Listin að lifa - 01.12.1998, Page 27

Listin að lifa - 01.12.1998, Page 27
lífsins, ekki sú sem skiptir mestu máli. í þeirri birtingarmynd deyr holdlegur líkami. Dýrðarlíkami tekur við. FJÖL - SKYLDA, FÁ - SKYLDA Þegar maður sér hve mikils virði fjöl- skyldan er hverjum og einum á loka- stundu jarðlífsins, hlýtur sú spuming að vakna „hver sé tilgangur fjöl- skyldulífsins?“ Margar fjölskyldur koma saman til að skemmta sér og hafa það gott saman, en yfirborðs- spjall einkennir því miður of oft slíkar samkomur. Fjölskyldulífið er alltof grunnt til að fólk sé undirbúið til að styðja hvort annað, þegar erfiðleikar steðja að. Mikilvæg merking hvílir í orðinu fjöl-skylda, það að takast á hendur að rækja skyldur við þá sem eru innan fjölskyldurammans í gagnkvæmu sam- bandi þar sem virðing fyrir einstak- lingnum er í fyrirrúmi. Fjölskyldugerðin er alltaf að breyt- ast, og í nútímanum hafa sumar fjöl- skyldur breyst í fá-skyldur eða jafnvel ei-skyldur. Breytingin úr stór-fjöl- skyldu í kjarna-fjöl-skyldu, smá-fjöl- skyldu eða jafnvel ör-fjöl-skyldu, þar sem blóðtengslin ein ráða ekki skil- greiningunni, heldur í vaxandi mæli virknin í fjölskyldugerðinni sjálfri, að bera skyldur gagnvart þeim sem mað- ur tengist. Við búum í samfélagi við fram- lengdar fjöl-skyldur. Ég tengdist þess- ari hugsun fyrst, þegar ég heyrði við- tal við John Wayne, kvikmyndaleikar- ann fræga, fyrirmynd margra karl- manna af sinni kynslóð. John var framlengdur faðir, þ.e. faðir sem átti börn með fleiri en einni konu. Hann bar því skyldur, fjöl-skyldur á fleiri en einum stað. Þetta verður stundum ó- endanlega flókið í öllum þeim hópi af „öfum og ömmum, pöbbum og mömmum" sem verða til vegna fram- lenginga. Þegar blóðtengslin ein ráða ekki fjölskyldugerðinni, er oft enn meiri þörf á að rækta vel fjölskyldugarðinn, einkum vegna barnanna og eldri ein- staklinga, en hér eins og alltaf er það kærleikurinn til náungans sem ræður. Öldruðum einstaklingi, sem fjöl- skyldumeðlimir sinna ekki skyldum gagnvart, ber ekki skylda til að deyja á hagkvæmum tíma fyrir hina yngri - í nafni hagræðingar, endurnýjunar vinnuafls, eða aukningar á ráðstöfun- artekjum yngri kynslóða. Krónur og aurar verða aldrei réttur mælikvarði á líf einstaklinga. Framleiðni tiltekinnar mannsævi er fyrst rétt metin, þegar hún er séð í tengslum við annað fólk, mér liggur við að segja í sögulegu samhengi, til- finningalega, andlega, trúarlega, sið- ferðilega og tilvistarlega. GILDI ELDRI KYNSLÓÐA Fagnaðarefni mitt í lífinu er að til- heyra fjölskyldu, sem ég get deilt kjörum með, - og trúin á Krist,“ segir Bragi. „I bernsku var ég svo gæfu- samur að fá að njóta leiðsagnar eldri kynslóðar og tileinka mér lífsgildi hennar. Ætíð síðan hef ég haldið utan um þau gildi sem mín eigin. Ég er sáttur við, hvaðan ég kem. Á seinni árum hefur þetta veganesti nýst mér geysilega vel, og hjálpað mér til að takast á við lífið. Og mér finnst sem draumar eldri kynslóða séu að rætast í okkur að einhverju leyti, gott að þeir rætast ekki allir, því að sumir eru óraunhæfir. En það er mikilvægt að eiga sér draum, og ekki síður að öðlast sátt við stefnu í lífinu. Markmiðið er ekki hægt að negla niður á ákveðinn tíma og fórna öllu fyrir það. Sá sem vill hafa NÚ-ið sem viðmiðun alls, hefur lítið fram að færa. Fjölskyldan verður alltaf að vera inni í myndinni. Fyrsta samband hverrar fjölskyldu er foreldrasambandið, en í nútímanum virðist systkinasamfélagið ráða í sí- vaxandi mæli. Enginn virðist vilja axla þá ábyrgð að vera eldri fyrir- mynd. Þegar foreldrar vilja koma fram sem systkini barna sinna, og láta raun- veruleg uppeldismarkmið víkja fyrir afþreyingu - er ábyrgðin úti, ábyrðar- leysið inni. Þá má spyrja, hvar foreldr- arnir séu? Tímaskyn skortir, þegar framkoma eldra fólks gagnvart þeim yngri fer að verða barnaleg. Þegar kynslóðabilið hverfur, sjáum við kannski til fullnustu hversu mikilvægt það er, því að þegar landamæri hverfa, er hætt við að virðingin hverfi líka. Séra Bragi Skúlason ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur. 27

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.