Listin að lifa - 01.12.1998, Síða 9

Listin að lifa - 01.12.1998, Síða 9
Jólatré torfbæjarins. ana. Upp úr því blossar upp atvinnu- leysi hjá útskurðarmeisturum, til dæmis fann ég engan til að taka mig sem nema.“ - Færðu nógan efnivið á íslandi til að smíða úr? „Islenskur viður er mjög góður. Hann vex hægar en víða erlendis, er því þéttur. Eg nota allan íslenskan við nema grenivið. Stefna okkar í Gallerí Hnoss er að nota vannýtt efni, eins og steinbítsroð, járnarusl og afskornar trjágreinar úr görðum. Við erum um- hverfissinnar,“ segir Bjarni og hlær. - Nú ertu með námskeið sem þú segir að fólk um og yfir fimmtugt sæki mikið. Hvað byrjarðu að láta nemendur þína gera? „Að tálga fugla. Fyrst þröstinn sem er tiltölulega einfaldur. Ég nota eggið Hann Luktar-Gvendur... til að sýna formið. Með því þjálfast ekki aðeins hendur, en líka augu. Þótt fólk hafi séð fugl, þá veit það ekki formlögun hans. Lögun eggs þekkja allir. Þegar nemendur fara að sjá fuglinn fyrir sér inni í kubbnum, þá er efnið farið að tala til þeirra. Efnið gerir sín- ar kröfur. Eggið er líka notað í sam- bandi við andlitið. Hakan er mjórri hiutinn, hvirfillinn sá breiðari. Gott er að móta leirandlit fyrst. Kúnstin er að sjá hlutina fyrir sér kúbískt. Skynja hvernig formin verða til. - Það má segja að þú sért með mörg járn í eldinum, þar sem þú kenn- ir líka að herða jám í eldi! „Eldsmiðjan er alveg dottin niður, sem var áður fyrr á næstum hverju sveitaheimili til að smíða skeifur og íslenski jólasveinninn að klífa uppfjallið. verkfæri. Ef þú ætlar að breyta járn- stykki, geturðu lítið breytt formi þess nema í eldi. í eldinum má gera nánast hvað sem er með járnið, og búa til verkfæri fyrir aðrar listgreinar. Nem- endur mínir í tálgun og tréskurði geta mótað sín eigin verkfæri í eldi. Eld- smiðjan er móðir annarra verkgreina/ listgreina.“ Ég yfirgef tréskurðarmeistarann sem situr við gluggann. Tálguhnífurinn leit- ar inn í kubbinn, að formi sem býr þar og skynjunin hefur þegar mótað. Sagan af unga drengnum rifjast upp. Drengnum sem var hætt kominn á hálum ís fíkniefna, en staðnæmdist hjá gamla útskurðarmeistaranum og heillaðist svo af handbragðinu, sem hann fékk að spreyta sig á - að hann rataði á rétta braut. _ „ __ Fjör í Fcereyjcim Söngfélag FEB í Reykjavík verður á faraldsfæti í sumar. Á Ári aldraðra hefur Söngfélagið hug á að sækja frændur vora, Færeyinga heim - og koma við hjá vinum okkar á Austur- og Norðurlandi, og taka með þeim lagið. Eftir ógleymanlega ævintýraferð til Kanada á liðnu sumri, eru kórfélagar albúnir að leggja aftur land undir fót. Það verður ekki amalegt að syngja með góðum vinum á björtum Jónsmessunóttum í Færeyjum og á Islandi. Karlar á basta aldri þið með björtu raddirnar. Þið með hina djúpu flauelsmýkt bassans! Þeir sem eru lífsglaðir og til í að starfa með gefandi, kjarkmiklum hópi sem þorir að takast á við fjölbreytt verkefni. Hafið endilega samband. Við í Söngfélaginu tökum vel á móti ykkur. Upplýsingar í síma 554-4583

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.