Bæjarins besta - 13.09.2007, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 15
Sælkeri vikunnar er Haukur Sigurðsson á Ísafirði
Útlagasúpa og fjallakássa
Horfur á föstudag: Ákveðin norðanátt með éljum, en
bjart veður sunnanlands. Hiti 0 til 5 stig að deginum.
Horfur á laugardag: Lítur út fyrir áframhaldandi
norðanátt og fremur kalt veður.
Horfur á sunnudag: Lítur út fyrir áframhaldandi
norðanátt og fremur kalt veður
Helgarveðrið
Sælkeri vikunnar er Haukur
Sigurðsson á Ísafirði. Hann
býður upp á tvenns konar rétti
sem eru þeim kostum búnir
að hráefnið er einfalt og hægt
er að elda réttina nánast hvar
sem er í heiminum, með ekk-
ert nema prímus og vasahníf
að vopni. Nuba kássan ber
þessa einmitt merki, enda
kennd við Nuba fjöllin í Súd-
an. Uppskriftirnar eru ekki ná-
kvæmar og hægt er að laga
þær að því sem er til í ísskápn-
um, eða bakpokanum.
Fiskisúpa útlagans
hvítlaukur
laukur
chili
paprikur
steinselja
salt og pipar
hakkaðir tómatar úr dós
paprikuduft
fisk- og kjúklingakraftur
fiskbitar, rækjur, krækling
ur eða það sem hendi er næst
Saxið hvítlauk, lauk, papr-
ikur og steinselju niður og
svissið öllu saman í potti með
olíu. Steikið ekki til fulls,
mýkið bara. Setjið stóra dós
af hökkuðum tómötum út í og
bætið jafnvel smá papriku-
dufti út í líka. Bætið síðan út í
þetta vatni, fiskkrafti og kjúkl-
ingakrafti. Látið þetta malla í
hálftíma eða svo, smakkið til
og bæta kryddi saman við eftir
smekk. Bætið fiskbitum, rækj-
um, kræklingi (eða hverju sem
er í rauninni) við súpuna. At-
hugið að fiskurinn má ekki
malla í súpunni nema í örfáar
mínútur, en ágætt er að kasta
rækjunum útí í þann mund
sem súpan er sett á borðið.
Nuba kássa
hrísgrjón
vatn
salt
pipar
engifer
kjúklingakraftur
rauðlaukur
hvítlaukur
olía
hnetur
chili
Sjóðið grjónin með salti og
kjúklingateningi. Saxið rauð-
laukinn og hvítlaukinn niður
svissið til á pönnu með ólívu-
olíu. Bætið við pipar, engiferi,
chili og hnetum. Þegar hrís-
grjónin eru tilbúin og rauð-
lauksmixið búið að malla svo-
lítið blandið þá öllu saman og
látið krauma í þrjár mínútur.
Berið fram í pottinum með
eins margar skeiðar og nauð-
synlegt þykir. Bon apetit!
Haukur skorar á Gylfa Ól-
afsson að vera næsti sælkeri
vikunnar.
Hrafnhildur Hafberg og Þor-
leifur Ágústsson hafa búið í
húsi við Tangagötu á Ísafirði
síðan sumarið 2004.
–Hvenær er húsið byggt?
„Árið 1888.“
–Þekkið þið sögu hússins?
„Ekki nógu vel. Kristín
Alexandersdóttir átti það í
mörg ár og keyptum við það
eftir lát hennar, en í hugum
margra er þetta húsið hennar
Stínu Alexanders. Mér skilst
að hún hafi búið hér í um 60
ár. Áður en hún keypti húsið
bjuggu hér nokkrar fjölskyld-
ur, í það minnsta þrjár á sama
tíma.“
–Hvað er húsið stórt?
„Þetta eru rúmir 100 fer-
metrar, þannig að það hefur
verið þröngt á þingi. Síðan þá
hefur innviðum hússins verið
breytt töluvert því það hefur
væntanlega verið hólfað meira
niður en það er í dag. Við
opnuðum á milli eldhússins
og stofunnar og rákumst þá á
hurð inni í veggnum, undir
klæðningunni, þannig að her-
bergin hafa verið fleiri hér
áður.
Húsið er á tveimur hæðum
og svo er háaloft sem hefur
greinilega verið þurrkloft í
eina tíð. Þar er svo lágt til
lofts að það er varla mann-
gengt. Síðan er kjallari undir
húsinu.“
–Hafið þið unnið að ein-
hverjum endurbótum á hús-
inu?
„Húsið var gert upp að utan
á seinni hluta síðustu aldar,
þá var skipt um klæðningu og
nýir gluggar smíðaðir. Þegar
við fluttum síðan inn tókum
við smá skurk og gerðum til
dæmis eldhúsið alveg upp. En
við eigum eftir að vinna að
frekari endurbótum á húsinu.
Það á eftir að ganga betur frá
gólfunum, til dæmis er teppi
undir parketinu í stofunni, sem
er auðvitað mjög sérstakt.
Við rifum allt af veggjunum
þegar við fluttum inn og af
nánast öllum gólfum í hús-
inu.“
–Krefst þetta mikillar vinnu,
að búa í gömlu húsi?
„Já, við tókum þetta með
trukki þegar við fluttum inn,
við keyptum húsið um miðjan
júlí og vorum að alveg fram á
haustið þegar ég byrjaði að
kenna við MÍ. Eftir það hins-
vegar fengum við eiginlega
nóg og höfum ekki gert mikið
síðan. Við höfum svo sem
verið að sinna öðrum hlutum,
en maður þarf virkilega að
safna orku til að halda áfram.
Kannski reynum við að gera
eitthvað í vetur.“
–Hefur verið byggt við hús-
ið?
„Já, við húsið er viðbygging
sem mér skilst nú að hafi ein-
hvern tíma verið verkstæði.
Síðan var viðbyggingin seld
frá húsinu og er sér íbúð. Það
þyrfti kannski að sameina við-
bygginguna og húsið aftur.
Það skýtur til dæmis skökku
við að þegar okkar hluti var
gerður upp að utan virðast
þáverandi eigendur íbúðanna
ekki hafa komist að sam-
komulagi og því er viðbygg-
ingin í allt öðrum stíl en gamli
hlutinn. Eðlilegast væri auð-
vitað ef samskonar klæðning
og gluggar væru á viðbygg-
ingunni og gamla húsinu.“
–Hvernig finnst þér að búa
í þessu húsi?
„Mér líður mjög vel hér.
Það mætti alveg vera meira
pláss til að dreifa úr sér. En
hér er góður andi og gott að
vera.“
–Fylgja því einhverjir gallar
að búa í gömlu húsi?
„Já, já. Það er auðvitað þetta
endalausa viðhald, brattur
stigi og svo er húsið auðvitað
lítið. En kostirnir eru hvað
húsið er fallegt og á góðum
stað. Umhverfið er fallegt.“
–Fylgjast nágrannarnir með
húsinu? Finnið þið fyrir pressu
að halda því við?
„Nei, ekki sérstaklega, en
sjálfsagt gerir fólk það, án þess
að það sé að tala um það sér-
staklega við okkur. Sumarið
sem við fluttum inn var mikið
opið út hjá okkur, bæði vegna
flutninganna og svo vegna
þess að við vorum að gera
húsið upp. Þá var mikið af
ferðafólki í bænum og það
kom oftar en einu sinni fyrir
að hingað kom fólk í píla-
grímsferð að skoða húsið. Til
dæmis kom hingað maður
sem hafði búið í húsinu á
stríðsárunum. Hann fékk að
koma inn og skoða og sagði
okkur frá því hvernig húsið
var þegar hann bjó hér. Það er
því greinilegt að margir hafa
taugar til hússins og vilja fylgj-
ast með því.“
– tinna@bb.is
Búa í 120 ára gömlu
húsi við Tangagötu
Á Ísafirði má finna fjölmörg gömul og falleg hús og á hvert
og eitt þeirra langa sögu að baki. Bæjarins besta hitti eigendur
eins þeirra og spurði þá fáeinna spurninga um húsið.
Teitur ráðinn framkvæmdastjóri
Teitur Björn Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Eyrarodda, nýstofnaðs fiskvinnslufyrirtækis á Flateyri.
„Við höfum hug á því að hefja beint flug frá Þingeyri með
ferskfisk til útlanda og höfum fengið góð viðbrögð. Sam-
gönguráðuneytið hefur tekið þessu mjög vel“, segir Teitur.
Stefnt er að því að vinnsla hefjist í september og verða um
30 manns í vinnu hjá fyrirtækinu.
Lögreglan á Vestfjörðum
vill minna foreldra barna og
ungmenna á þá breytingu sem
varð á útivistarreglunum þann
1. september, þegar útivistar-
tími barna og ungmenna stytt-
ist. Unglingar á aldrinum 13-
16 ára mega nú vera úti til
klukkan 22 á kvöldin og börn
12 ára og yngri mega vera úti
til klukkan 20. Þessar reglur
gilda frá 1. september til 1.
maí. Lögreglan á Vestfjörðum
óskar eftir samvinnu við for-
eldra og aðra sem vinna með
börnum og ungmennum um
eftirfylgni við þessar reglur.
Þá vill lögreglan minna for-
eldra á orð sálfræðinganna
Sæmundar Hafsteinssonar og
Jóhanns Inga Gunnarssonar
um uppeldi: „Reglur eru
þroska barna okkar eru afar
mikilvægar og leggja grunn
að velgengni í mannlegum sam-
skiptum. Það er lagaleg og
siðferðileg skylda okkar að
kenna börnum okkar að virða
lög og reglur og þekkja sín mörk
í mannlegum samskiptum.“
Minna á breytt-
an útivistartíma