Bæjarins besta - 04.12.2008, Page 3
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008 3
Karlmaður var á dögun-
um sakfelldur fyrir Héraðs-
dómi Vestfjarða fyrir að
hafa brotið gegn blygðunar-
semi tveggja stúlkna og
barnaverndarlögum með
því að leggjast nakinn upp í
rúm til þeirra. Hins vegar
var hann sýknaður af því að
hafa lagst upp í rúm til ann-
arrar stúlku sem var að
passa fyrir hann og káfað á
henni innanklæða. Var þar
orð gegn orði og þótti
ákæruvaldinu ekki hafa tekist
að færa fram nægar sannanir
fyrir því að maðurinn hefði
framið brotið, svo ekki yrði
véfengt með skynsamlegum
rökum. Þá hafi upplausn orðið
í fjölskyldunni eftir að málið
komst upp en stúlkan var
skyld manninum.
Varðandi brotin gagnvart
hinum stúlkunum var hinn
ákærði í gleðskap og kvaðst
hafa orðið mjög ölvaður og
liðið illa út af drykkjunni og
fengið leyfi til að halla sér í
einu herbergi í húsinu. Hann
hefði þar sofnað eða liðið út
af en síðan vaknað upp við
hróp og öskur og þá gert sér
grein fyrir því að hann lá nak-
inn ofan á sæng í rúmi með
tveimur nemendum sínum.
Ákærði nefndi sem mögu-
lega skýringu á veru sinni í
herbergi stúlknanna að hann
hefði um nóttina farið á kló-
settið og villst á herbergjum
að því loknu, enda undir mikl-
um áhrifum áfengis. Tók
ákærði fram að þetta væri
ágiskun af sinni hálfu, hann
myndi ekkert eftir umrædd-
um atvikum.
Refsing var ákveðin 45
daga fangelsi, en fullnustu
refsingarinnar frestað skil-
orðsbundið í tvö ár.
Var ákærði jafnframt
dæmdur til að greiða stúlk-
unum tveimur miskabætur.
– thelma@bb.is
Sakfelldur fyrir að hafa brotið gegn
blygðunarsemi tveggja stúlkna
Gert ráð fyrir að framkvæmdum
við Skrúð ljúki fyrir aldarafmælið
Töluverðar framkvæmd-
ir eru fyrirhugaðar í nán-
asta umhverfi Skrúðs í
Dýrafirði og er gert ráð
fyrir að þeim verði lokið
fyrir aldarafmæli garðsins
næsta sumar. Þann 7.
ágúst 2009 verða 100 ár
liðin frá því að garðurinn
var vígður og gefið nafn og
hafa framkvæmdirnar það
að markmiði að tryggja
varðveislu garðsins og
tryggja sem best aðkomu
og þjónustu við gesti. Sam-
kvæmt deiliskipulagi fyrir
garðinn felast fram-
kvæmdirnar m.a. í því að
samráði við landeigendur
að Núpi að vegarslóði sem
legið hefur inn Núpsdal
skuli færður fjær garð-
inum og bílastæði gert að-
gengilegra en nú er. Heim-
ilt verði að koma upp lág-
um vegartálmum sem
hindra akstur utan vega
við garðinn. Jafnframt að
umliggjandi land verði
afgirt svo búfénaður
haldist utan við garðinn.
Þess má geta að Skrúður
er einn elsti og merkasti
skrúðgarður landsins.
Framkvæmdasjóður
Skrúðs hefur farið á fram
við Ísafjarðarbæ að hann
tilnefni nýjan fulltrúa í
sjóðinn þar sem Gunnar
Reynir Bæringsson sem
hefur verið fulltrúi bæj-
arins um langt árabil féll
nýlega frá, en hann gegndi
gjaldkerastarfi fyrir sjóð-
inn. Í erindi sjóðsins til
bæjaryfirvalda segir að
þar sem í mörg horn verði
að líta hjá nefndarmönn-
um á næsta ári sé mikil-
vægt að fulltrúi Ísafjarðar-
bæjar verði tilnefndur við
fyrsta hentugleika. Þá
segir einnig að fyrirkomu-
lag Ísafjarðarbæjar að
viðkomandi fulltrúi sé
búsettur á höfuðborgar-
svæðinu hafi reynst vel.
Bæjarráð hefur óskað eftir
tillögu um fulltrúa Ísa-
fjarðarbæjar í stjórnina.
Fara fram á milljón króna afslátt
vegna útlitsgalla á nýbyggingu GÍ
Byggingarnefnd framtíðar-
húsnæðis Grunnskólans á Ísa-
firði hefur farið fram á einnar
milljón króna aflsátt á ný-
byggingu skólans vegna út-
litsgalla í múrhúð utanhúss.
Nefndin fór í skoðunarferð að
nýbyggingunni fyrir stuttu og
voru nefndarmenn sammála
um að fara fram á afslátt á
verkinu. Vestfirskir verktakar
á Ísafirði sáu um verkið og
verður fyrirtækið krafið um
afslátt vegna fyrrnefnds galla.
Svanlaug Guðnadóttir, einn
nefndarmanna, segir múrhúð-
ina gallaða á tveimur hliðum
hússins, á hliðinni sem snýr
að porti skólans og hliðinnni
sem snýr að Dótakassanum,
leikfangaverslun á Ísafirði.
„Það sér ekki mikið á þess-
um hliðum en þetta er nýtt
hús og er það krafa nefndar-
manna að húsið líti óaðfinn-
anleg út. Múrhúðin hefur
þornað of hratt sem veldur
því að áferð hennar er ekki
með besta móti og ekki nógu
falleg að sjá. Það er ekki búið
að samþykkja þessa kröfu en
þetta er lagt fram í samráði
við verktakana. Þeir sáu einnig
þennan galla og leitum við að
lausn í málinu. Við búumst
við því að húsið verði málað
aftur, “ segir Svanlaug.
Áætlaður kostnaður við ný-
byggingu Grunnskólans á Ísa-
firði er 316 milljónir króna,
en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir að framkvæmdirnar myndu
kosta 273 milljónir. Munurinn
er því 43 milljónir. Ástæðan
fyrir hækkuninni er hækkun
vísitölu og hækkun á verði
búnaðar, einkum kaupum á
húsgögnum. – birgir@bb.is
Farið er fram á milljón króna aflsátt á nýbyggingu
Grunnskólans á Ísafirði vegna útlitsgalla í múrhúð utanhúss.
Veraldarvinir bjóða Ísafjarðarbæ aðstoð
Veraldarvinir hafa boðið
fram sjálfboðaliða til að sinna
umhverfistengdum verkefn-
um í Ísafjarðarbæ næsta sum-
ar. Veraldarvinir eru félaga-
samtök sem vinna að um-
hverfis- og menningartengd-
um verkefnum um allt land.
Á síðustu tveimur árum hafa
samtökin meðal annars staðið
fyrir skipulegri hreinsun strand-
lengju Íslands og gert er ráð
fyrir að halda því verkefni
áfram til ársins 2012.
„Við hreinsum allt sem
hægt er að taka með höndum
og kortleggjum síðan með
GPS tækjum þau stykki sem
ekki er hægt að fjarlægja nema
með stórvikrum vinnuvélum.
Hugmyndin er síðan að fjar-
lægja þau stykki síðar meir“,
segir í bréfi sem Veraldarvinir
hafa sent bæjaryfirvöldum í
Ísafjarðarbæ. Væntanlega
munu 360 sjálfboðaliðar taka
þátt í þessu verkefni árlega á
tímabilinu 2009-2011. Sam-
tals munu 1.680 sjálfboðaliðar
koma að verkinu og er heildar-
fjöldi vinnustunda áætlaður
134.400 á árunum 2006-2011.
Í sumar tóku samtökin á
móti tæplega 700 erlendum
sjálfboðaliðum sem mynduðu
69 hópa sem unnu að ýmsum
verkefnum vítt og breitt um
landið, þar á meðal á Vest-
fjörðum. Veraldarvinir eru fé-
lagasamtök sem rekin eru án
hagnaðarsjónarmiða. Samtök-
in voru stofnuð 2001 og hafa
frá upphafi haft umhverfismál
í öndvegi. Markmið samtak-
anna er að stuðla að heilbrigð-
um lífsháttum og betri um-
gengni. Nánari upplýsingar
um starfsemi Veraldarvina má
finna á heimasíðu samtakanna
www.wf.is.
– thelma@bb.is
Engin aukning á blönd-
uðu heimilissorpi
Engin aukning hefur orðið
á blönduðu heimilissorpi til
förgunar hjá sorpbrennslu-
stöðinni Funa í Engidal að
sögn Vernharðs Jósefssonar
stöðvarstjóra. Hann segir sorp-
magnið vera árstíðabundið og
segist ekki geta skrifað upp á
minnkandi neyslu hjá Vest-
firðingum líkt og hjá íbúum
höfuðborgarsvæðisins, sé
horft til þess sorpmagns sem
almenningur skilar frá sér.
Fregnir hafa borist af því að
blandað heimilissorp hafi
minnkað um 6% á höfuðborg-
arsvæðinu en það er rakið til
minnkandi neyslu vegna efna-
hagsástandsins.
Nefnd á vegum Ísafjarðar-
bæjar fer nú yfir framtíðar-
skipan sorpmála í sveitarfé-
laginu. Í erindisbréfi hennar
felst m.a. að athuga hvort aðrar
leiðir en rekstur Funa séu hag-
kvæmari til að eyða sorpi. Eitt-
hvað er í að nefndin skili af
sér niðurstöðum en matsvinn-
an kemur til með að taka lengri
tíma en áætlað var þegar hún
tók til starfa.
– birgir@bb.is