Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.05.2015, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 15.05.2015, Blaðsíða 2
Malbikun hafin í Reykjavík Götur í Reykjavík hafa komið óvenju illan vetri, eins og raunar víðar, en nú er malbikun hafin, að því er fram kemur í tilkynningu borgarinnar. Í sumar verða 111 þúsund fermetrar af malbiki lagðir á rúma 16 kílómetra gatna í Reykjavík. Það er fyrir utan vinnu Vegagerðarinnar við stofnbrautir og malbiksviðgerðir. Byrjað var að fræsa á Neshaga, Hofsvallagötu og Nesvegi en á mánudag verður malbik lagt á þessar götur. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát við framkvæmdasvæði og virða hraðatakmarkanir og merkingar um hjáleiðir. Fjárhagsáætlun Reykjavíkur- borgar gerir ráð fyrir 690 milljónum í malbikun í ár. Það er 250 milljón króna hækkun frá síðasta ári. Norrænt skátastarf rætt í Hörpu Norrænt skátaþing var sett í Hörpu í gærkvöld, fimmtudag, og stendur það fram á sunnudag með þátttöku 150 fulltrúa skáta frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Óla- fur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, setti þingið með ávarpi um gildi skátastarfs og forvarna. Helstu mál þingins eru að ræða samstarfsvettvang skáta í þessum löndum og hvernig megi nýta betur sameiginlegu viðburði, mót og námskeið til að efla skáta- starfið um öll Norðurlönd. Íslenskir skátar hafa farið með formennsku í norrænu samstarfi skáta frá 2012 en Danir taka við keflinu á þessu þingi. Vestfirðingar í stórsókn Markaðsstofa Vestfjarða ásamt sveitar- félögunum á Vestfjörðum og ferðaþjó- nustuaðilum á svæðinu eru að fara af stað með stærsta markaðsátak sem sveitarfélögin hafa farið í, að því er fram kemur á vef Bæjarins besta á Ísafirði. Um er að ræða þriggja ára verkefni sem snýr að því að vekja athygli á Vestfjörðum sem áfangastað ferðamanna. Átakið er persónustýrt markaðsátak þar sem áhorfandinn getur sett saman sína draumaferð um Vestfirði. „Langar þig að slappa af í heitu pottunum í fjörunni á Drangsnesi, horfa fram af Látrabjargi eða heimsækja tónlistasafnið Melódíur minninganna? Nú getur þú prófað þetta allt saman og meira til,“ segir enn fre- mur. Verkefnið er unnið með framleið- slufyrirtækinu Tjarnargatan sem hefur eytt hálfu öðru ári í undirbúning og tökur um alla Vestfirði. Nýr Venus heim um hvítasunnu Venus NS, hið nýja uppsjávarveiðiskip HB Granda, lagði fyrr í vikunni af stað í siglinguna heim til Íslands frá Tyrklandi þar sem skipið var smíðað. Sigling skipsins gengur vel, að því er fram kemur á vef Skessuhorns, en það heldur tæplega 16 hnúta hraða. Skipstjóri á Venusi er Guðlaugur Jónsson sem til þessa hefur verið með Ingunni AK. Áætlað er að heimsiglingin taki 12 daga og verður haldið til Vopna­ fjarðar. Þangað ætti skipið að ná um hvítasunnuna. BARA KLASSÍK. STUNDUM VILL MAÐUR ÞÁ ER TÍMI FYRIR SÍGILT SÚKKULAÐI. TÍMI FYRIR  Bílastyrkur Ósáttur við sjúkratryggingar íslands Eins og að lifa í fangelsi Jóhann Bragason hefur verið lungnasjúklingur til fjölda ára. Hann er fastur við súrefniskút allan sólarhringinn og kemst ekki 200 metra án þess að fá köfnunartilfinningu. Hann hefur sótt sex sinnum um bílastyrk hjá Sjúkratrygg- ingum Íslands en fær alltaf synjun þrátt fyrir að komast ekki úr húsi án þess að vera á bíl. Hann segir framkomu Sjúkratrygginga Íslands ómanneskjulega. F yrir mig að vera bíllaus er eins og að lifa í fangelsi. Ég kemst ekkert án bíls, ég er límdur inni og algjörlega upp á aðra kominn,“ segir Jóhann Bragason sem hefur sótt um bílastyrk sex sinnum en alltaf fengið synjun. Jó- hann hefur verið öryrki frá árinu 2009 vegna lungnasjúkdóms. Hann fékk ný lungu árið 2011 en síðast- liðinn vetur byrjaði líkami hans að hafna lungunum. Jóhann hefur sótt sex sinnum um bílastyrk upp á 1.200.000 krónur en alltaf fengið synjun á þeim forsendum að það þurfi að líða 5 ár á milli styrkja. „Inntakið í því að mér er neitað um styrk er að ég fékk 400.000 króna styrk til bílakaupa fyrir tæp- um fimm árum. En svo kom upp sú staða að ég gat ekki borgað af bíla- lánunum þar sem ég er öryrki og hef þar að auki fengið krabbamein í millitíðinni. Ég lagði því þann bíl inn stuttu síðar og keypti mér lítinn bíl á 100.000 kall. Þegar hann varð ónýtur sótti ég um 1,200.000 styrk til bílakaupa því í löggjöfinni segir að það sé hægt að veita ákveðnum aðilum, sem nauðsynlega þurfi bíl, undanþágu á þessari 5 ára reglu. Til að falla undir undanþágu þarft þú að sýna fram á að göngugeta sé skert við 400 metra, að vera fjölfatlaður, í hjólastól, með hækju eða göngu- grind. Langt gengnir lungnasjúk- lingar eiga líka að falla undir undan- þágu.“ Í skriflegu svari frá Trygginga- stofnun við fyrirspurn Fréttatím- ans um sífelldar synjanir segir að styrkir séu veittir á fimm ára fresti og að ekki sé hægt að víkja frá þeirri reglu nema bifreiðin eyði- leggst á tímabilinu eða vegna and- láts styrkþega. Þar að auki er bent á að „ef sjúkdómsástand hins hreyfi- hamlaða hefur versnað er mögulegt að beita sérákvæði í 6. mgr. 4. gr. rgl. um að fá mismun uppbótar og styrks en um það þarf að sækja sér- staklega og leggja fram læknisvott- orð því til sönnunar.“ Jóhann bendir á að bifreið hans hafi bæði eyðilagst á tímabilinu og að hann hafi lagt fram fjöldann all- an af vottorðum því til sönnunar að ástand hans hafi hríðversnað á tíma- bilinu. Hann taki ekki skref án þess að vera með súrefniskút og gangi ekki lengra en 200 metra án þess að fá köfnunartilfinningu og kom- ist því ekkert án þess að vera með bíl. „Samt fæ ég endalausa synjun, á engum forsendum,“ segir Jóhannes og réttir blaðamanni síðasta bréfið frá Tryggingastofnun þess efnis að honum sé synjað um styrk þar sem umsóknin teljist „ótímabær“ og „að ekki verði tekin afstaða til annara skilyrða“. „Sem betur fer á ég yndislega fjöl- skyldu sem hjálpar mér en maður nennir ekki alltaf að vera að biðja um hjálp,“ segir Jóhannes. Hann segir erfitt að lifa án bíls en þó sé jafnvel erfiðara að eiga við Sjúkra- tryggingar. Allt þetta ferli hafi tekið verulega á hann andlega. „Kannski er kerfið svona erfitt því til er fólk sem vill svindla á því en það gefur Sjúkratryggingum samt ekki rétt til á að gefa sér að ég sé svikari og koma svo fram við mig sem slíkan. Ég vil taka það skýrt fram að allir sem vinna á Tryggingastofnun eru yndislegt fólk en viðmótið sem maður fær hjá Sjúkratryggingum Íslands er bara ekki manneskjulegt. Samkvæmt stjórnarskránni eiga allir rétt á því að lifa með reisn í sínu samfélagi, en það sem öryrkjar þurfa að ganga í gegnum til að fá það sem þeim ber er bara ekki manneskjulegt.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Jóhann Bragason hefur verið öryrki frá árinu 2009. Hann er bundinn við súrefniskút allan sólarhringinn og kemst ekki ferða sinna án þess að verða móður og gangi hann lengra en 200 metra fær hann köfnunartilfinn- ingu. Hann kemst ekki ferða sinna nema á bíl en samt sem áður er honum synjað um bílastyrk. Mynd Hari Bein og óbein áhrif af miklum launakröfum og vaxandi spennu í yfirstandandi kjaraviðræðum virðast ein helsta ástæða þess að peningastefnunefnd Seðlabankans boðar nú hækkun stýrivaxta strax í næsta mánuði. Líklegt er að frek- ari hækkun vaxta fylgi í kjölfarið á komandi fjórðungum þar sem verð- bólguhorfur hafa versnað og útlit er fyrir meiri spennu í hagkerfinu en áður, að mati Greiningar Ís- landsbanka. Peningastefnunefnd Seðlabank- ans ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum við vaxtaákvörðun í vikunni. „Stóru fréttirnar í yfirlýs- ingu nefndarinnar nú eru hins veg- ar þær að framvirk leiðsögn henn- ar breytist umtalsvert, og boðar nefndin nú vaxtahækkun á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum sem verður 10. júní,“ segir Greiningin og bætir við: „Í yfirlýsingu pen- ingastefnunefndarinnar í mars var hins vegar gefið í skyn að vextir gætu jöfnum höndum lækkað eða hækkað eftir því hvernig fram- vinda verðbólgu og kjarasamninga yrði. Sagði nefndin þá að áfram- haldandi verðbólga undir markmiði og hóflegar launahækkanir í kom- andi kjarasamningum gætu skap- að forsendur fyrir frekari lækkun vaxta. Miklar launahækkanir og sterkur vöxtur eftirspurnar gætu grafið undan nýfengnum verðstöð- ugleika og valdið því að hækka yrði vexti á ný. Segir í yfirlýsingunni nú að þróun kjaraviðræðna að undan- förnu ásamt hækkun verðbólgu- væntinga og vísbendingum um öflugan vöxt eftirspurnar bendi til þess að síðarnefndu aðstæðurnar séu nú að skapast og því líklegt að hækka þurfi vexti þegar á næsta fundi nefndarinnar í júní. Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri sagði enn fremur að hækk- un vaxta í júní gæti orðið meiri en minni ef niðurstaða samninga yrði miklar launahækkanir. Þá kom enn fremur fram á kynningarfundi bankans að þróun kjarasamninga gæti leitt til meiri verðbólgu. -jh  seðlaBankinn ÞrÓun kjarasamninga gæti leitt til meiri verðBÓlgu Launakröfurnar valda vaxtahækkun Már Guðmundsson seðlabankastjóri. 2 fréttir Helgin 15.­17. maí 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.