Listin að lifa - 01.12.1998, Qupperneq 31

Listin að lifa - 01.12.1998, Qupperneq 31
Á fjölskyldudegi í Kópavogi þar sem ungir og aldnir skemmtu sér saman. öllu gömlu fólki inn á sama farveg, búa til ákveðin hverfí fyrir eldri borg- ara. Ég hélt að stefna stjómvalda væri að allir byggju saman, fatlaðir og ó- fatlaðir, ungir og gamlir, en ekki á af- mörkuðum básum í þjóðfélaginu. Sama má segja um of mikla for- ræðishyggju eða ofvemdun, sem gerir eldra fólki ekki kleift að lifa með reisn. Starfsfólk í öldrunarþjónustu á að gæta þess að vinna með skjólstæð- ingum sínum, en ekki álíta sig geta hugsað fyrir þá. Það eru forréttindi að fá að vinna með eldri kynslóðinni, sem býr yfir lífsreynslu sem við get- um öll lært af. Nú eru margir á eftirlaunaaldri enn- þá með mikla starfsorku, og búa yfir dýrmætri reynslu og þekkingu sem þarf að varðveita. Það væri verðugt verkefni fyrir Háskóla íslands að hefj- ast handa á Ári aldraðra að safna sam- an slíkum fróðleik." - Virðir Alþingi lífsreynslu heillar niannsævi? „Alls ekki. Stjórnmálaflokkar, eins og aðrir í samfélaginu, eru ofurseldir lögmáli markaðarins. Við lifum í æskudýrkunarsamfélagi, þar sem þyk- ir eftirsóknarvert að vera ungur, og flokkarnir kappkosta að vera með meðalaldur sem lægstan í efstu sætum listanna. Með öðrum orðum - að láta unga fólkið, sem býr yfír minnstri lífs- reynslu, komast til áhrifa - í stað þess að hafa Alþingi vinnustað fólks á öll- um aldri. Lífsreynsla heillar manns- ævi er þannig einskis metin. Unga stjórnmálamenn vantar mikið í lífsreynslusjóðinn. Þeir hafa ekki prófað, hvernig það er að eldast, ekki upplifað að eignast tengdaböm, að vera afí og amma, eða sinna hlutverki elstu kynslóðarinnar í flóknu fjöl- skyldumunstri nútímans. Hvemig á þetta unga fólk að geta tekið ábyrgar ákvarðanir um fjölskyldumál frá A til Ö? Ungir stjórnendur ættu a.m.k. að vera með eldri ráðgjafa sér við hlið.“ - Ertu að segja með þessu, að búið sé að markaðssetja æskudýrkun? „Já, æskudýrkun er löngu orðin markaðsvara. „Að vera ungur er eftir- sóknarvert“ segir markaðurinn - og dælir stöðugt inn á okkur skilaboðum um andlitslyftingar og hrukkukrem. Auðvitað er gaman að vera ungur, en öldrun er eðlilegt ferli hverrar lífveru sem fæðist. En í stað þess að þjóðfé- lagið veiti eldra fólki siðferðilegan og félagslegan stuðning, er almenna kraf- an sú. að við séum ung miklu lengur en eðlilegt er. Viðhorfin til þess að eldast þurfa að breytast. Öldrunarferlið og ellina þarf að skilgreina út frá réttum forsendum, ekki bara út frá því að vera ekki ungur lengur. - Hvemig lítur þú á ellina, Sigur- björg? „Ellin er ögrandi, spennandi at- hafnatímabil. Þá ertu laus við strit í launavinnu - færð frelsi til að skapa, njóta og láta gott af þér leiða. Ég hlakka til ellinnar, eins og hvers dags í lífinu. Vonandi verð ég þá svo heilsugóð, að ég geti látið draumana rætast, sem hafa orðið að bíða sökum tímaleysis, eins og að ferðast, mála, sauma, lesa, skrifa og fleira. Við eigum að rækta líkama og sál, og undirbúa efri árin bæði fjár- hagslega og at- hafnalega. Mér finnst fólk of upptekið af því að safna veraldleg- um auði í ellinni, í stað þess að njóta þess að vera til, nýta það sem það á. Umfram allt er það eldri kynslóðin, sem getur og á að hafa tíma til að rækta fjölskylduböndin. Ég ítreka, að það er fjölskyldan sem skiptir mestu máli, þegar erftðleikar steðja að og við þurfum stuðning.“ - Undirbúningur fyrir ellina ætti að vera hverjum manni hugleikinn, í stað þess að kvíða henni, því að eins og vitur maður sagði: „Ef þú eldist ekki, þá deyrðu.“ Er þetta ekki eitt mark- miðið á Ári aldraðra? „I hópvinnu á vegum framkvæmda- nefndar fyrir Ár aldraðra, var lögð þung áhersla á að fólk undirbúi sig mun fyrr og markvissar fyrir eftir- launaárin. Eins er mikilvægt markmið fyrir hvern mann, að hann fái að taka virkan þátt í þjóðfélaginu eins lengi og heilsa og kraftar leyfa. Fyrst þegar allir þegnar þessa lands eru virkir og virtir - er hægt að tala um að við búum í þjóðfélagi fyrir fólk á öllum aldri, eins og Ár aldraðra stefnir á.“ 31

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.