Bæjarins besta - 02.08.2007, Page 18
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 200718
Mannlífið
Netspurningin er birt vikulega
á bb.is og þar geta lesendur látið
skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar
eru síðan birtar hér.
Blogg Ólínu Þorvarðardóttur
http://olinathorv.blog.is/olinathorv/
„Þá er sumardaginn tekið að stytta á ný. Það er svolítið sérstök tilfinning þegar aftur fer að
húma á kvöldin og götuljósin kvikna. Sjálf fæ ég alltaf einhver fiðring þegar skyggja tekur – þá
víkur náttúrubarnið innra með mér smám saman fyrir borgarbarninu. Mér finnst haustið vera
tími borgarlífs - á sama hátt og vorið og sumarið laða mann til fundar við náttúruna. Sé ég ekki
stödd í borginni þegar húma tekur á kvöldin verður mér yfirleitt hugsað til hennar.“
Smáauglýsingar
Til sölu er fallegt og vel með
farið Hyundai píanó. Upplýsing-
ar í síma 897 6733.
Vel með farið en ódýrt götuhjól
óskast fyrir fullvaxta karlmann.
Uppl. í síma 693 3916.
Til sölu eru hestar frá Lauga-
bóli við Ísafjarðardjúp. Hross á
ýmsum aldri m.a. nokkur þriggja
vetra tryppi. Fjölbreyttir litir.
Einnig eru til sölu þurrheysrúll-
ur. Uppl. í síma 456 4849 eða
553 7368.
Vegna flutninga eru til sölu fjór-
ir eldhússtólar og nýr, vandað-
ur amerískur svefnsófi. Uppl. í
síma 869 6071.
Til sölu er tengdamömmubox
sem tekur 50 kg. Upplýsingar í
síma 866 0571.
Til sölu eru 6 og 9 vetra gamlar
hryssur. Uppl. í síma 846 7477.
Til sölu er úrvalsgott rúlluhey.
Uppl. í síma 895 4115.
Til sölu er hillusamstæða og
sófaborð. Uppl. í síma 663 7375.
Til sölu er barnakerra. Verð kr.
10 þús. Uppl. í síma 663 9736.
Til sölu er Coleman Sedona, 9
feta fellihýsi með gasmiðstöð
og nýrri eldhúseiningu. Verð
kr. 280 þús. Upplýsingar í síma
897 6293.
Til sölu er Jodel D-117A, 2ja
sæta, skemmtileg og hagkvæm
flugvél. Stuttbrautaeiginleikar.
Ber 2 með fulla tanka, 4:30 klst.
Ljósmyndalúga. Fín í Reykja-
fjörð eða Fljótavík. Uppl. gefur
Jón Karl í síma 898 6033.
Til sölu er WV Transporter hús-
bíll, árg. 1985, dísel. Í bílnum er
gas ísskapur og eldavél og upp-
hækkaður toppur. Bíllinn er til
sýnis hjá Bílatanga. Tilboð ósk-
ast. Uppl. í símum 456 3193,
456 4580 og 896 3193.
Til sölu eru góð Bridgestone
sumardekk. Stærð 205/70 R15
á felgum. Passar undir Subaru
Forrester. Uppl. í síma 865 9637.
Til sölu er vel með farið Hyundai
píanó. Uppl. í síma 897 6733.
Til leigu er lítið hús á Ísafirði í
sex til tólf mánuði. Aðeins reuk-
lausir og reglusamir leigjendur
koma til greina. Hafið samband
á netfanginu harpa@kjartan.biz
Til sölu er Coleman Pioneer
fellihýsi, 9 fet, árg. 93. Verð kr.
290 þús. Uppl. í símum 863
6107 eða 456 6249.
Til sölu er lítið notuð Canon
EOS 20D myndavél (body). Selst
á góðu verði. Á sama stað er til
sölu Canon 70-200 zoom linsa
(hvít). Uppl. gefur Sigurjón í
síma 892 5362.
Hlíðarvegspúkar! Hið árlega
Hlíðarvegspúkapartý verður
haldið laugardaginn 11. ágúst.
Til sölu er BMW 520iA árg. 98.
Góður bíll. Upplýsingar í síma
692 0314.
Alls svöruðu 665.
Já sögðu 175 eða 26%
Nei sögðu 411 eða 62%
Óvíst sögðu 79 eða 12%
Spurning vikunnar
Hyggur þú á búferlaflutn-
inga frá Vestfjörðum á
næstu mánuðum?
Kristján
með Birtu.
Fékk sér ref fyrir barnabörnin
Kristján Einarsson úr Ön-
undarfirði á óvenjulegt gælu-
dýr, refalæðu sem ber nafnið
Birta. Svo vill til að Kristján
er einnig refaskytta og þekkir
því vel þessi dýr. Samkvæmt
frjálsa alfræðiritinu Wikipedia
hafa veiðar á refum verið
stundaðar allt frá landnámi.
Talið er að refir hafi komið til
Íslands þegar í lok síðustu
ísaldar fyrir um 10.000 árum
og hafi upphaflega borist
hingað með hafís. Íslenski
refastofninn er mjög sérstakur
vegna langvarandi einangrun-
ar frá öðrum refastofnum og
aðlögunar að sérstökum að-
stæðum hérlendis enda greind
sem sérstök undirtegund.
Áætlað er að íslenski refa-
stofninn árið 2007 sé á bilinu
6000 til 8000 dýr. Bæjarins
besta hafði samband við Krist-
ján og forvitnaðist um það
hvernig það sé að taka að sér
ref.
– Hvernig kom það til að
refaskytta tók að sér ref fyrir
gæludýr?
„Það var nú aðallega gert
fyrir barnabörnin mín, þau
hafa gaman að þessu. Ég hef
haft ref nokkrum sinnum áð-
ur.“
– Eru barnabörnin hrifin af
honum?
„Já hann er vinsæll og
krakkarnir í hverfinu hópast í
kringum hann þegar þeir sjá
hann. Börnin nefndu hana
Birtu þó ég viti ekki af hverju,
en þau eru ógurlega hrifin af
honum.“
–Hvernig ferðu að því að
taka að þér ref?
„Ég tek þá á meðan þeir eru
í greni. Þessi sem ég er með
núna er læða sem ég tók frá
þegar ég fann greni, en sjö
yrðlingar voru í greninu.“
– Hve gömul er Birta?
„ Ég geri ráð fyrir að hún sé
fædd um miðjan maí, en það
er gottíminn hjá læðunni.“
– Er ekkert erfitt að hafa
ref?
„Ekki svo mikið þegar þeir
eru hvolpar, greyin, en svo
kemur eðlið upp í þeim og
þeir verða erfiðari í um-
gengni.“
– Gerir það þig að betri refa-
skyttu að kynnast refnum
svona náið?
„Já það gerir það. Það er
nokkuð um að refaskyttur taki
að sér hvolpa, ég hef allavega
heyrt af þeim víða.“
– Nú hefur verið mikið í
umræðunni að ref hafi fjölgað
mikið, hefur þú tekið eftir því?
„Ég hef ekki tilfinningu
fyrir því á því svæði sem ég er
Refir eru óneitanlega fallegar skepnur.
með refavinnslu, sem er Ön-
undarfjörður og Mýrarhrepp-
ur forni. Mér finnst fjöldinn
vera ósköp svipaður og hann
hefur verið. Ég hef farið mjög
víða um svæðið og fundið
fjöldann allan af grenjum sem
hafa verið virk áður en það er
ekki að finna ref í þeim nú.
Það hefur komið mér á óvart
hvað það er lítið af ref á grenj-
um sem ekki hefur verið hreyft
við lengi.“
– Hve lengi hefurðu verið
refaskytta?
„Ég hef verið við þetta í
sjö-átta ár. Ég hef legið í þessu
núna undanfarið. Síðan seint
í vetur er fjöldi veiddra dýra
svona rétt um hundrað. Ég
var búinn að fara víða og sinnt
þessu vel í ár. Ég var svo
stoppaður af þegar pening-
arnir voru búnir.“
– Heldurðu að þú
munir taka aftur að þér
ref einhvern tímann?
„Ég veit það ekki,
það er mikið stúss
í kringum þetta svo það er
erfitt að segja.“
– Nú eru refir af hundaætt,
er hægt að temja ref eins og
hund?
„Nei, ég held að það yrði
allavega óskaplega erfitt og
hef ekki heyrt til þess að það
hafi nokkurn tímann
verið gert. Þeir
verða svo erfiðir
þegar þeir eld-
ast, en það er
aldrei að vita
nema hægt sé
að gera það með
mikilli vinnu.“
– Hefurðu náð
í ref fyrir aðra?
„Það hef-
ur nú ekki verið mikið um
það. Ég náði í einn fyrir Henry
Bæringsson á Ísafirði og
Helga í Botni bað mig um að
koma með ref í gæludýragarð
Sæluhelgarinnar. Ég gerði það
og hann var mjög vinsæll,“
segir Kristján og ekki að undra
að börnin hrífist af Birtu
enda eru refir fallegar
skepnur þótt þeir
hafi í gegnum tíð-
ina oft verið bænd-
um og búaliði til
ama þar sem þeir
eru skæðir keppni-
nautar um fugla sem
er aðalfæða þeirra á
Íslandi.
Börnin eru afar
hrifin af Birtu.