Fréttatíminn - 15.05.2015, Page 11
Rýmingarsala
Rýmum fyrir nýjum vörum. Allt að 50% afsláttur af eldri heimilistækjum.
Hér fyrir neðan má sjá nokkur sýnishorn af freistandi afmælistilboðum.
Freistandi afmælistilboð
Á morgun, frá kl. 11 til 16, höldum við upp á
tveggja ára afmæli okkar.
Afmælistilboð á fjölda heimilistækja frá Bosch og glæsilegri gjafavöru.
Öll tilboð gilda til 23. maí eða á meðan birgðir endast.
Rýmum til fyrir nýjum vörum. Eldri heimilistæki á frábærum afslætti.
Gerið góð kaup! Allt að 50% afsláttur.
Þeir sem skrá sig á póstlistann okkar í versluninni eða á heimasíðu okkar,
bosch.is, geta átt von á skemmtilegum vinningi.
Verið velkomin og gerið góð kaup!
Kæliskápur,
KGV 36UW20.
Afmælistilboð: 79.900 kr.
Fullt verð: 102.600 kr.
Örbylgjuofn,
HMT 75M421.
Afmælistilboð: 17.900 kr.
Fullt verð: 21.900 kr.
20% afsláttur af
Múmín-vörum.
20% afsláttur af
Babell-kökudiskum.
Expressó-kaffivél,
TCA 5309.
Afmælistilboð: 64.900 kr.
Fullt verð: 79.900 kr.
Þvottavél,
WAQ 24461SN.
Afmælistilboð: 89.900 kr.
Fullt verð: 122.400 kr.
Afmæli
Bosch-búðarinnar
2
ÁRA AFMÆ
LI
ið mjög svartsýn,” segir Heiða
Björg Hilmisdóttir, móðir sextán
ára drengs sem er búinn að vera
með MS-sjúkdóminn frá tíu ár
aldri. Heiða er ennfremur vara-
formaður MS-félagsins en það er
eitt þeirra félaga sem standa fyr-
ir undirskriftarsöfnun meðal ís-
lensku þjóðarinnar til að hvetja
aðalritara Sameinuðu þjóðanna,
Ban Ki-moon um að mæla fyrir
því að aðildarríkin bæti við nýju
þróunarmarkmiði sem snýst um
að efla rannsóknir á taugakerfinu.
Aukin þekking mikilvæg
MS -fólk er stærsti hópurinn
meðal þeirra sem eru með tauga-
sjúkdóma. „Algengast er að fólk
greinist með sjúkdóminn á milli
20 og 40 ára. Það er oftast gríðar-
legt áfall fyrir fólk að greinast með
sjúkdóminn því svo mikil óvissa
fylgir honum og engin von um
lækningu. Það eru vissulega til lyf
og meðferðir sem seinka þróun
sjúkdómsins og auðvelda fólki að
lifa með honum og margir geta átt
gott líf en engu að síður er óvissan
skerðing á lífsgæðum í sjálfu sér.
Fyrir fólk með MS mundi það því
breyta afskaplega miklu ef þekk-
ing á taugakerfinu mundi aukast
því það eykur líkur á að hægt sé að
finna lækningu við þessum sjúk-
dómi sem skerðir lífsgæði MS-
fólks stundum verulega,“ segir
Heiða.
Óskar eftir stuðningi sam-
félagsins
Frá því Hilmir sonur hennar
greindist hafa skipst á skin og
skúrir. „Hann varð það veikur að
hann fékk lyfið Tysabri þrátt fyrir
ungan aldur og það hjálpaði hon-
um mikið með að ná auknum styrk,
en einnig var mikill léttir að losna
við aukaverkanir sem fylgdu lyf-
inu sem hann var á áður og skertu
lífsgæði hans mikið. Hann var auk
þess að vera mis kraftlítill í líkam-
anum alltaf með smá flensu, hita
nefrennsli og annað sem fylgir því.
Núna getur hann hreyft sig meira
en áður og það gengur vel og hann
lítur mikið betur út en ennþá er
margt sem skerðir hans lífsgæði.
Helst er þar að nefna litla orku til
að gera hluti, úthaldið er skert og
mjög misjafnt eftir dögum. Stund-
um getur hann alveg ótrúlega mik-
ið og stundum bara sofið og oft er
erfitt fyrir fólk að skilja það, meira
Úr bréfinu til
Sameinuðu þjóðanna
Háttvirtur herra Ban Ki-moon.
Með þessu bréfi er íslenska þjóðin
ásamt félögum fólks með tauga-
sjúkdóma og mænuskaða á Íslandi
að svara ákalli þínu um ný þróunar-
markmið Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbæra þróun sem til stendur að
samþykkja í september næstkomandi.
Íslenska þjóðin þakkar þér afar vel
fyrir frumkvæði þitt að kalla eftir
tillögum þjóða og grasrótarinnar að
hugmyndum um ný þróunarmarkmið.
Það er von íslensku þjóðarinnar
að Sameinuðu þjóðirnar svari á
jákvæðan hátt beiðni hennar um að
bæta við nýju þróunarmarkmiði sem
snýr að auknum rannsóknum á tauga-
kerfi mannslíkamans og lækningu
á fjölda taugasjúkdóma og skaða í
taugakerfinu. Markmiðið er að finna
lækningu á öllum taugasjúkdómum og
sköðum í taugakerfinu. Meginástæða
þess hve erfiðlega gengur að finna
lækningu við til dæmis mænu- og
heilasköðum og taugasjúkdómum
er sú að vísindasamfélagið hefur
takmarkaðan skilning á virkni tauga-
kerfisins. Það er því verðugt verkefni
fyrir Ísland að beita áhrifum sínum
til vitundarvakningar og aðgerða á
þessu sviði.
– Bréfið má lesa í heild sinni á
vefnum Taugakerfid.is
Undirskriftarsöfnunin
Mænuskaðastofnun Íslands, SEM
samtök endurhæfðra mænuskadd-
aðra, MS-félagið, MND félag Íslands,
Lauf félag flogaveikra, Heilaheill,
Geðhjálp og Parkinsonfélagið óska
eftir stuðningi íslensku þjóðarinnar
við beiðni þeirra til aðalritara Sam-
einuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, um
að mæla fyrir því við fulltrúa aðildar-
ríkja Sameinuðu þjóðanna að þær
samþykki að bæta við nýju þróunar-
markmiði sem snýr að því að efla
rannsóknir á taugakerfinu og auka á
þann hátt skilning á starfsemi þess.
Til að sýna stuðning er hægt að
skrifa undir á vefnum Taugakerfid.
is þar sem einnig má nálgast frekari
upplýsingar.
að segja okkur foreldrana sem
erum að reyna að lesa í hvernig
hægt er að hjálpa honum sem best
að lifa sem eðlilegustu lífi,“ segir
Heiða.
„Það að rannsóknir á tauga-
kerfinu yrðu eitt af þróunarmark-
miðum Sameinuðu þjóðanna eyk-
ur líkurnar á því og það mundi
geta gjörbreytt lífi sonar míns
og margra annarra. Það eitt að
landsmenn taki höndum saman og
skori á Ban-Ki-moon mundi skipta
okkur öll í f jölskyldunni miklu
máli því það er góð tilfinning að
samfélaginu standi ekki á sama
um það sem Hilmir og þar með við
öll erum að kljást við,” segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
fréttaviðtal 11 Helgin 15.-17. maí 2015