umsóknir bárust
um starf menningarfulltrúa
Vestfjarða þegar umsóknar-
frestur rann út þann 20. júlí
síðastliðinn. Á fundi Menn-
ingarráðs Vestfjarða þann
24. júlí var ákveðið að leita
til Capacent-Gallup um
frumúrvinnslu umsóknanna.
Mun Capacent taka fyrstu
viðtöl við umsækjendur og
gera tillögu til Menningar-
ráðs um 3-4 hæfustu um-
sækjendur. Það mun svo
koma til kasta ráðsins að
taka ákvörðun um ráðning-
una, líklega í byrjun ágúst.
Um er að ræða fullt starf
sem komið er á fót í kjölfar
nýgerðs menningarsamn-
ings á milli menntamála-
ráðuneytisins, samgöngu-
ráðuneytisins og sveitarfé-
laga á Vestfjörðum. Starfssvið
menningarfulltrúa er dagleg
umsýsla fyrir Menningarráð
Vestfjarða, þróunarstarf í
menningarmálum, efling sam-
starfs á sviði menningarmála
og fagleg ráðgjöf og verkefna-
stjórnun. Gert er ráð fyrir að
umsækjendur séu með háskóla-
próf eða annað sambærilegt
nám sem nýtist í starfi. Að
auki þurfa skipulags- og
stjórnunarhæfileikar umsækj-
enda að vera í góðu lagi.
Þeir sem sóttu um starfið
innan uppgefins umsóknar-
frests eru:
Auður Ágústsdóttir, nemi í
lista og fjölmiðlafræði, Reyk-
javík.
Brynja Bjarnfjörð Magnús-
dóttir, blaðamaður, Reykja-
vík.
Finnbogi Kristjánsson,
fv. fasteignasali, Reykjavík.
Friðrika Benónýsdóttir,
blaðamaður, Reykjavík.
Guðbjörg Halla Magna-
dóttir, kennari, Ísafirði.
Guðrún Svava Guðmunds-
dóttir, BA í mannfræði,
Reykjavík.
Hjördís Garðarsdóttir,
ferðamálafræðingur, Akra-
nesi.
Jón Jónsson, þjóðfræð-
ingur og framkvæmdastjóri,
Steingrímsfirði.
Margrét Ákadóttir, leik-
ari og listmeðferðarfræð-
ingur, Reykjavík.
María Ragnarsdóttir,
kennari, Patreksfirði.
Pjetur Stefánsson, mynd-
listarmaður, Reykjavík.
– smari@bb.is
Ellefu sóttu um starf
menningarfulltrúa
Þórhallur Ólafsson, forstjóri
Neyðarlínunnar hf., segir það
rangt að vankunnátta starfs-
manna sinna á staðháttum á
Vestfjörðum hafi nokkurn
tímann valdið því að útköll
hafi tafist. Að honum vitandi
hafi ekki ein einasta athuga-
semd borist að vestan og segir
hann þessar fréttir koma hon-
um í opna skjöldu.
„Við erum með mjög öflugt
gæðaeftirlit og það er alveg
skýr farvegur fyrir athuga-
semdir af þessu tagi. Ég tek
þetta mjög alvarlega, en að
mér vitandi höfum við ekki
fengið eina einustu athuga-
semd frá aðilum fyrir vestan“,
segir Þórhallur. Segir hann
það varla geta staðist að
sjúkraflutningamenn hafi ver-
ið sendir á heimilisfang í vit-
lausum bæjarkjarna. „Þegar
hringt er úr föstum síma í
Neyðarlínuna birtist blár blett-
ur á korti sem sýnir nákvæm-
lega hvaðan er hringt. Sé
hringt úr GSM síma, fáum
við upplýsingar um það úr
hvaða sendi hringingin kemur
og fáum grófa stefnu út frá
sendinum. Um leið og það
gerist skilgreinir tölvuforrit
sjálfkrafa hvaða viðbragðsað-
ilar sinna þessu svæði. Svo
boðum við sjúkrabíl og send-
um upplýsingar til Fjarskipta-
miðstöðvar lögreglu.“
Neyðarlínan hefur sem
kunnugt er opnað starfstöð á
Akureyri og aðspurður segir
Þórhallur það vel koma til
greina að koma upp starfsemi
á Vestfjörðum. „Það hefur
komið til umræðu og málið
hefur verið rætt með Birnu
Lárusdóttur, bæjarfulltrúa á
Ísafirði. Málið er á umræðu-
stigi, en það er mjög mikil-
vægt að það séu aðilar á svæð-
inu sem halda utan um boðun
og viðbragðsáætlanir og sjái
um upplýsingar í gagna-
grunni“, segir Þórhallur.
Sjá einnig frétt á baksíðu.
– halfdan@bb.is
„Höfum við ekki fengið
eina einustu athugasemd“
Þennan dag árið1969 sprakk vitinn á Gjögurtá við Eyjafjörð
í loft upp þegar nýlokið var að endurnýja gasbirgðirnar.
Tveir menn voru hætt komnir. Þennan dag árið 1988 fórst
kanadísk flugvél í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli. Hún skall
til jarðar aðeins fimmtíu metrum sunnan Hringbrautar. Þrír
menn létust.
Dagurinn í dag
2. ágúst 2007 –214. dagur ársins
Elías ráðinn
til Vesturferða
Á fundi stjórnar Vestur-
ferða á mánudag var ákveð-
ið að fela stjórnarformanni
að ganga til samninga við
Elías Oddsson um að hann
verði ráðinn framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofunnar.
Gylfi Ólafsson, sem
gegnt hefur starfinu síðan
á vordögum 2006, heldur
til Spánar til starfa og
náms í byrjun október. Elí-
as mun hefja störf á næstu
vikum og vinna samhliða
Gylfa fram að framkvæmda-
stjóraskiptunum, sem munu
verða 1. október.
Elías Oddsson er borinn
og barnfæddur Ísfirðing-
ur, fæddur 1. desember
1956. Hann er iðnfræð-
ingur að mennt, en er á
lokasprettinum í viðskipta-
fræði við Háskólann á Ak-
ureyri á ferðamálasviði.
Gylfi Ólafsson er grunn-
skólakennari B.Ed. frá
Háskólanum á Akureyri
og starfaði hjá Vesturferð-
um meðfram skóla þangað
til hann tók við rekstri fyr-
irtækisins.
Vesturferðir voru stofn-
aðar 1993 og hafa æ síðan
unnið að markaðssetningu
og þróun ferða um Vest-
firði, með megináherslu á
Vigur, Hornstrandir og
stór-Ísafjarðarsvæðið. Þá
er móttaka skemmtiferða-
skipa snar þáttur í rekstri
skrifstofunnar.
Framkvæmdastjóri er
einn starfsmanna yfir vet-
urinn, en hefur að jafnaði
3 starfsmenn sér til full-
tingis yfir sumartímann,
auk þess að vera með leið-
sögumenn og annað lausa-
fólk á sínum snærum.
Það stingur í augun að
sjá báta í misjöfnu ásig-
komulagi við hafnarkant-
inn sem skemmtiferðaskip-
in leggjast upp að. Guð-
mundur M. Kristjánsson,
hafnarstjóri Ísafjarðar-
bæjar, segir að bátarnir
séu hluti að því að búa í
útgerðarbæ. „Einhvers
staðar verða þeir að vera.
Fólk man kannski að þeir
voru ofar en það var fund-
ið að því“, segir Guð-
mundur. Hann segir að
það megi alltaf deila um
hvort að betri staðir séu
til. „Reyndar held ég að
farþegar skemmtiferða-
skipa þoli að sjá út á hvað
lífið gengur í sjávarplássi.“
Ísafjarðarhöfn hefur ekki
leyfi til að farga bátum, þó
þeir líti illa út og séu jafn-
vel óhaffærir og líta út eins
og hvert annað drasl. „Við
rukkum fyrir þetta svo-
kölluð uppsátursgjöld og
það eru tekjur fyrir höfn-
ina.“ Bent hefur verið á
að bátarnir gætu verið á
Suðurtanga en Guðmund-
ur segir að vegurinn þang-
að þoli ekki umferð stóra
lyftarans sem er notaður
til að flytja þessa báta.
– smari@bb.is
Ferðamenn þola að sjá út á
hvað lífið gengur í sjávarplássi
Bátar í misjöfnu ástandi og ýmiskonar drasl blasa við ferðamönnum skemmtiferðaskipa.