Bæjarins besta - 13.09.2007, Blaðsíða 6
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 20076
Ofurvald
minnihlutans
Ritstjórnargrein
Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564
Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693
og 849 8699, thelma@bb.is – Tinna Ólafsdóttir, sími 868 5963, tinna@bb.is – Smári Karlsson, sími 866 7604,
smari@bb.is · Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, sími 863 7655, halfdan@bb.is. Ritstjóri netútgáfu bb.is:
Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is
Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 300 eintakið með vsk.
Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. ·
Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X
Sængurföt pólitík-
usanna að komast á
Á þessum degi fyrir 33 árum
Héðan er nú allt gott að frétta, ekkert sérstakt, nema sunnan
blíða og 10 stiga hiti í dag eftir næturkælu að undanförnu.
Menn hér eru nú aðallega að dudda í því að gera að húsum sín-
um, en það er mikið verið að byggja á mörgum bæjum, mikil
mannvirki. Fjárhús er verið að byggja á einum 12 stöðum hér
í Djúpinu og meiningin er að auka stofninn. Það fór að rétta
aftur úr kútnum þegar grasið byrjaði að spretta aftur. Það lifnar
yfir sálinni, þegar grasið grær. Og það er nú lítið hægt að
kvarta hjá þessari þjóð, þegar grasið grær á annað borðið og
fiskurinn gengur á hitt. Nema náttúrulega, að það er hægt að
bíta of stóra bita af kökunni með þeim afleiðingum, að allir fái
ekki nóg, og þá horfir til vandræða. Bróðurkærleikurinn mætti
vera meira á oddinum, en kannski fer þetta nú að lagast, þeir
eru nú að verða búnir að setja sængurfötin á pólitíkusarnir í
hjónasænginni.
Ekki að undra að ágreiningnum um kvótakerfið skyti upp á
yfirborðið við umdeilda ákvörðun sjávarútvegsráðherra um
samdrátt í þorskveiðum. Ný skoðanakönnun staðfesti það, sem
ljóst hefur verið frá upphafi: Almenningur vill breytingar á
fiskveiðistjórnunarkerfi, sem í öllu hefur brugðist.
Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins og fyrrverandi
forsætis- og sjávarútvegsráðherra reit leiðara í blað sitt 7. ágúst
s.l. Í leiðaranum, sem ber yfirskriftina Minnihlutaráð, fjallar
hann um aflamarkskerfið og segir m.a.: ,,Yfirgnæfandi meirihluti
(þjóðarinnar) er óánægður með kerfið en aðeins fimmtán af
hundraði lýsa ánægju. Það sem meira er: Skoðanakannanir um
þetta efni hafa frá upphafi vega verið á þennan veg. Rökrétt er
í því ljósi að spyrja hvers vegna þetta almenna viðhorf hefur al-
drei endurspeglast í ákvörðunum Alþingis. Furðu gegnir að
menn hafa ekki svo heitið geti leitað svara við þessari spurningu
í þann aldarfjórðung sem þetta markaðskerfi við fiskveiðistjórn-
un hefur verið að mótast. Á þessum tíma hafa allir flokkar átt
aðild að ríkisstjórn.“ Síðan segir sjávarútvegsráðherrann
fyrrverandi: ,,Sennilega hefur aldrei verið óþvingaður meirihluti
fyrir málinu á Alþingi. Meirihluti stjórnarmeirihluta á hverjum
tíma hefur borið þessa ábyrgð. Með öðrum orðum: Stærsti
minnihlutinn meðal þjóðarinnar og á Alþingi hefur ráðið för.“
Tímabært er að spurt sé: Hvers vegna hefur viðhorf almenn-
ings til kvótakerfisins aldrei endurspeglast í ákvörðun Alþingis?
Hvers vegna hafa þingmenn allra flokka komist upp með það að
lúta í engu vilja yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar? Hvaða
ofurvald hefur ráðið ferð? Hvað hefur ráðið því að ekki hefur
náðst samstaða á Alþingi fyrir því að stíga fyrsta skrefið út úr
þeim vítahring sem kvótakerfið er búið að fanga flest sjávar-
plássin í? Ritstjórinn svarar í raun spurningunni eftir að hafa
tilgreint tvo stjórnmálamenn sem hlutu þjóðarlof snemma sumars
fyrir afdráttarlausa gagnrýni á kvótakerfið: ,,Hvorugur þessara
virtu stjórnmálamanna hefur á hinn veginn látið sér til hugar
koma að lyfta litla fingri til að knýja á um breytingar þar sem
þeir sitja og hafa áhrif og völd.“ Í ráðherratíð ritstjórans var
frumvarp tveggja samflokksmanna hans um bann við sölu á
kvóta svæft í sjávarútvegsnefnd. ,,Stjórnmál eru list,“ segir ráð-
herrann fyrrverandi og undrar engan.
Megin gagnrýni á kvótakerfið snýst um frjálsa framsalið.
Halldór Ásgrímsson sagði fyrir kosningar 2003, að framsalið
hefði alla tíð verið galli á kvótakerfinu. Í nóvember 2001 sagði
þáv. sjávarútvegsráðherra að hann væri alveg tilbúinn að skoða
afnám framsalsins. Núverandi sjávarútvegsráðherra hefur lýst
því yfir að hann vilji skoða reglur um viðskipti með leigukvóta.
Eru líkur á að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar
virði meirihluta þjóðarinnar um breytingar á kvótakerfinu?
Stígi fyrsta skrefið? Eða eigum við von á að sagan endurtaki
sig? Töluð orð séu orðin tóm!
s.h.
Fóru í fjallgöngu og berjamó
Börnin í 3. bekk Grunnskólans á Ísafirði fóru í fjallgöngu á fjallið Hnífa í mynni Skutulsfjarðar í síðustu viku.
„Sú hefð hefur skapast hér við skólann að allir bekkir fara í fjallgöngu á haustin og nú er sá tími runninn upp
þar sem nemendur eru á ferð með umsjónarkennurum sínum, foreldrum og fleira góðu fólki um fjöll og
firnindi í orðsins fyllstu merkingu“, segir Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, umsjónarkennari í 3. bekk. Börnin
höfðu með sér berjabox í fjallgönguna enda mátti sjá svartar þúfur af berjum, bæði krækiberjum og aðalblá-
berjum. „Fimir fingur fóru um lyngið og hver dollan af annarri fylltist auk þess sem eitthvað af þessu góðgæti
fór niður í maga, eins og vera ber. Vel heppnuð ferð enda veðrið eins og best verður á kosið“, segir Ingibjörg.
Samþykkt að stofna
Háskóla Vestfjarða
Stofna á Háskóla Vestfjarða
og á hann að taka til starfa
strax á næsta ári. Þetta var
samþykkt á 52. Fjórðungs-
þingi Vestfirðinga sem haldið
var á Tálknafirði um helgina.
Þingið hefur falið stjórn
Fjórðungssambands Vestfirð-
inga að kalla þegar til fulltrúa
Háskólaseturs, sveitafélaga,
rannsóknastofnanna, fyrir-
tækja og félagasamtaka til
undirbúnings málinu. Stefna
ber að stofnun sjálfstæðs
háskóla strax á næsta ári og
hefja kennslu haustið 2008.
Þingið samþykkti fjölmarg-
ar ályktanir sem beinast að
atvinnumálum, menntamál-
um, samgöngumálum og um
verkaskiptingu ríkis og sveit-
arfélaga. Meðal annars var
skorað á ríkisstjórn Íslands og
Alþingi að grípa strax til raun-
hæfra aðgerða til styrkingar
byggðar á Vestfjörðum í
samstarfi við sveitarfélög á
svæðinu, sem og að fylgja eftir
aðgerðum sem boðaðar voru
fyrr á þessu ári í skýrslu
nefndar forsætisráðuneytis
um eflingu atvinnulífs á Vest-
fjörðum.
„Í skýrslu Byggðastofnunar
og Hagfræðistofnunar Há-
skóla Íslands kemur fram að
hagvöxtur á Vestfjörðum var
neikvæður á árunum 1998-
2005. Boðaður niðurskurður
aflaheimilda mun koma hér
til viðbótar og hafa mjög
neikvæð áhrif á afkomu ein-
staklinga, fyrirtækja og sveit-
arfélaga á svæðinu. Því verða
þær mótvægisaðgerðir sem
gripið verður til að koma til
framkvæmda sem fyrst, vera
raunhæfar og taka mið af því
ástandi sem nú er að skapast“,
segir í ályktun.
Fastanefnd Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga um sam-
göngumál var á þinginu falið
að endurskoða stefnumótun
Fjórðungssambands Vest-
firðinga í samgöngumálum frá
árinu 2004. „Umfangsmiklar
samgöngubætur eru að verða
að veruleika á Vestfjörðum
og eru þær í samræmi við
áherslur Fjórðungssambands
Vestfirðinga“, segir í ályktun.
„Nauðsynlegt er að norðan-
verðir og sunnanverðir Vest-
firðir verði eitt atvinnu- og
þjónustusvæði og nýfram-
kvæmdir í vega- og jarðganga-
gerð geri það kleift.“
Þingið ítrekaði mikilvægi
þess að tryggður verði jafn
aðgangur fyrirtækja, stofnana
og heimila að bestu mögulegri
háhraðatenginu, á hverjum
tíma, á sambærilegu verði og
óháð staðsetningu. Það sagði
mikilvægt að nýta full yfirráð
íslenskra stjórnvalda á ljós-
leiðara til Vestfjarða til að
auka samkeppnishæfni fjórð-
ungsins og lækka verð á
gagnaflutningi. Skorað var á
stjórnvöld að setja í forgang
að ljúka hringtengingu ljós-
leiðara á Vestfjörðum.
Stofnun Nýsköpunarmið-
stöðvar Íslands var fagnað á
þinginu sem og þeirri ákvörð-
un að hluti starfseminnar verði
á Vestfjörðum. Jafnframt var
skorað á stjórnvöld að kanna
vel mögulega staðsetningu
stofnana á Vestfjörðum þegar
skipulagsbreytingar eru gerð-
ar eða ný verkefni verða til.
Sveitarfélög á Vestfjörðum
voru hvött til að ljúka gerð sí-
og endurmenntunaráætlana í
samstarfi við fræðslumiðstöð
fyrir 1.janúar 2009. Í ályktun
segir: „Í nútímaþjóðfélagi
hefur gildi símenntunar aukist
mjög og nú er svo komið að
margar stofnanir og fyrirtæki
gera símenntunaráætlun fyrir
starfsmenn sína. Breytingar í
þjóðfélaginu og á vinnu-
stöðum eru oft hraðar og til
þess að fylgjast með og endur-
nýja kunnáttu sína eða læra
eitthvað nýtt verða starfsmenn
sífellt að vera að endurmennta
sig.“
Þingið var að þessu sinni
tvískipt. Auk hefðbundinna
þingstarfa var haldinn vinnu-
fundur um fyrirkomulag á
samstarfi Fjórðungssambands
Vestfirðinga og Atvinnu-
þróunarfélags Vestfjarða, en
samkvæmt samningi frá mars
2004 er rekstur Fjórðungs-
sambands Vestfirðinga á veg-
um Atvinnuþróunarfélags
Vestfjarða, en með sjálfstæða
stjórn. Til umræðu var að
aðskilja þennan rekstur að
nýju eða sameina starfsemi
þessara aðila og hugsanlega
fleiri stofnana er sinna sam-
eiginlegum verkefnum fyrir
hönd sveitarfélaga á Vest-
fjörðum. Unnið verður úr
niðurstöðu fundarins og stefnt
er að nýjum fundi um verk-
efnið nú síðar í haust.
Tæplega sextíu manns sóttu
þingið og voru tveir af hverj-
um þremur þeirra sveitar-
stjórnarmenn.
– tinna@bb.is
Háskólasetur Vestfjarða