Listin að lifa - 01.12.1998, Qupperneq 12

Listin að lifa - 01.12.1998, Qupperneq 12
HEILBRIGÐ SÁL í Það er glatt á hjalla hjá leikfimi- konunum í Víkingsheimilinu í Blesugróf, sem sitja yfir kaffi- bolla áður en leikfimin hefst. „Kaffiklúbburinn okkar byrjar kl. 10.30, maður verður að hafa tíma til að rabba saman.“ „Þeir sækja svo í okkur, strákarn- ir. Sérðu ekki hvað við erum hressar?" segir önnur. Almennur hlátur. Leikfimitímann sækja bæði konur og karlar. Karlmennirnir streyma að, en enginn hættir sér inn í kátan konuhóp kaffistofunn- ar. - Þið eruð í fjölmennasta leikfimi- tíma landsins... Stærsti leikfimihópur landsins á vegum Iþrótta- og tómstundaráðs „Já, og þeim skemmtilegastaf' segja þær og hlæja. „Tvímælalaust erum við með besta kennarann. Hún Edda er al- veg frábær! Við þyrftum að fá pall undir hana, svo að hún sæist alls- staðar að úr salnum.“ „Við erum lílca á öllum aldri. Sú elsta okkar er 83 ára. Hún er svo liðug og kemur alltaf tímanlega til að hita sig upp. Hún Arný byrjaði í hestunum 73 ára og ...“ Þær líta greinilega upp til aldursforsetans, sem þær segja að sé liðugust þeirra allra. - Hittist þið eitthvað utan leik- fiminnar? „Já, blessuð vertu. Við göngum saman, aðallega á sumrin, þegar leikfimin er ekki. Gönguhópurinn okkar heitir „Léttar á löppinni“. Sýnist þér við ekki vera það?“ Og þær veltast um af hlátri. Skiljan- legt að karlarnir leggi ekki í þær! í Víkingsheimilinu eru starfs- menn yfir sig hrifnir af þessum fjölmenna hópi, sem mætir hvern- ig sem viðrar. „Bara að aðrir hóp- ar væru svona duglegir," segja þeir. „Þau slá öll met í aðsókn, yf- irleitt eru aldrei færri en 70 - oft um 90 manns í tímunum." „Líka skemmtilegt hvað hópurinn spannar alla Reykjavík, kemur vestast úr Vesturbænum og ofan frá Grafarvogi," segir Edda Bald- ursdóttir íþróttakennari. „Ég er búin að vera með hópinn í 5 ár. Fólkið hefur gaman af að hittast og góður félagsandi hefur mynd- ast. Flestir korna 10 mínútum fyrir tímann og skokka um salinn til að hita sig upp. Segja má að þau hiti bæði líkama og sál,“ segir Edda og brosir, greinilega stolt af stóra hópnum sínum. H a ust Söngfélag FEB í Reykjavík var með hausttónleika í Breiðholtskirkju sunnudaginn 25. október. A söng- skránni voru m.a. lög kórsins frá Kanadaferð í sumar. Kórinn söng 20 lög, bæði gömul velþekkt svo og nokkur ný, við góðar undirtektir áheyrenda, sem nutu þess að hlusta á vel fluttan söng undir stjórn Kristínar Pjetursdóttur kórstjóra. Undirleikari var Sigrún Gren- dal. Hann er „falleg rós í hnappagat" félagsins, hinn frá- bæri kór okkar, sem sífellt hefur sótt í sig veðrið einkuni í sumar. Vel æfð söngskrá féll í góðan jarð- veg í byggðum Islendinga í Kanada, þá sérstaklega á Islendingadaginn í Gimli eins og sjá má á myndinni. Við þökkum kórnum ötult starf og árangursríkt. ?Pált‘ ^éjíslasan, formaður FEB í Rvk. tó n I e 12

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.