Listin að lifa - 01.12.1998, Blaðsíða 18
- Pensjonisten -
í júlí sl. gekk hressilegur maður inn á skrifstofuna hjá
FEB í Reykjavík.
Þar var mœftur Tore Thjömöe, ritstjóri Pensjonisten,
blaðs eldri borgara í Noregi. Hann var tilbúinn til
samstarfs við Listin að lifa, og birti góða grein um fé-
lagsstarf eldri borgara á íslandi, einnig hvatti hann
l'rfeyrisþega í Noregi til að heimsœkja ísland, eftir að
hafa ferðast um landið og heillast af góða sumarveðr-
inu okkar.
BesBk
i vest
Tore Thjömöe, ritstjóri norska „eldri
borgara biaðsins" Pensjonisten með
Oddnýju Sv. Björgvins, ritstjóra
Listin að lifa.
„Island er næsta sumarleyfisland okkar.
Hve mörg okkar hafa heimsótt ná-
granna okkar vestur í Atlantshafi?
Flestir íslendingar eiga rætur sínar í
Vesturlandsfjörðum Noregs frá þeim
tíma sem landnám Islands hófst á átt-
undu öld,“ segir á forsíðu Pensjonisten.
„ísland er með 28.000 ellilífeyris-
þega“ er yfirskrift greinar, þar sem
sagt er að félög eldri borgara á íslandi
séu með hæstu félagaskrán-
ingu miðað við fólksfjölda á
öllum Norðurlöndum og trú-
lega í öllum heiminum. Að
50% lífeyrisþega yfir 67 ára
séu skráð í félög eldri borgara
á Islandi, en í Noregi séu að-
eins 20% félagsmenn.
„Heimsækið vini okkar í
vestri“ er fyrirsögn á góðri
ferðagrein um ísland.
„ísland er falleg, heillandi og
myndræn eyja. Hún er bæði ólík og
lík okkar eigin landi. Eyja með virk-
um eldfjöllum og hraunbreiðum er
eins ólík norska fjalllendinu og hægl
er að hugsa sér. En Islendingar eru
bræður okkar, fólkið sem stendur okk-
ur næst í heiminum," segir Tore.
Hann hvetur eldri Norðmenn til að
heimsækja Island. Landið sé góður
valkostur fyrir eldri borgara, þar sem
margar skoðunarferðir séu skraddara-
saumaðar fyrir eldra fólk. Hótelin séu
fyrsta flokks. Rúturnar séu litlar og
þægilegar. Og aldrei sé langt að ganga
frá rútu að áhugaverðum stöðum í
landslaginu. Að auki sé íslenski hest-
urinn öruggur fyrir alla aldurshópa.
Pensjonisten er gefið út í yfir
90.000 eintökum og er með 200.000
Island er en
vakker, «*"*£
kontrastfyk oy. lan(i, 0ya
men ''ín e vnlkaner, lava og eruptive
med aktive vulkane . norske srunn.
hergarter er sa k Men isiendin-
fÍ:rer"r^-de,fo.ksoms.ar
oss nærmcst i verden. ^
„Pensjonisten"
fasta lesendur. Það er trúlega langt
síðan ísland hefur fengið eins góða
kynningu í Noregi. Við þökkum Tore
Thjömöe kærlega fyrir góð skrif og
vonumst eftir góðu samstarfi við
hann.
Leiðrétting
á dagskrá!
Sú breyting hefur
orðið á dagskrá í Ásgarði,
að félagsvistin á
föstudögum og
sunnudögum hefst
kl. 13.30
(ekki kl. 14.00)
18