Bæjarins besta - 02.08.2007, Qupperneq 16
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 200716
STAKKUR SKRIFAR
Minnumst Einars Odds
Stakkur hefur
ritað vikulega pistla í
Bæjarins besta í mörg
ár. Skoðanir hans á
mönnum og málefn-
um hafa oft verið
umdeildar og vakið
umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara
saman við skoðanir
útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera
ábyrgðarmenn
blaðsins ábyrgð á
skrifum Stakks á
meðan hann notar
dulnefni sitt.
Nýr leikmaður til KFÍ
Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar hefur gert samning við amer-
ískan leikmann að nafni Chris Isom. Hann lék með East Tex-
as Baptist í Texas í vetur og var með 22.2 stig og 10.3 stig í
leik. „Þetta er fjölhæfur drengur sem kemur til með að falla
vel að leik KFÍ og bjóðum við hann velkominn“, segir á vef
KFÍ. Þess má til gamans geta að um er að ræða tvíbura-
bróður Cedric Isom sem leikur hjá Þór Akureyri í vetur.
Þurrkur tekur toll af berjasprettunni
Útlit er fyrir að ber spretti í fyrra fallinu í ár en hætta er að sprettan verði lítil
vegna langvarandi þurrka sem hafa verið í sumar. Garðyrkjufræðingurinn Ásthildur
Cesil Þórðardóttir á Ísafirði, segir að raka þurfi meðan sætukopparnir eru að
myndast til að spretta verði góð. Því myndi ekki duga til þó færi að rigna hressilega
það sem eftir er sumars. „Það er þó nóg af stöðum þar sem raki er í jörðinni og
aðstæður þannig að þar verður ágæt spretta þrátt fyrir þurrk. En á melum og á
þurrari svæðum er hætta á að sprettan verði ekki góð“, segir Ásthildur.
Hefur ekki trú á að fólk flykkist
til Vestfjarða til að vinna í stóriðju
Grímur Atlason, bæjarstjóri
Bolungarvíkur, svarar áskor-
un sveitunga síns, Flosa Jak-
obssonar, á bloggsíðu sinni,
en í síðasta blaði gagnrýndi
Flosi sveitarstjórnarmenn sem
tala gegn olíuhreinsistöð fyrir
að benda ekki á neitt annað
sem gæti komið í staðinn.
Grímur hefur ekki trú á að
fólk flykkist til Vestfjarða til
að vinna í stóriðju og spyr
hver eigi að vinna þar. Hann
spyr einnig hvert eigi að vera
hlutverk landsbyggðarinnar í
framtíðinni. Hann veltir því
einnig upp hvort það sé eftir-
sóknarverð framtíðarsýn að
stjórnsýslan, fjármálageirinn,
menntastofnanir, sprotafyrir-
tækin, svo fátt eitt sé nefnt,
verði fyrir sunnan og stóriðjan
á landsbyggðinni.
Grímur bendir á eitthvað
annað, eins og hann kallar það
og segir lykilatriðin vera
ferðaþjónustu, menntamál,
samgöngur, heilbrigðismál og
landbúnað. Grímur nefnir
Hornstrandir, Látrabjarg og
Rauðasand sem þekkt svæði
á alþjóðavettvangi og segir
þau búa yfir gríðarlegum
möguleikum. Hann kemur
með þá hugmynd að stofna
deild í ferðmálfræðum við deild
Háskóla Íslands á Ísafirði.
Bæjarstjórinn setur spurn-
ingamerki við uppbyggingu
hátæknisjúkrahúss í Reykja-
vík og segir að á landsbyggð-
inni séu reknar litlar hag-
kvæmar einingar sem beri að
efla. Þá sé rekstrarvandi öldr-
unarheimila á höfuðborgar-
svæðinu vel þekktur, mikil
starfsmannavelta, yfirfull
heimili og segir Grímur það
vera góða mótvægisaðgerð að
efla hjúkrunarheimili á lands-
byggðinni.
Nauðsynlegt er að byggja
upp öflugt háskólasamfélag á
Vestfjörðum, að mati Gríms.
Veiðafærarannsóknir og rann-
sóknir á Norður Atlantshafi
eru kjörin vettvangur fyrir
háskóla og segir Grímur þessi
tvö svið vera vettvang fyrir
heilan háskóla. Grímur nefnir
einnig að iðnháskóli og lista-
háskóli eigi vel heima fyrir
vestan. „Háskólasamfélagi
fylgja fjölmörg afleidd störf
og mun eftirsóknarverðari en
þau sem olíuiðnaðurinn út-
vegar“, segir í færslu Gríms.
Stórefla þarf samgöngur,
bora í fjöll og lengja flug-
brautir til að efla samkeppnis-
hæfni Vestfjarða. Fjarskipta-
mál og dreifing raforku á
Vestfjörðum þarf að efla, segir
Grímur. Með því má auka ör-
yggi og stöðugleika í gagna-
flutningi og segir Grímur það
vera nokkuð sem hefur mikla
þýðingu í nútíma samfélagi.
Fjarvinnsla, gagnageymsla,
uppbygging menntastofnana
og fyrirtækja almennt byggir
á því að þessi atriði séu í lagi.
Grímur sér sóknarfæri í
landbúnaði. Vestfirskt fé hafi
ekki sýkst af riðu- og garna-
veiki svo vitað sé og sér Grím-
ur verðmæti í því sem hægt sé
að nýta. Hægt er að fullvinna
slóg á Vestfjörðum og nota
það til áburðar og skapa hina
hreinu grænu ímynd. Að lok-
um segir Grímur: „Tækifærin
eru fjölmörg og þau eru vendi-
punkturinn. Það er ljóst og þau
verður að skoða áður en hlaup-
ið er á eftir patentlausnum.“
Sjálfvirkt tilkynningakerfi
í alla sjóstangaveiðibáta
Búið er að koma fyrir
sjálfvirku tilkynningakerfi
í öllum sjóstangaveiði-
bátum Hvíldarkletts ehf. á
Suðureyri. Elías Guð-
mundsson, framkvæmda-
stjóri Hvíldarkletts, segir
að tækin auki öryggi
stangaveiðimannanna til
muna. Í þar síðustu viku
hófst leit að einum báta frá
fyrirtækinu en ekkert
hafði spurst til hans í ein-
hvern tíma. Ekkert amaði
þó að. Að sögn Elíasar
voru tækin ófáanleg þar til
nú og komu tækin beint
frá framleiðanda.
Öll vinna við tækin er
lokið af hálfu Hvíldar-
kletts og bjóst Elías við að
búið yrði að skrá þau í
tilkynningarkerfið í síð-
ustu viku. Sjálfvirkt til-
kynningarkerfi (STK)
fyrir íslensk fiskiskip, 24
metrar og styttri, var tekið
í notkun í maí árið 2000. Í
fyrstu var það rekið af
Slysavarnafélagsins
Landsbjörgu samkvæmt
samningi á milli sam-
gönguráðuneytisins og
Landsbjargar sá það síð-
arnefnda um rekstur og
framkvæmd sjálfvirku
tilkynningarskyldunnar.
Síðar tók Landhelgisgæsl-
an yfir rekstur kerfisins.
Kerfið nýtir sér fjar-
skiptatækni við að flytja
sjálfvirkt upplýsingar um
staðsetningu skipa og báta
til Vaktstöðvar siglinga
sem rekin er af Landhelg-
isgæslunni. Staðsetningar
eru fengnar í gegnum
GPS-staðsetningarkerfið.
Stærri skipin tilkynna sig
á 12 tíma fresti en minni
bátar og skip tilkynna sig
sjálfvirkt á 15 mínútna
fresti. Í dag eru tæplega
1.500 skip í vöktun. Loftnet tækisins komið fyrir á einum báta Hvíldarkletts. Mynd: Þorgeir Baldursson.
Athygli vekur hve margir þjóðþekktir karlar og konur hafa minnst Einars
Odds Kristjánssonar alþingismanns frá Flateyri. Engan þarf að undra. Þótt
ekki færi Einar Oddur hátt eða með látum vissu þeir sem til þekktu, að verka
hans sá víða stað og mun svo verða um langa hríð. Vel á annað þúsund
manna vottuðu honum virðingu sína í Hallgrímskirkju 25. júlí síðastliðinn
og margir komu vestur á Flateyri til að fylgja honum síðasta spölinn. Það er
eiginkonu, börnum og fjölskyldu huggun að vita af þessari miklu samstöðu
í íslensku samfélagi.
En hvernig er verður Einars Odds og hans merka framlags til stjórnmála
og þjóðlífs á Íslandi best minnst? Það var afar vel til fundið hjá Morgunblað-
inu að birta hið ágæta síðasta viðtal úr BB við Einar Odd. Hann birtist, eins
og áður hefur verið að vikið, sem einlægur landsbyggðarmaður, sterkur
karakter, sem gerði sér glögga grein fyrir þörf samfélagsins fyrir fjölbreytni.
Landsbyggðin, hagur hennar og staða skiptu Einar Odd miklu. Hann
haggaðist ekki svo í stormum sinnar samtíðar að gleyma því að fólk býr víð-
ar en á þeim svæðum sem bera póstnúmer er hefjast á tölustöfunum 1 og 2.
Kjarni máls hans var sá, að þjóðin hefði ekki gott af því að byggð legðist af
utan nefndra pósthólfa.
Nú reynir á það að þeir, sem hafa af heilum hug vottað hinum látna tals-
manni landsbyggðar á Íslandi virðingu, sýni í verki að alvara fylgi því þegar
rætt hefur verið um framlag hans til íslensks samfélags. Fremstir fara for-
svarsmenn á Alþingi og í ríkisstjórn. Þar gerast hlutirnir, því að þeir eiga
þátt í stefnumótuninni og taka ákvarðanir sem skipta líf fólks utan pósthólf-
anna öllu um leið og kreppir að lífskjörum þess vegna aflaleysis í kjölfar
kvótaminnkunar.
Vitað er að Einari Oddi var mikið áhugamál að bæta kosti til menntunar
á öllu landinu, ekki bara í pósthólfunum og nágrenni þeirra. Þá verður þörf
nýrrar hugsunar. Forráðamenn Íslendinga fá nú tækifæri til að sýna kjark og
þor og brjóta nýtt land á akri menntunar á Íslandi. Hverja skoðun sem fólk
hefur á því að setja á fót hvern háskólann á fætur öðrum er ljóst að menntun
er lykill að betri framtíð. Það hefði Einar Oddur viljað. En meira þarf til.
Skapa þarf kosti til að samfélag fái þrifist með fjölbreyttum hætti um allt
Ísland.
Háskólamenntun er ein leið, ekki endilega í því formi að setja á stofn
hvern smáháskólann á fætur öðrum, heldur með því að skapa færi á því að
akademísk menntun og umhverfi fái þrifist á fleiri stöðum en í áður nefnd-
um pósthólfum. Þá fylgir meira á eftir.