Fréttatíminn - 15.05.2015, Qupperneq 4
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Rigning um tíma um leið og skil faRa
noRðuR yfiR landið. stRekkingsvinduR.
HöfuðboRgaRsvæðið: Væta með köflum,
einkum framan af degi.
smávæta með köflum víðast, en Rigning
s-lands. léttsk. n-lands.
HöfuðboRgaRsvæðið: Skúraleiðingar og
fremur hægur Vindur.
Hvöss na-átt v-til og slydda á vestfjöRðum.
RofaR til na-lands.
HöfuðboRgaRsvæðið: að meStu þurrt,
en Skýjað.
nú er komið að vorgró-
andanum!
hlýtt verður í dag á landinu, en líka nokk-
uð hvasst samafara nokkuð djúpri lægð
við suðurströndina. jafnframt verður
einhver væta um mest allt land, einkum
þó S-til og ekki veitir af. þó heldur kólni
á sunnudag með na-átt,
einkum á Vestfjörðum ætla
ég að leyfa mér að spá því
að græni liturinn taki nú
yfir í umhverfinu okkar
og framrás gróðursins
verður ekki stöðvuð úr
þessu.
8
6 12
8
8
6
4 8
6
5
7
2 4
5
6
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Þ að er mat landlæknisembættisins að ástandið í heilbrigðiskerfinu sé komið út fyrir þau mörk að hægt
sé að tryggja öryggi sjúklinga. Þetta eru
niðurstaða úr mati á áhrifum verkfalls
BHM á heilbrigðisþjónustu hjá stofnun-
um víðsvegar um landið sem embættið
framkvæmdi og birti á vef sínum þann
11. maí síðastliðinn. Þar segir einnig að
áhrif verkfallsins séu langmest á Land-
spítalanum vegna umfangs og eðlis starf-
seminnar en það segi til sín í vaxandi
mæli á öðrum stofnunum. Páll Matthías-
son, forstjóri Landspítalans, hefur einnig
lýst yfir áhyggjum af ástandinu og sagt
það ógna öryggi sjúklinga.
Pressa á samninganefndum
Það er ljóst að fari hjúkrunarfræðingar
í ótímabundið verkfall þann 27. maí næst-
komandi mun ástandið verða grafal-
varlegt, því líkt og Ólafur G. Skúlason,
formaður Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga, bendir á þá eru hjúkrunar-
fræðingar stærsta stéttin í heilbrigðis-
kerfinu, hennar hryggjarstykki, og fari
þeir í verkfall verður ástandið mjög
slæmt. „Hjúkrunarfræðingar starfa
alltaf með öryggi skjólstæðinga sinna að
leiðarljósi dagsdaglega og það munum
við líka gera í verkfalli. Það eru þessir
öryggislistar sem þarf að manna og við
munum gera það. Komi í ljós að það sé
verið að setja fólk í hættu þá munum
við að sjálfsögðu skoða þær undanþágu-
beiðnir sem koma. En auðvitað setur
ástandið á spítölunum pressu á okkar
samninganefnd og á samninganefnd
ríkisins að reyna að ljúka málinu sem
allra fyrst.“
vilja að menntun og ábyrgð sé metin
til launa
Samninganefnd Félags hjúkrunarfræð-
inga fer núna yfir tilboð frá samninga-
nefnd ríkisins síðan á fundi þann 12.
maí en næsti fundur verður næstkom-
andi þriðjudag. Ólafur segir löngu vera
kominn tíma til kjarabóta og að hjúkr-
unarfræðingar séu orðnir langþreyttir.
„Þegar góðærið var þá var samt sparn-
aður í heilbrigðiskerfinu og því ekki
rétti tíminn til að lagfæra launin. Svo í
kreppunni tókum við á okkur tekjuskerð-
ingu og ofan á það kom svo sparnaður í
heilbrigðiskerfinu sem þýddi að það voru
færri hjúkrunarfræðingar að sinna fleiri
sjúklingum. Þannig að við hjúkrunar-
fræðingar erum orðin langþreyttir á því
að okkar menntun og ábyrgð sé ekki
metin til launa. Þegar ég skoða okkar
laun og miða við aðrar háskólamenntað-
ar opinberar stéttir, sem eru hefðbundn-
ar karlastéttir eins og viðskiptafræðing-
ar, hagfræðingar eða tæknifræðingar,
sem eru jafnvel með styttra nám en við,
þá munar samt 14-25% á dagvinnulaun-
unum. Það þýðir bara eitt í mínum huga;
þessar hefðbundnu kvennastéttir eru
einfaldlega lægra launaðar en karlastétt-
ir og við unum ekki við það árið 2015.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Svindlað í MS
níu nemendur í útskriftarárgangi
menntaskólans við Sund voru staðnir
að svindli á stúdentsprófi í þýsku. Fallist
þeir á tilboð skólastjóra mS munu
þeir fá að útskrifast en ekki við
hlið samnemenda sinna við
hátíðlega athöfn.
Bitin af rakkamítli
Sjö ára stúlka var bit in af
rakka mítli á fjöl skyldu-
ferðalagi í Banda-
ríkj un um. móðir
stúlk unn ar fann
pödd una í hár-
sverði henn ar og
á Barnaspítala
hringsins var
staðfest að um
rakkamítil væri að
ræða.
Þurfa ekki að
flytja
Starfsmenn
fiskistofu þurfa ekki
að flytja til Akureyrar
til að halda störfum
sínum. Sigurður ingi jóhannsson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
hefur hætt við að flytja Fiskistofu í heild
sinni til akureyrar. höfuðstöðvarnar
verða þó fluttar og Fiskistofustjórinn,
eyþór Björnsson, með.
Vann 79 milljónir í lottó
hepp inn lottó spil ari er
78.746.750 krónum rík ari eft ir
Vík ingalottó á miðvikudags-
kvöldið.
Hollywoodstjarna
í heimsókn
leikarinn Channing
tatum dvelst um
þessar mundir á Ís-
landi og hefur koma
hans vakið mikla
athygli. hann hefur
meðal annars látið
sjá sig á grillmark-
aðnum og víðar
í miðbænum en
tilgangur ferðarinnar
ku vera að skoða
jökla.
vikan sem var
kaupa sig
inn í jör
ingibjörg Stefanía
Pálmadóttir hefur
eignast hlut í tískuvöru-
merkinu og versluninni
jör við laugaveg.
ingibjörg kaupir sig inn
í félagi við eygló Björk
kjartansdóttur, sem
fyrir átti hlut í jör með
eiginmanni sínum, Birgi
þór Bieltvedt. morgun-
blaðið greinir frá þessu.
aðalsprautan á bakvið
jör er hönnuðurinn guð-
mundur jörundsson.
kjaradeilur verkFall hjúkrunarFræðinga 27. maí
Sætta sig ekki við
kvennastéttalaun
Ólafur g. Skúlason, formaður félags hjúkrunarfræðinga, segir kjarabót fyrir stéttina löngu
tímabæra. hjúkrunarfræðingar sætti sig ekki lengur við lægri laun hinna hefðbundnu
kvennastétta. karlastéttir hjá hinu opinbera fái 14-25% hærri laun og það sé ekki hægt að una
við það árið 2015. Landlæknir og forstjóri Landspítalans telja yfirstandandi verkfall BHM vera
komið út fyrir þau mörk að hægt sé að tryggja öryggi sjúklinga.
Ólafur g. Skúlason, for-
maður félags Íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
nái félag
hjúkrunar-
fræðinga og
samninga-
nefnd ríkisins
ekki að semja
munu hjúkr-
unarfræð-
ingar fara í
verkfall þann
27. maí næst-
komandi.
Ljósmynd/Hari
... við hjúkrunar-
fræðingar erum
orðin lang-
þreyttir á því að
okkar menntun
og ábyrgð sé
ekki metin til
launa.
4 fréttir helgin 15.-17. maí 2015