Listin að lifa - 01.12.1998, Qupperneq 44

Listin að lifa - 01.12.1998, Qupperneq 44
Jólaáafir^ Margir eru í vandrœðum að kaupa og velja jólagjafir, en ekki þœr Guð- björg og Aðalbjörg, - sem útbúa þœr allar sjólfar. Og þetta eru engar smáar jólagjafir, heldur má telja margar eigulega œttargripi. Aðalbjörg og Guðbjörg sitja á námskeiðum í Gerðubergi, lœra útskurð, postulíns- málun, perlusaum, bókband, orkederingu og margt fleira. Þœr voru svo elskulegar að opna heimili sín fyrir Listin að lifa, svo að lesendur fengju að sjá þessar fallegu jólagjafir. „Má ekki bjóða þér kaffisopa," segir Aðalbjörg sem var búin að baka fína rjómatertu. Guðbjörg Guðbrandsdóttir var bónda- kona vestur í Dölum á yngri árum, að Saurum og Ási í Laxárdal. „í bú- skapnum hafði maður ekki tíma í fína handavinnu, en ég vann föt á fjöl- skylduna, lærði kjólasaum í einn vetur og saumaði allt og prjónaði á sjálfa mig og syni mína tvo. Nú getur maður gert þetta og finnst óskaplega gaman að því.“ Gaman er að sjá, hvað handbragðið er fallegt hjá Guðbjörgu, sem segist seinvirk í öllu dútli, vandar sig greini- lega vel. „Eg var fyrst aðallega í bók- bandi, batt inn allar bækumar mínar sem mér þótti afskaplega gaman að gera.“ Guðbjörg bendir á bókahillur með fallega innbundnum bókum. „Nú finnst mér mest gaman að mála á postulín. Við getum fengið myndir brenndar á, en ég teikna þær sjálf, fór á teikninámskeið sem hefur hjálpað mér, og það er meira gaman að vinna þetta frá grunni.“ Guðbjörg segist sitja með fíngerðu orkederinguna fyrir framan sjónvarp- ið. „Þetta er ekki erfitt, þegar maður er búinn að læra hnútinn,“ segir hún. „Maður lærir svo margt í félags- starfinu í Gerðubergi, til dæmis hafði ég aldrei snert á útskurði fyrr en þar. Ég gef börnunum mínum, tengda- börnum og barnabömum flest sem ég vinn. Gaman að gefa, þegar gjöfin veitir gleði. Þáð er mikil ánægja með svona jólagjafir hjá mínu fólki.” Guðbjörg vandar vel allt handbragð. Þarna sker hún út ostabakka. Aðalbjörg Bjarnadóttir er af Við- fjarðarætt, sem margir Austfirðingar þekkja. Viðfjörður er eyðifjörður inn af Norðfirði, en þar fæddist Aðal- björg. Stórt og myndarlegt hús, sem ættingjar hennar byggðu 1936 og Að- albjörg lék sér í sem stelpa, stendur enn í firðinum. „Á þriðja hundrað manns voru á ættarmóti í húsinu í sumar. Alveg dásamlegt að koma þangað aftur.“ Aðalbjörg hefur búið í Reykjavík í 50 ár, eða öll sín búskap- arár, og unnið við þrif hjá tollinum í 36 ár. Listfengu handbragði Aðalbjargar var viðbrugðið í Gerðubergi, þegar hún gerði útsaumaða hvíta blúndu- kápu utan um albúm sem hún gaf systurbarni sínu í brúðargjöf. Ungu hjónunum er annt um hvíta blúndu- albúmið sitt með brúðarmyndunum, og varðveita það sem hinn mesta dýr- gnp. Jólagjafirnar eru ekki síðri hjá Að- albjörgu. Utskorin veggklukka. Perlu- saumuð konfektskál, með tilheyrandi perlusaumi utan um kertin, og hand- bundin sálmabók. Askja fyrir jólapóst- inn, handmáluð jólasveinakanna og fleira sem er leyndarmál jólapakkans. „Ég útbý allar jólagjafír sjálf og nýt þess reglulega," segir hún. „Það er svo gefandi að sitja á þessum námskeið- 44

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.