Listin að lifa - 01.12.1998, Side 24

Listin að lifa - 01.12.1998, Side 24
Rœtt við séra Braga Skúlason sjúkrahúsprest um ellina sem upphaf nýs lífs Elun er vor - núr rmrgumv Fáir standa oftar andspœnis tímamótum lífs og dauða en sjúkrahúsprestar. í umhverfi sjúkrahússins er hin œðsta speki ofarlega t hugum flestra, og hlutskipti prestsins er að ve'ita svör um Itfið og dauðann. „Hér eru margir að glíma við guð, eða velta fyrir sér spurningunni um guð," segir Bragi. „Mjög margir eru vissir um tilvist hans, en spyrja hvort hann sé svona harður dómari að leggja á þá byrðar sem þeir vilja ekki bera. Menn gleyma því, að sársauka- fyllsta reynslan er sú sem þrosk- ar manninn mest." Bragi missti systur sína, þegar hann var tæpra tveggja ára. „Allt uppgjörið í kringum missinn var geysimikið mótunarferli. Þáttur afa míns, að ég barnið 'ætti að vera viðstaddur kistulagninguna til að verða ekki myrkfælinn síðar á ævinni, mótaði mig sterkt. Myndin af henni í kistunni vitjaði mín aftur við mína fyrstu kistulagningu. Þessi afi minn missti föður sinn, þegar hann var 10 ára og mátti ekki gráta, en fór á hverj- um morgni út í fjós til að fá útrás fyrir sorgina. Um þetta er skrifað í bókinni „Æðrulaus mættu þau örlögum sín- um“. Eldri kynslóðin varð að „þrauka, þola og þegja“, ekki gráta, bera örlög sín með karlmennsku og fara beint út í lífsbaráttuna aftur. En sorgarferlið verður alltaf að eiga sinn tíma og upp- gjörið á sér stað, þegar byrjað er að tala. Þegar maður missir systkini er eins og þau eldist með manni, og þannig var með þessa systur mína. Fullorðinn skrifa ég bókina „Von“ fyr- ir syrgjendur sem byggir á systurmiss- inum. Þarna kom reynsla afa míns inn í myndina, hjálpaði mér til að vera aldrei myrkfælinn. Svona tengingu má oft sjá í fjölskyldumynstrinu. Gömlu gildin sem afar mínir og ömmur kenndu mér hafa stutt mig í lífinu. Nú eru foreldrar mínir elsta kynslóðin, og ég kominn einu þrepi nær því að út- Starfsfólk og sjúklingar fjölmenna á aðventustundirnar. Á aðventustund á Landspítalanum. deila lífsgildum til þeirra yngri í fjöl- skyldunni. KÖLLUN MÍN - SAMTAL MITT VIÐ GUÐ Homsteinar í trúarlífi mínu eru bænir og ritningarlestur allt frá unga aldri. Sautján ára fæ ég vissu fyrir því, að það sé guðs vilji að ég þjóni honum. Þetta var spurning um sjálfsmynd og löngun til að stefna í ákveðinn farveg. Fyrst var ég ekki viss um að ég vildi þetta, en allt styrkti köllun mína hægt og sígandi. Ég fékk líka fljótt vitneskju um, að mér væri ekki ætlað að vera sóknar- prestur. Meðvitað og ómeðvitað hef ég undirbúið mig fyrir starfið, sem ég gegni nú. Ég átti ekki von á því að byrja svona fljótt í þessu starfi, en 1989 skorti Landspítalann m.a. þjón- ustu við krabbameinssjúklinga og for- eldra með mjög veik börn, og síðan hef ég unnið hér.“ Bragi vígist til prests 1982 í Hafn- 24

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.