Bæjarins besta - 13.09.2007, Síða 14
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 200714
Mannlífið
Netspurningin er birt vikulega
á bb.is og þar geta lesendur látið
skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar
eru síðan birtar hér.
Smáauglýsingar
Alls svöruðu 1.099.
Já sögðu 101 eða 9%
Nei sögðu 115 eða 10%
Alveg sama sögðu
00 eða 00%
Spurning vikunnar
Vilt þú halda í hefðina
þegar kemur að busun
nemenda við MÍ?
Kafað ofan í kvótakerfið og lagt á ráðin með Tælandsferð.
Bragakaffi
Langi Mangi og Edinborg eiga að heita einu kaffihús bæjarins. Eða hvað? Þegar betur er að
gáð koma í ljós fleiri kaffihús þó þau gefi sig ekki út sem slík. Og yfirhöfuð ekki sem
neinskonar samkomustaðir fólks (þó í raun geti þeir verið það). Eitt slíkra kaffihúsa, eða ætli
kaffistofa sé ekki betra nafn, er kaffistofa Vélsmiðju Ísafjarðar. Kaffistofan er betur þekkt sem
Bragakaffi, kennt við Braga Magnússon vélsmið og einn eigenda vélsmiðjunnar. Bragakaffi er
fyrir löngu orðið þjóðþekkt á Ísafirði. Þar safnast kallarnir saman upp úr klukkan níu á
morgnana og þegar mönnum liggur mikið á hjarta getur kaffitíminn dregist eitthvað framyfir
tíuleytið. Sömu sögu er að segja í seinni kaffitímanum.
Femínisminn hefur ekki haldið innreið sína í Bragakaffi. Í þau skipti sem undirritaður hefur
stungið nefinu inn til Braga og fengið nokkrar kjaftasögur beint í æð hefur ekki bólað á æðra
kyninu. Það er kannski allt í lagi. Ekki er rúmt um mannskapinn. Á nokkrum fermetrum ná
samt tuttugu kallar að troða sé þegar mikið liggur við. Umræðunum stjórnar svo Bragi sjálfur.
Eins og þaulvanur hljómsveitarstjóri gefur hann tóninn og passar upp á taktinn. Listrænt frelsi
hvers og eins er þó í hávegum haft og passað upp á að sagnalistin fái að njóta sín.
Í þá stuttu stund sem var staldrað við með myndavél í Bragakaffi bar ýmislegt á góma. Ætti
ekki að koma nokkrum á óvart að orðið kvóti kom nokkrum sinnum fyrir. Einnig voru lögð
drög að Tælandsferð fyrir einn af aldursforsetum þennan kaffitímann. Og hverslags lyfjagjöf
þyrfti til sú ferð næði nú örugglega einhverju risi. – smari@bb.is
Feðgarnir Bragi Magg og Steinþór Bragason.
Ólarnir tveir. Annar kenndur við málerí hinn við Árbæ.
Siggi Sveins.Garðar hlustar af andakt.
Til leigu er lítið 64m² einbýlis-
hús í Hnífsdal. Leigutimi er frá
september tl júní. Húsið er full-
búið húsbúnaði og húsgögn-
um og leigist þannig. Best væri
að fá einn leigjanda allan tím-
ann en styttri tímabil koma líka
til greina. Uppl. gefur Erna í
síma 456 3612 og 869 4566.
Jólaleikhús! Óska eftir litlu sýn-
ingarrými/sal fyrir jól. Ýmislegt
kemur til greina. Kómedíuleik-
húsið og Grýlusynir í síma 891
7025.
Krabbameinsfélagið Sigurvon
hvetur konur til að panta tíma í
krabbameinsleit strax og þær
fá tilkynningu þar um.
Haglabyssa til sölu. REMINGTON
1187 sportman, hálfsjálvirk,
ónotuð, árs gömul, taska og
skotfæri. Upplýsingar 8921688.
Til sölu Subaru Legacy 1999,
ekinn 124.000 km, silfurgrár.
Nánari uppl. í síma 8498045
Til sölu er kommóða með hillu
og eitt náttborð, bæði hvít að
lit. Selst ódýrt. Sími 456 7014.
Óska eftir trommusetti. Uppl. í
sima 898 1050 Kiddi.
Hraðskákmót Íslands í Bolungarvík
Hraðskákmót Íslands 2007 verður haldið í Bolungarvík á laugardag. Mótið, sem styrkt er af Kaupþingi og
Sparisjóði Bolungarvíkur, er öllum opið. Tefldar verða fimm mínútna skákir, alls 20 umferðir. Á vefsíðu
Bolungarvíkurkaupstaðar segir að búist sé við fjölmennu og fjörugu móti þar sem stórmeistarar og byrjendur
koma saman. Þegar eru miklir skákmeistarar skráðir til keppni, meðal annarra Arnar Gunnarsson, Sigurbjörn
Björnsson, skákmeistari Reykjavíkur 2007, Einar K. Einarsson, Halldór Grétar Einarsson Guðmundur
Magnús Daðason og Stefán Arnalds. Mótið hefst klukkan 13 laugardaginn 15. september í íþrótta-mið-
stöðinni Árbæ og lýkur því um klukkan 19. Síðar um kvöldið verður slegið upp dansleik og skemmtan.
Guðsþjónusta á sunnu-
daginn kemur (16. sept)
kl. 14:00. Börn og
fullorðnir syngja og lesa.
Flateyrarkirkja
Dýrfinna
verðlaunuð
Ísfirðingurinn Dýrfinna
Torfadóttir vann tvenn verð-
laun í keppni um Skartgrip
ársins á Ísmóti 2007, Íslands-
meistaramóti faggreina innan
Samtaka Iðnaðarins, sem
haldið var í Laugardalshöll
fyrir stuttu. Dýrfinna vann
annars vegar verðlaun fyrir
kvenskart og hins vegar fyrir
karlaskart.
„Ég ætlaði ekki að trúa
þessu. Það kom mikið á óvart
að heyra nafnið mitt kallað
upp. Fyrst fékk ég verðlaun
fyrir kvenskartið. Ég ætlaði
síðan að rjúka af sviðinu þegar
ég var beðin um að bíða og ég
fékk þá líka verðlaunin fyrir
karla-skartið. Það var gaman
að halda uppi merki lands-
byggðarinnar með þessum
hætti“, segir Dýrfinna.