Listin að lifa - 01.12.1998, Síða 6
Kveðja frá
cÁkureuri
Þegar Oddný Sv. Björgvins rit-
stjórí bað mig að skrifa nokkur orð
í blað ykkar eldrí borgara þá var
mér það bœði Ijúft og skylt. Þeg-
ar ég lít til baka yfir 12 ára starf
að sveitarstjórnarmálum, fyrst
sem bœjarstjórí á Dalvík, þá á
ísafirði og nú hér á Akureyri fer
ekki hjá því að í hugann komi
mörg verkefni tengd málefnum
aldraðra. Segja má að öll þau
mál, sem borist hafa inn á mitt
borð þessu tengd, hafi verið
þannig vaxin að œtíð megi gera
betur og skerí sig að því leytinu til
ekkert úr öðrum verkefnum sve'rt-
arfélaga.
Sveitarfélögin hafa alla tíð gegnt mik-
ilvægu hlutverki á sviði félagsmála en
í samræmi við breyttan tíðaranda taka
skyldurnar breytingum og í dag er það
meginatriði að ekki sé gerður greinar-
munur á íbúum sveitarfélaga eftir
aldri við framkvæmd félagsþjónust-
unnar. Hún á að standa til boða öll-
um, sem á þurfa að halda, óháð aldri
og er það í ágætu samræmi við þann
anda sem er í stefnumiði Sameinuðu
þjóðanna á ári aldraðra.
Á síðari árum hafa sveitarfélögin
orðið burðugri til þess að veita öldruð-
um lögbundna þjónustu og hefur það
m.a. gerst með því að þau hafa stækk-
að við sameiningu eða þá að nærliggj-
andi sveitarfélög hafa tekið upp sam-
starf á þessu sviði. Þessar breytingar
hafa leitt til þess að nú nær skipuleg
félagsþjónusta til meginþorra allra
landsmanna.
Þjónusta Akureyrarbæjar við aldr-
aða er margþætt og má sem dæmi
nefna að á vegum bæjarins eru í boði
75 hjúkrunarrými, 100 öldrunarrými
og ennfremur eru heimildir fyrir 12
dagvistarplássum sem nýtast um 20
manns að jafnaði. Ennfremur er rekin
á vegum bæjarins öllug heimahjúkrun
og heimaþjónusta, þ.m.t. heimsending
matar, snjómokstur og garðaþjónusta.
Einnig má nefna að tómstundastarf fer
fram innan öldrunarstofnana og í-
þrótta- og tómstundaráð Akureyrar-
bæjar hefur umsjón með tómstunda-
starfi þessa aldurshóps. Meginstefna
bæjarins í öldrunarmálum undanfarin
ár hefur verið sú að auka heimaþjón-
ustu og draga úr stofnanaþjónustu. Til
þessa liggja ýmsar ástæður.
Að minni hyggju liggja þær fyrst
og fremst hjá þeirn sem í daglegu tali
eru nefndir eldri borgarar en ég hef þó
heyrt ýmsa nefna Heldri borgara og
kann ég ágætlega við þann talsmáta.
Samsetning þessa hóps er að breytast.
Nú er þessi aldurshópur ekki lengur
einungis samsettur af fólki sem hefur
alla tíð verið á kafi í brauðstritinu.
Kominn er til sögunnar ört vaxandi
hópur sem er vanur því að eiga tóm-
stundir, ferðast um víða veröld og
njóta flestra lystisemda nútímans,
hvort sem við álítum þær góðar eða
slæmar. Þegar haft er í huga að þjón-
usta Akureyrarbæjar hefur á síðustu
árum verið í auknum mæli veitt út frá
einstaklingsbundnum þörfum þá leiðir
af framansögðu að nýrri samsetningu
Heldri borgara munu fylgja breyting-
ar og auknar kröfur. Spurningin er
einungis sú í hve miklum mæli opin-
berir aðilar munu mæta þeim og að
hve miklu leyti þessum breyttu þjón-
ustukröfum verður beint til hópsins
sjálfs.
í dag er lagt mikið upp úr því í
heimaþjónustu Akureyrarbæjar að
beita svokallaðri „Soffíu frænku að-
ferð“ sem kennd er við þá frægu Soff-
íu, sem flestir þekkja úr Kardi-
mommubæ Torbjörns Egners. Soffía
frænka kenndi ræningjunum það sem
þeir ekki kunnu og taldi lærdóminn
betri fyrir þá en það verklag að hún
ynni verkin fyrir þá. Staðreyndin er
nefnilega sú að þrátt fyrir skerta getu
með árunum þá eru aldraðir langt frá
því að vera upp til hópa ósjálfbjarga.
í aðferð Soffíu frænku felst það að
aldraðir eru aðstoðaðir við að vinna
verkefni daglegs lífs með nýjum að-
ferðum í stað þess að verkin séu unnin
fyrir þá og þeir síðan skildir eftir í
tómarúmi. Ekki er þó allt unnið með
þessu því ýmislegt fleira þarf að koma
til og ótal verkefni koma upp í hug-
ann.
Á þjónustusvæði Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri eru um 1430
íbúar sem eru 70 ára og eldri og gert
er ráð fyrir að fjölgun í þessum ald-
urshópi verði um 160 manns á næstu
tíu árum, þ.e. aldraðir verði um 1590
árið 2008. Mörg verkefni bíða því
augsýnilega úrlausnar. Það sem er efst
á baugi nú er að leggja niður öldrunar-
þjónustu á dvalarheimilinu í Skjaldar-
vík og færa inn í nýlegt hús í Kjarna-
lundi, sem er í útjaðri Kjarnaskógar,
útivistarparadísar Akureyrar, en þó
ber að taka fram að þar ekki um fram-
tíðarlausn að ræða. Vinna þarf að því
að fjölga hjúkrunarrýmum, bæta dag-
vistarúrræði minnissjúkra og auka
heimaþjónustu. Ennfremur hafa verið
til umræðu hugmyndir er lúta að sér-
stökum aðgerðum í heilsuvernd aldr-
aðra að danskri fyrirmynd og aðgerðir
til að rjúfa einangrun og óöryggi
þeirra einstaklinga sem vissulega eru
dæmi um.
Eg vil að lokum nota þetta tækifæri
og óska Heldri borgurum og félögum
þeirra um land allt velfarnaðar á kom-
andi árum og vonast til þess að starf
þeirra blómgist á nýju ári aldraðra.
cKiisijátv 9W c')úiiussan
6