Bæjarins besta - 02.08.2007, Síða 3
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2007 3
Annríki hjá lögregl-
unni á Vestfjörðum
Níu umferðaróhöpp
voru tilkynnt til lögregl-
unnar á Vestfjörðum í
síðustu viku. Á tólfta tím-
anum á föstudagskvöld
var tilkynnt til lögreglu
um að bifreið hafi verið
ekið á gám á athafnasvæði
Eimskipa á Ísafirði og
ökumaðurinn væri stung-
inn af. Lögreglan leitaði
ökumannsins og hafði
upplýsingar um hvern var
að ræða. Síðar um nóttina
gaf ökumaður sig fram og
reyndist vera ölvaður.
Viðurkenndi hann að hafa
verið drukkinn er hann ók
á gáminn. Ökuskírteini
hans var þá rétt rúmlega
mánaðar gamalt.
Á laugardagsmorgun
var tilkynnt um bifreið
utan vegar í Tálknafirði og
líklegur ökumaður á
hlaupum um tún við
sveitabæ þar skammt frá.
Lögreglumenn handtóku
konu rúmlega fimmtuga,
þar sem hún lá á túninu en
hún var grunuð um að
vera ölvuð við akstur. Á
laugardag datt maður af
mótorhjóli þar sem hann
var á ferð á gömlu Breiða-
dalsheiðinni við vegamótin
að Botnsheiði. Meiddist
hann í baki, en ekki er tal-
ið að um alvarleg meiðsli
sé að ræða. Á miðvikudag
hjólaði barn á bifreið á
gatnamótum Túngötu og
Hallabrekku á Ísafirði.
Meiðsli barnsins voru
minni háttar.
Í vikunni var ekið á
lamb á Djúpvegi við Arn-
ardal, annað lamb úti á
Arnarnesi og það þriðja
við brúna yfir Þorska-
fjarðará. 14 ökumenn voru
kærðir fyrir of hraðan
akstur í umdæmi lögregl-
unnar á Vestfjörðum í
vikunni. Einn þessara öku-
manna var sviptur öku-
rétti en hann ók bifreið
sinni á 80 km á klst. þar
sem 35 km á klst. er
leyfður.
Olíuhreinsistöð: Lóðir í Arn-
arfirði og Dýrafirði skoðaðar
Fjórðungssamband Vest-
firðinga er að láta skoða tvær
lóðir vegna hugsanlegrar olíu-
hreinsistöðvar á Vestfjörðum,
annars vegar í landi Hvestu í
Arnarfirði og hinsvegar í landi
Sanda og Hóla í Dýrafirði, en
jarðirnar Sandar og Hólar eru
samliggjandi og eru Sandar í
eigu Ísafjarðarbæjar. Þetta
kom fram í Morgunblaðinu í
síðustu viku. Aðalsteinn Ósk-
arsson, framkvæmdastjóri
Fjórðungssambandsins, sagði
að einungis væri um forat-
hugun að ræða. Hann sagði
að engar stóriðjulóðir hefðu
til þessa verið skilgreindar á
Vestfjörðum. Stóriðjunefnd
hefði á sínum tíma sneitt hjá
landshlutanum.
Þegar hugmyndir um olíu-
hreinsistöð voru kynntar í vor
sem leið hefði ver leitað til
stjórnvalda um fjármagn til
að kosta leið að mögulegum
lóðum fyrir slíka starfsemi. Í
upphafi komu til greina þrír
staðir í Arnarfirði og tveir í
Dýrafirði. Eftir forakönnun
var leitað til fjögurra landeig-
enda um hvort þeir vildu láta
land af hendi undir stóriðnað.
Landeigendur Hvestu annars
vegar og Sanda og Hóla hins-
vegar lýstu vilja til frekari við-
ræðna, ef af yrði, og því eru
þær lóðir skoðaðar nú.
Aðalsteinn sagði að meðal
annars yrði kannað hvort forn-
minjar, náttúruvættir, gróður-
far eða dýralíf kynnu að hindra
leyfisveitingar eða fram-
kvæmdir á umræddum lóðum.
Lóðirnar voru aðallega valdar
með tilliti til stærðar og legu
landsins. Talið er að olíuhreinsi-
stöð þurfi að minnsta kosti
1,6 ferkílómetra stóra lóð og
þarf landið að vera nokkuð
flatt. Þá verða gerðar dýptar-
mælingar fyrir landi lóðanna
í ágúst næstkomandi vegna
hafnarmannvirkja fyrir slíka
starfsemi. Jafnframt verður
unnin skýrsla um samfélags-
leg áhrif stórfyrirtækis á Vest-
fjörðum. Þar verður meðal
annars safnað upplýsingum
um samfélagsgerð, samgöng-
ur og fleira í þeim dúr.
Aðalsteinn sagði að eftir
þessa skoðun mundi Fjórð-
ungssambandið að minnsta
kosti eiga skýrslu um mögu-
legar lóðir undir stóriðnað.
Konráð Eggertsson, hrefnu-
veiðimaður á Ísafirði, segir
að sínu mati megi þeir sem
segjast frekar vilja svelta en
að fá olíuhreinsistöð á Vest-
firði bara svelta. Konráð segist
taka undir með Flosa Jakobs-
syni, útgerðarmanni í Bolung-
arvík, í grein sem birtist í
síðasta BB þar sem hann segir
tal þeirra bæjarfulltrúa sem
mæla á móti olíuhreinsistöð
vera ábyrgðarlaust.
„Ég vil segja við þá sem eru
á móti olíuhreinsistöð að þeir
hljóta að vera öruggir með
vinnuna sína og hugsa ekki til
hinna. Ég vil spyrja þá sem
eru á móti fyrirhugaðri stöð
hvort þeir ætli að hætta að
nota bíla og flugvélar eða ekki.
Hver á þá að hreinsa olíuna
eftir þá og hvar á að skilja
eftir mengunina. Ég vil koma
þeim skilaboðum til Ómars
Ragnarssonar og Hermanns
Gunnarssonar að láta okkur á
Vestfjörðum í friði, ef þeir
vilja stoppa það að við fáum
atvinnu til okkar skuli þeir
flytja til okkar fyrst“, segir
Konráð.
Konráð vill einnig minnast
á þáttinn „Í vikulokin“ sem
sendur var út hjá Svæðisút-
varpinu á Ísafirði á dögunum
þar sem Anna Guðrún Ed-
vardsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar í Bolungarvík, Gylfi
Ólafsson, framkvæmdastjóri
Vesturferða á Ísafirði og Þór-
hallur Arason, nýsköpunar- og
þróunarstjóri Vísis á Þingeyri
spjölluðum meðal annars um
það hitamál sem olíuhreinsi-
stöðin er. „Anna og Gylfi
komu mjög málefnalega fyrir
en ég vil spyrja Þórhall sem
sagðist hafa mjög gaman af
því að keyra út um allt land
hver eigi að hreinsa upp skít-
inn sem af því hlýst. Hann
sagði í þættinum að hann væri
ekki öfgamaður eða aftur-
haldsseggur en ég segi að hann
sé bæði. Að mínu mati mega
þeir sem lýsa því yfir að þeir
vilji frekar svelta en að fá olíu-
hreinsistöð skuli bara gera
það.“ – thelma@bb.is
„Hver á að hreinsa upp olíuna eft-
ir andstæðinga olíuhreinsistöðvar“
Konráð Eggertsson hrefnuveiðimaður á Ísafirði.