Bæjarins besta - 13.09.2007, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 11
Á fimmta tug tillagna um nýtt byggðarmerki
Alls bárust 42 tillögur um nýtt byggðarmerki fyrir Ísafjarðarbæ í op-
inni samkeppni sem sveitarfélagið efndi til. Fimm manna nefnd um
merkið mun hefja valferlið á næstu dögum og er þess ætlast að
nefndarmenn ljúki störfum í október. Dómnefnd skipa Ellert Örn Erl-
ingsson, Þingeyri, Jóhanna Kristjánsdóttir, Flateyri, Jóhann Bjarnason,
Suðureyri, Kristjana H. Jónasdóttir, Ísafirði, og Kristín Völundar-
dóttir, sýslumaður á Ísafirði sem er formaður dómnefndar.
Mannekla hjá lögreglunni
Lögregluna á Vestfjörðum vantar starfsmenn og auglýsir nú eftir skóla-
gengnum mönnum í tvær stöður. „Í dag vantar okkur tvo lærða menn. Það
hefur alltaf verið mikil starfsmannavelta hjá okkur, rétt eins og í öllum
Ísafjarðarbæ. Menn fara suður og mennta sig, en koma svo ekki aftur því
auðvitað vilja menn vera í Reykjavík þar sem allt er að gerast“, segir
Önundur Jónsson yfirlögregluþjónn. Hann segir léleg laun lögreglumanna
einnig ástæðu þess að erfitt sé að fá fólk til vinnu.
Í vetur munu 33 nemendur
við Menntaskólinn á Ísafirði
stunda nám á afreksbraut í átta
íþróttagreinum. Brautin er
rekin með fjárhagsstuðningi
fyrirtækja og velunnara Mennta-
skólans. Stuðningurinn gerir
nemendum við skólann kleyft
að stunda nám á brautinni
þeim að kostnaðarlausu og er
MÍ eini framhaldsskólinn á
landinu sem býður svo vel.
Tveir aðrir framhaldsskólar
á landinu bjóða upp á afreks-
braut, Fjölbrautarskóli Suður-
lands og Fjölbrautarskóli Suð-
urnesja. Þessir tveir skólar sjá
þó ekki um rekstur brautar-
innar, heldur kostar námið
fyrir hvern nemenda frá 60-
90 þúsund krónur á önn og er
rekið sem einkahlutafélag í
samvinnu við skólanna.
Hermann Níelsson er um-
sjónarmaður afreksíþrótta-
brautar Menntaskólans á Ísa-
firði. Hann segir ljóst að braut-
in sé í mikilli sókn „Við erum
að bjóða uppá tvær nýjar
greinar í ár, kajakróður og af-
reksíþróttir fatlaðra. Það er
frábært að við séum komin
með 33 nemendur, það eru
rúm 10% skólans“, segir Her-
mann.
– gunnaratli@bb.is
Eini skólinn sem býður upp
á gjaldfrjálsa afreksbraut
Menntaskólinn á Ísafirði.
Verslunin Póllinn á Ísafirði
hefur tekið að sér hlutverk um-
boðsaðila fyrir vörur og þjón-
ustu Vodafone í bænum. Ís-
firðingum stendur fjölbreytt
fjarskiptaþjónusta til boða hjá
Vodafone; GSM þjónusta,
heimasíma- og netþjónusta.
Að auki býður Póllinn nú upp
á úrval símtækja og annast
dreifingu netbúnaðar.
Með þessari auknu þjónustu
við Ísfirðinga vill Vodafone
ýta undir enn frekari sam-
keppni á fjarskiptamarkaði í
bænum. Nú þegar hafa bæjar-
búar notið góðs af samkeppn-
inni og skemmst er að minnast
mikillar verðlækkunar á ADSL
þjónustu í kjölfar þess að
Vodafone hóf að bjóða síka
þjónustu í bænum.
Hjá Pólnum er einnig hægt
að nálgast myndlykla fyrir
Digital Ísland, stærsta dreifi-
kerfi á Íslandi fyrir sjónvarps-
efni, en Digital Ísland er í eigu
Vodafone. Á undanförnum
mánuðum hefur mikil upp-
bygging á kerfinu átt sér stað
og meðal annars hefur fram-
boð sjónvarpsstöðva stórauk-
ist víða á landsbyggðinni.
Póllinn hefur um árabil verið
umboðsaðili Digital Ísland.
bb@bb.is
Póllinn með umboð fyrir Vodafone
Hafnarstjóri Ísafjarðarbæj-
ar, Guðmundur Kristjánsson,
hefur átt í viðræðum við full-
trúa fyrirtækis sem hyggur á
námuvinnslu á Austur-Græn-
landi um að Ísafjarðarhöfn
verði þjónustumiðstöð fyrir
fyrirtækið. Fulltrúar Wardrop
Mining and Minerals komu
til Ísafjarðar á dögunum til að
skoða aðstæður, en fyrirtækið
er komið með 15 ára námu-
vinnsluleyfi í Scoresbysundi
þar sem á að vinna salla til
framleiðslu á ryðfríu stáli.
Meðan á uppbyggingu vinnsl-
unnar stendur þarf námufyrir-
tækið að koma sér upp að-
stöðu á Íslandi til að byrgja
sig upp af tækjum og tólum,
aðallega þungavinnuvélum.
Þá þarf fyrirtækið að hafa
aðgang að góðum vélsmiðjum
til að vinna við hin ýmsu tæki
og viðhald og vinna við ný-
smíði á færiböndum. Því er
hér um að ræða verkefni fyrir
Ísafjarðarhöfn, flutningafyrir-
tæki, vélsmiðjur og fleiri þjón-
ustuaðila.
Fulltrúar fyrirtækisins eru
að skoða aðrar hafnir á Íslandi,
í Hafnarfirði og á Akureyri,
sem einnig koma til greina.
Gert er ráð fyrir að þeir muni
ákveða í framhaldi af heim-
sókn þeirra til Ísafjarðarbæjar
hvaða höfn verður fyrir valinu.
Á síðasta fundi atvinnu-
málanefndar lagði Kári Þór
Jóhannsson fram tillögu um
að ráðinn verði starfsmaður
til að markaðssetja og selja
Ísafjörð sem þjónustumiðstöð
fyrir Austur-Grænland. Þá lagði
hann til að leitað verði stuðn-
ings ríkisstjórnar um aðkomu
að málinu. „Markhópur þjón-
ustumiðstöðvarinnar eru ferða-
menn, námuvinnslufyrirtæki,
flug, skipaferðir, landanir skipa
o.fl.”, segir í tillögu Kára.
Verður Ísafjarðarhöfn þjónustu-
miðstöð fyrir námufyrirtæki?
Ísafjarðarhöfn.