Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.09.2007, Page 2

Bæjarins besta - 13.09.2007, Page 2
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 20072 Þennan dag árið1894 var frídagur verslunarmanna haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í Reykjavík. Síðar var hann fluttur fram í byrjun ágúst. Þennan dag árið 1934 var Rótaryklúbbur Reykjavíkur stofnaður. Þetta var fyrsti klúbburinn hér á landi. Dagurinn í dag 13. september 2007 –256. dagur ársins VERKEFNISSTJÓRI Atvinnumálanefnd Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir verkefnisstjóra í tveggja ára verkefni. Verkefnið er að stýra átaki til atvinnu- sköpunar á norðanverðum Vestfjörð- um í samstarfi Ísafjarðarbæjar og fleiri aðila. Það snýst m.a. um að halda námskeið um stofnun fyrirtækja og rekstur og gera það aðgengilegra að stofna fyrirtæki og afla hlutafjár. Markmiðið er að skapa 50 ný störf með þessu átaksverkefni. Verkefnisstjórnin er auglýst valkvæð þannig, að annars vegar kemur til greina að ráða einstakling beint í starfið, en hins vegar að starfið standi ráðgjafafyrirtæki til boða gegn því að það verði stofnað og/eða staðsett í Ísafjarðarbæ. Umsóknarfrestur er til 21. september. Upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 450 8000 eða í netfangi bstj@isa fjordur.is eða bæjarritari í síma 450 8000 og netfangi thorleifur@isafjord ur.is. Umsóknir verði sendar til bæjarskrif- stofu Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýsluhus- inu, 400 Ísafirði, merktar verkefnisstjóri. Kristjana Sigurðardóttir var einróma kosin formaður barnaverndarnefndar norðanverðra Vestfjarða á síðasta nefndarfundi. Kristjana var eini nefndarmaðurinn sem gaf kost á sér og tekur hún við af Laufeyju Jónsdóttur. Á fundinum var lagt fram yfirlit yfir sískráningu barnaverndarmála á norðanverðum Vestfjörðum í ágúst en þá bárust nefndinni 14 tilkynningar. Nefndarmönnum var einnig greint frá rannsókn sem Barnaverndarstofa ætlar að gera til að varpa skýrara ljósi á umfang og viðbrögð við líkamlegu ofbeldi gagnvart börnum. – thelma@bb.is Kristjana kjörinn formaður Liðið Tean Titans sigraði í karlaflokki og Kool And The Gang í kvennaflokki í rudda- boltamóti Nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði sem haldið var á gervigrasvellinum á Torfnesi á föstudag. Þetta var í annað sinn sem keppt er í íþróttinni við MÍ en henni svipar mjög til fótbolta nema að því leyti að engar reglur eru í ruddabolta. Eins og nafnið gefur til kynna er því um frekar grófan leik að ræða sem væntanlega er ekki fyrir viðkvæma. Átta manns eru í hverju liði og keppt var í kvenna- og karla- flokki. Á síðasta ári kepptu 10 lið í Ruddaboltamóti NMÍ. Í ár voru þau 12 og voru alls rúmlega 100 keppendur og er því talið ljóst að Ruddaboltinn er búinn að festa sig í sessi sem einn af árlegu viðburðum NMÍ. Þess má geta að nóg að gerast hjá NMÍ þessa dagana en framundan er óvissuferðin sem verður farin 21. septem- ber og vikuna eftir hana er hið árlega Skrall á dagskrá. – thelma@bb.is Tean Titans og Kool And The Gang sigruðu í ruddabolta Hróarskelda slítur vinabæjarsamstarfi Hróarskelda í Danmörku hefur sagt upp öllum vinabæj- um sínum, Ísafirði þar á meðal. „Danir eru um þessar mundir að horfa meira á verkefni innan Evrópusam- bandsins og telja sig hafa meira upp úr þeim en vina- bæjarsamstarfi“, segir Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísa- fjarðarbæjar. Halldór segir að vissulega hafi verið skemmti- legt að hafa Hróarskeldu, einn þekktasta bæ í Danmörku, sem vinabæ. Hróarskelda hefur verið vinabær Ísafjarðar Vísindaport Háskólaseturs Vestfjarða hóf göngu sína á ný eftir sumarfrí á föstudag. Í fyrsta Vísindaporti vetrarins kynntu viðskiptafræðinem- arnir Kjartan Már Másson og Valgeir Elíasson frumniður- stöður rannsóknar um það hvort að grundvöllur sé fyrir hendi að stofna nýjan fisk- vinnsluskóla. Rannsóknin er lokaverkefni þeirra í við- skiptafræði við Háskólann í Reykjavík. Meðal þess sem skoðað er í verkefninu er af hverju fyrri skólar hættu starfsemi og ef að grundvöllur er fyrir nýjum skóla, hvernig ætti sá skóli að vera og með hvaða hætti ætti að reka hann. Valgeir Elíasson er 36 ára viðskiptafræðinemi við Há- skólann í Reykjavík. Sam- hliða námi starfar hann við bókhald hjá verktakafyrirtæk- inu B.Markan Pípulögnum ehf. Áður en hann hóf háskóla- nám starfaði hann sem upp- lýsingafulltrúi Slysavarna- félagsins Landsbjargar árin 2001-2005 en þar á undan var hann sölumaður hjá 66°N árin 1995-2001. Kjartan Már Másson er 37 ára viðskiptafræðinemi við Háskólann í Reykjavík. Sam- hliða námi starfar hann sem sölustjóri hjá Kornax&Líf- land. Áður en hann hóf nám við Háskólann í Reykjavík starfaði hann aðallega við sölu og markastörf, m.a. hjá Egils- son hf. árin 1998-2004. í áratugi og gefið jólatré til staðarins í fjölda ára. „Ég á ekki von á því að Ísafjörður leiti sérstaklega eftir nýjum vinabæ. Hins vegar berst Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga reglu- lega beiðnir frá bæjum í Aust- ur-Evrópu um að taka upp vinabæjartengsl við bæi á Íslandi. Það hefur ekki verið rætt formlega, en mér fyndist áhugavert að skoða vinabæjar- samband við bæ í einhverju Eystrasaltslandanna“, segir Halldór. – tinna@bb.is Stofnun nýs fisk- vinnsluskóla Jólatré frá Hróarskeldu hafa prýtt Silfurtorg yfir jólahátíðina undanfarin ár.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.