Bæjarins besta - 04.12.2008, Page 9
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 2008 9
Karlnafninu Marzellíus var
hafnað af mannanafnanefnd á
þeirri forsendu að nafnið bryti
í bága við íslenskt málkerfi. Í
úrskurði nefndarinnar kemur
fram að nafnið Marzellíus geti
ekki talist ritað í samræmi við
ritreglur íslensks máls þar sem
bókstafurinn z teljist ekki til
íslenska stafrófsins þótt hann
komi fyrir í nokkrum manna-
nöfnum sem unnið hafi sér
hefð. Valdimar Birgisson og
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
skírðu son sinn Birgi Marzel-
líus Valdimarsson en manna-
nafnanefnd vill ekki sem fyrr
segir fallast á nafnið Marzell-
íus sem þó á sér ríka hefð á
Ísafirði. „Í fyrsta lagi þá bera
einstaklingar þetta nafn auk
þess var t.d. skipasmíðastöð
Marzellíusar ritað með z.
Einnig samþykkti nefndin
fyrir einu og hálfu ári nafnið
Marzelíus með einu l-i. Þetta
er því klárlega mismunun að
okkar mati,“ segir Valdimar
Birgisson.
„Ég sé engin rök fyrir því
að banna nafnið Marzellíus,
þetta er einhver rökleysa. Í
öðru lagi sé ég ekki af hverju
ríkið á að hafa eitthvað með
að gera hvað við skírum börn-
in okkar. Líklega er þetta
hugsað sem einhver vernd
fyrir börnin, að það sé verið
að vernda börnin fyrir foreldr-
um sínum þannig að þau séu
ekki lögð í einelti en ég hugsa
að þetta sé misskilningur,“
segir Valdimar. Þau hjón ætla
sér að halda í nafnið Marzell-
íus á syni sínum en Valdimar
býst við að sonur þeirra verði
skráður hjá mannanafnanefnd
sem Birgir Valdimarsson.
Valdimar er uppalinn Ísfirð-
ingur en er búsettur á höfuð-
borgarsvæðinu í dag og segir
hann fólk spyrja þau hjón
hvort þau séu að vestan þegar
þau segja þeim að sonur þeirra
heitir Birgir Marzellíuz, því
nafnið Marzellíus á sér ríka
hefð á Ísafirði.
Mannanafnanefnd samþykkti
á sama fundi kvennöfnin
Karó, Petrós, Úranía og Evey.
Valdimar segir það ekki sitt
að dæma hvort þau nöfn eigi
meira rétt á sér en Marzellíus.
„Ég get haft skoðun á því
hvort mér finnist þessi nöfn
falleg eða ljót en það er ekki
mitt að dæma og ekki ríkisins
heldur. Þessi árátta ríkisins að
hafa alltaf vit fyrir okkur nær
hámarki í því að það heimtar
að segja okkur hvað við eigum
að skíra börnin okkar, það á
að vera mál hver og eins. Ef
barnið er ósátt við nafnið þá
getur það breytt því þegar það
vex úr grasi,“ segir Valdimar
Birgisson.
– birgir@bb.is
Nafnið Marzellíus ekki gjald-
gengt að mati mannanafnanefndar
Umhverfisnefnd Ísa-
fjarðarbæjar hefur sam-
þykkt endurbyggingu á
gamla Salthúsinu á Þing-
eyri á upprunalegum stað.
Sótt var um leyfi til að
reisa húsið í sinni upp-
runalegu mynd og er verk-
ið er unnið með tilstyrk
húsafriðunarnefndar.
Endurreisn hússins hófst
fyrir nokkrum árum en
hlé hefur verið á þeim að
undanförnu og eru Þing-
eyringar orðnir langeygir
eftir framkvæmdalokum.
Fyrr á árinu var hafist
handa við að endurgera
bita og fjalir úr húsinu.
Salthúsið var reist á 18.
öld. Sagan segir að húsið
sé jafn gamla pakkhúsinu
á Hófsósi, þar sem Vestur-
fararsetrið er til húsa þótt
umdeilt sé hvenær húsið
hafi verið byggt.
„Sumir töldu það vera
elsta hús landsins, reist
árið 1732 eða -4. Aðrir
töldu og telja að það hafi
verið reist á tíma einokun-
arverslunarinnar árið
1774. En þá voru allmörg
plankahús smíðuð og reist
í Danmörku, tekin sundur
og reist á verslunarstöðun-
um þar sem Konungsversl-
unin hin síðari var við lýði.
Í greinagerðinni segir að
sami smiður hafi byggt
húsin á Hofsósi, Þingeyri
og eins í Claushavn og
Jakobshavn á Grænlandi“,
er haft eftir greinargerð
Hjörleifs Stefánssonar,
arkitekts, á ruv.is.
Mörg sögufræg hús eru
á Þingeyri og má þar nefna
Vertshús, en það er eitt
elsta íbúðarhús á Þingeyri
og var fyrsti veitingarstað-
urinn. Fyrsta símstöðin á
Þingeyri var í húsinu sem
var reist sumarið 1881.
Einnig er að þar að finna
gamla spítalann sem er
elsta sjúkrahús í Vestur
Ísafjarðarsýslu. Hallhús,
en þar var fyrsta skurðað-
gerð með fullri smitgát
gerð á Íslandi 6.júní árið
1891. Einnig má nefna
gamla kaupfélagið, veg-
legasta verslunarhús á
Vesturlandi þegar það var
byggt 1872. – thelma@bb.is
Salthúsið reist á
upprunalegum stað
Þingeyri. Ljósm: © Mats.
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
Gísli Súrsson kynnti
Vestfirði fyrir Þjóðverjum
Kómedíuhjónin Elfar Logi
Hannesson og Marsibil Krist-
jánsdóttir eru nýkomin til
landsins eftir vel heppnaða
ferð til Karlshrue í Þýskalandi.
Erindið þangað var að kynna
Vestfirði á hinni árlegu ferða-
sýningu Horizont. Gísli Súrs-
son var með í för og var reglu-
lega sýnt brot úr leiknum þá
daga sem festivalið stóð yfir.
„Kómedíufrúin vippaði sér í
víkingadressið líka og má því
segja að Gísli og Auður hafi
verið á vappi í Karlshrue. Þrátt
fyrir heldur undarlegt ástand
hér á landi tóku Þjóðverjar
okkur mjög vel og þurfti Gísli
því ekki að grípa til spjótsins
en það var þó tekið með til
öryggis ef sótt yrði að okkur“,
segir Elfar Logi. Þetta er í
annað sinn sem Gísli Súrsson
er sýndur í Þýskalandi en áður
hafði leikurinn verið sýndur á
leiklistarhátíð í Hannover og
vann þar til verðlauna eins og
fram hefur komið.
Þá er mikið um að vera í
Kómedíuleikhúsinu um þess-
ar mundir. Í Tjöruhúsinu á
Ísafirði er verið er að æfa jóla-
leikinn Jólasveinar Grýlusynir
sem verður ekki bara sýndur
hér fyrir vestan þessi jólin.
Jólasveinar Grýlusynir verða
á höfuðborgarsvæðinu 1.-11.
desember og heimsækja leik-
og grunnskóla. „Óhætt er að
segja að sveinunum að vestan
hafi verið vel tekið því nú
þegar hafa verið bókaðar 11
sýningar sem gerir ein sýning
á dag“, segir Elfar Logi og
bætir við að rétt sé að benda
Kómedíuvinum í borginni sér-
staklega á að það verður frí og
opin sýning á Jólasveinar
Grýlusynir í Þjóðmenningar-
húsinu sunnudaginn 7. desem-
ber kl.16. Einleikur Kómedíu-
leikshússins Dimmalimm verð-
ur einnig sýnt í Þjóðmenning-
arhúsinu sama dag og hefst sú
sýning kl.14 og er einnig sýnd
sýningargestum að kostnað-
arlausu. Sýningar á Jólasvein-
ar Grýlusynir í Tjöruhúsinu á
Ísafirði hefjast laugardaginn
13. desember.
Undanfarin ár hefur Kóme-
díuleikhúsið tekið að sér að
lesa upp úr jólabókunum og
eru viðkomustaðirnir margir
og breytilegir, allt frá dvalar-
heimilum til frystihúsa. Fyrsti
Jólaupplesturinn verður í Ey-
mundsson á Ísafirði föstu-
daginn 28. nóvember kl.17.
Víða verður komið við og
lesið m.a. úr bókum frá Bjarti,
Uppheimum og að sjálfsögðu
frá Vestfirska forlaginu. Í des-
ember verða margir kómískir
jólaupplestrar sem verða kynnt-
ir nánar þegar nær dregur.
GusGus hefur lokið upptökum á sjöttu breiðskífu sinni í hljóðverinu Tanknum í Önundarfirði. Voru félagarnir
í GusGus einstaklega ánægðir með hljóðverið og gengu upptökurnar vel að þeirra sögn. Tóku þeir upp lög sem þeir
voru búnir að semja áður en þeir mættu í Tankinn en þeir eru sannfærðir um að Önundarfjörðurinn hafi sett dýpra
„dub“ á hljóðheim plötunnar. Eru GusGus-liðarnir veðurtepptir fyrir vestan og halda til í góðu yfirlæti heima hjá
Önundi Hafsteini Pálssyni, eiganda Tanksins, á meðan þeir bíða eftir að komast heim til sín.
Önundarfjörðurinn skapaði dýpra „dub“
GusGus ásamt Önundi Hafsteini Pálssyni í Tanknum. Ljósm: Ágúst G. Atlason – gusti.is.