Bæjarins besta - 02.08.2007, Side 15
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2007 15
Blaðamaður
Blaðamaður óskast til starfa á Bæjarins
besta og bb.is frá og með 1. september nk.
Viðkomandi þarf að búa yfir góðri íslensku-
kunnáttu, vera vinnusamur og lipur í sam-
skiptum. Þarf að hafa góða almenna þekk-
ingu, einkum á því sem við kemur Vestfjörð-
um.
Uppl. gefur Sigurjón í síma 456 4560.
Ísfirskir skátar á alheimsmóti
Hópur félaga úr skátafélaginu Einherjar – Valkyrjan á Ísafirði
hélt til Englands í síðustu viku til að taka þátt í alheimsmóti skáta
sem haldið er í Highland Park, norðaustan við London. Mótið
stendur í um tvær vikur, frá 27. júlí til 8. ágúst. „Við erum tólf
sem förum saman“, segir Ágúst Arnar Þráinsson, skáti. Alls fara
um 420 íslenskir skátar á alheimsmótið og er hópur Íslendinga
þegar kominn á staðinn til að undirbúa komu landa sinna.
Gestum fjölgar hjá Mánafelli
Töluverð aukning hefur verið á gistinóttum hjá íbúðargistingunni Guesthouse Mánafell í
Bolungarvík frá því að starfsemi hófst í fyrra. Að rekstrinum stendur Arndís Hjartardóttir
og dætur hennar fimm; Guðrún Benný, Elísabet, Ingibjörg, Arndís og Sigríður Ágústa.
Allar íbúðirnar eru staðsettar í Stigahlíð og voru flestar þeirra keyptar af Bolungar-
víkurkaupstað en tvær voru í einkaeigu. Konurnar réðust í miklar endurbætur á hús-
næðinu og nú eru fimm íbúðir leigðar út í skammtímaleigu en allar hinar eru leigðar út til
langs tíma. Arndís býður bæði upp á uppábúin rúm og svefnpokagistingu.
hverjir ekki haft tækifæri til
að sækja formlegt nám í
sínu fagi ýmist vegna þess
að það hefur ekki verið í
boði verið of kostnaðarsamt
eða hreinlega bara vegna
þess að þeir hafa ekkert
ætlað út í það sem þeir eru
að gera, heldur hafa ílengst
við það. Þess í stað hafa
margir starfað tímabundið
við leikhús erlendis til að
leita sér að þekkingu en
námið sem ég til með að
taka skilar mér B.A. gráðu
sem að sýnir svart á hvítu að
ég er búinn að fara í gegnum
ákveðna þjálfun. Inni í þessu
er allt frá praktískum lær-
dómi um öryggisatriði og
almennar starfsvenjur og
vinnuferli, yfir í listrænu
hliðina, hönnun, litateoríur
og ýmiskonar tilraunastarf-
semi. Mjög margir þekktir
leikarar hafa sótt Central:
Judy Dench, Rupert Everett,
Carrie Fisher, Gael Garcia
Bernal, Kathleen Turner og
Laurence Olivier. Þetta er
flottur listi og hann er lengri.
Ég gerði mér eiginlega ekki
grein fyrir því fyrr en nú
nýlega hversu margir virtir,
þekktir og virkilega góðir
leikarar koma úr þessum
skóla. Mér finnst svolítið
magnað að fá tækifæri til að
snerta við þeim anda og
þeim grunni sem menntun
þeirra byggir á.“
–Hvað er þetta langt nám?
„Námið er þrjú ár en
vegna reynslu minnar hjá
Þjóðleikhúsinu og Borgar-
leikhúsinu hafa skólayfir-
völd boðist til að stytta
námið niður í tvö ár. Ég
mun samt skoða það nánar
þegar ég kem út og skólinn
getur metið kunnáttu mína.
Ég veit þó að mörg af náms-
markmiðum fyrsta árs hef ég
þegar uppfyllt í starfi mínu
hjá stóru leikhúsunum. Er-
lendis eru þó gerðar mun
strangari kröfur um hvernig
hlutirnir eru unnir. Þar eru
viðhafðar starfsvenjur ólíkar
þeim sem tíðkast hérlendis
enda færra starfsfólk og
aðrar aðstæður hér heima.
Það kemur því bara í ljós
hvernig skólinn metur vinnu
mína.“
–Heldurðu að þú hafir
fengið einstök tækifæri
innan ljósabransans,
komandi úr svona litlu
samfélagi þar sem þú gast
fljótt unnið þig upp?
„Myndirnar frá þeim sýn-
ingum sem ég lýsti á Ísa-
firði, félagsstarfið sem ég
tók þátt í og tækifærin sem
ég fékk í kjölfarið komu mér
inn í þennan skóla. Ekki
bara reynslan úr stóru leik-
húsunum. Það er hinsvegar
frekar sjaldgæft að hafa
National Theatre á feril-
skránni og það þykir góður
pappír erlendis. Smæð Ísa-
fjarðar og Íslands hafa gert
mér það kleift að grípa
ákveðin tækifæri sem bjóð-
ast ekki hverjum sem er úti í
heimi og ég er þakklátur
fyrir það. Mér skilst að ár-
lega sæki um 200 manns um
að komast í ljósahönnun við
Central en aðeins 6-8 hleypt
inn. Ég held að þarna úti
finnist þeim spennandi að
vera með einhvern frá svona
litlu landi eins og Íslandi.“
–Hvernig kom það til
að þú valdir þennan
tiltekna skóla?
„Ég var búinn að skoða
skóla sem kenna ljósahönn-
un í nokkurn tíma, þar á
meðal í Finnlandi, auk þess
sem ég var búinn að hug-
leiða að fara til hinna Norð-
urlandanna. Ég endaði inni á
síðu þar sem hægt er að
sækja um í öllum skólum á
Bretlandi. Þar leitaði ég eftir
námskeiðum sem ég hafði
áhuga á að taka og þessi
skóli kom upp. Ég hafði
skoðað þennan skóla þegar
ég fór fyrst að svipast um
eftir námi í ljósahönnun,
fyrir 4-5 árum síðan.“
– Hvenær ferðu til Lundúna?
„Ég fer út nú í haust, skól-
inn hefst 1. október, en ég
geri ráð fyrir að fara út þegar
í september. Ég er þegar
farinn að svipast um eftir
íbúð og það eru nokkrir skó-
kassar og kústaskápar sem
eru í sigtinu,“ segir Frið-
þjófur glettnislega. „Menn
verða að vanda valið og
stökkva ekki á það fyrsta
sem býðst. Kærastan mín,
Kristín Halla Kristinsdóttir
ætlar að koma með mér út
og hún hefur verið að leita
að íbúðum með mér. Hún
lýkur B.A. gráðu frá Há-
skóla Íslands nú í haust og
stefnir að fá sér vinnu úti
fyrst um sinn en hyggst svo,
þegar fram líða stundir,
sækja nám þarna í sínu
fagi.“
– Eitthvað hlýtur svona
nám að kosta, ekki satt?
„Jú, þetta er frekar dýrt
nám, árið kostar 12.000
pund fyrir þá sem búa utan
Bretlands, eða tæpa 1,5
milljón króna. Lánasjóður
íslenskra námsmanna lánar
ekki fyrir þessu nema að
hluta til og er það reyndar
ný tilkomið þ.e. lán fyrir
skólagjöldum grunnnáms og
ég fæ lánað fyrir um helm-
ingi kostnaðarins frá LÍN.
Restina ætla ég mér að töfra
fram með því að herða sult-
arólina auk þess sem Spari-
sjóður Vestfjarða hefur
boðið mér góða þjónustu til
að ég geti látið drauminn
rætast. Einnig hef ég biðlað
til fyrirtækja og sjóða og
reynt að fá styrki. Ég vona
að tekið verði vel í það, sér-
staklega með tilliti til þess
hvað vantar marga í stéttina
hér heima.“
– Er ekkert mál að fá
vinnu sem ljósahönnuður á
Íslandi, ákveðir þú að snúa
aftur heim að námi loknu?
„Það hefur orðið mjög lítil
endurnýjun í bransanum hér
á landi síðustu árin. Ég held
ég sé ekki að ljúga mikið
þegar ég segi að það hafi
engin endurnýjun orðið síð-
ustu 10 árin, hvort sem það
er í ljósahönnuninni eða
leikmyndahönnun. Hönnuð-
irnir heltast síðan úr lestinni
eftir því sem þeir eldast –
sérstaklega með síauknum
hraða í tækninýjungum – og
eftir sitja fáir hönnuðir um
margar sýningar. Það er í
sjálfu sér mannekla í þessum
bransa í dag og mun vænt-
anlega aukast. Byggingu
tónlistarhúss í Reykjavík á
að vera lokið ári eftir að ég
kem úr námi, nema ég fram-
lengi dvöl mína eitthvað.
Áform um að byggja óperu-
hús eru líka á teikniborðinu
sem kemur til með að valda
enn meira framboði á störf-
um. Ljósadeildin í óperunni
í dag samanstendur af einum
manni, en það kæmi vænt-
anlega til með að breytast.
Ég er bjartsýnn á að snúa
heim en tilhugsunin um að
starfa við leikhús erlendis
heillar líka. Þá langar mig að
bæta við mig menntun og
vona að það verði til þess að
ég finni eitthvað við mitt
hæfi. Annars er gaman að
hugsa til þess að Ísfirðingar
geta státað af leikurum, leik-
stjórum, dönsurum, hljóð-
færaleikurum og söngvurum
sem hafa starfað við at-
vinnuleikhúsin og því ekki
leiðinlegt að bætast í þá
flóru sem hönnuður fyrir
leiksvið.“ – tinna@bb.is