Bæjarins besta - 02.08.2007, Qupperneq 8
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 20078
Á þriðja hundrað ungra knatt-
spyrnumanna tóku þátt
Rúmlega tvö hundruð ungir knattspyrnumenn tóku
þátt í árvissu Vestfjarðamóti Sparisjóðs Bolungarvíkur
og Ungmennafélags Bolungarvíkur um helgina. „Ég er
mjög ánægð með það hvernig til tókst“, segir Sólveig Sig-
urðardóttir, formaður UMFB. „Allt gekk eftir áætlun,
okkur leist ekkert á veðrið til að byrja með en það rættist
úr því og við fengum sól um leið og útidansleikurinn byrj-
aði.“
Þátttakendur voru í 4. til 7. flokki karla og kvenna og
komu frá Borgarnesi, Bolungarvík, Ísafirði, Súðavík og
Suðureyri. Ungmennafélagið Skallagrímur hlaut flest verð-
laun en allir keppendur fengu viðurkenningu fyrir þátttök-
una. „UMFB fagnar 100 ára afmæli í ár og af því tilefni
vorum við með veglegri verðlaun en vanalega og reyndum
að gera meira úr þessu. Það voru allir mjög ánægðir með
hvernig til tókst og þau frá Borgarnesi sem höfðu ekki
komið í nokkur ár sögðust ætla að koma aftur að ári“,
segir Sólveig.
Foreldraráð yngri flokka knattspyrnu UMFB hefur veg
og vanda af mótshaldinu og Sparisjóður Bolungarvíkur er
aðalstyrktaraðili mótsins. Meðfylgjandi myndir af mótinu
tók Sigurjón J. Sigurðsson. – thelma@bb.is