Fréttatíminn - 15.05.2015, Side 18
Öskubusku-
ævintýri
frá Íslandi
Berglind Johansen vonast til að EGF húðdrop-
arnir, sem nú eru seldir á Íslandi undir vöru-
merkinu BioEffect, verði ein vinsælasta húðvaran
í heiminum. Hún hefur síðustu ár starfað þar sem
sölustjóri á alþjóðamarkaði og segir vinsældir
vörunnar vera ævintýri líkastar. Berglind var Ung-
frú Ísland aðeins 18 ára gömul og segir hún að sá
stimpill hafi loðað við sig í gegnum árin, jafnvel þó
hún sé í dag orðin 49 ára gömul farsæl viðskipta-
kona. Hún segir að dætur sínar hafi verið spurðar
hvort þær ætli ekki að taka þátt í fegurðarsam-
keppni „eins og mamma“ en hún leggur áherslu
á að þær þurfi enga titla til að vita hvað þær eru
frambærilegar.
B
erglind Johansen starfar sem sölustjóri hjá Sif
Cosmetics á alþjóðlegum markaði. Þrátt fyrir
að hún sé orðin 49 ára og farsæl viðskiptakona
muna margir enn eftir henni sem Ungfrú Ísland
árið 1984. Berglind á þrjár dætur og kveðst,
þrátt fyrir miklar annir í störfum sínum, fyrst og fremst vera
mamma. „Ég tek það hlutverk mjög alvarlega,“ segir hún.
Ofar á lista en Chanel no 5
Fimm ár eru síðan Sif Cosmetics, dótturfélag Orf Líftækni,
setti á markað EGF húðdropa sem hafa slegið í gegn á
Íslandi sem erlendis. Droparnir voru markaðssettir á er-
lendum mörkuðum undir vörumerkinu BioEffect. Nokkuð
hefur bæst við vörulínuna síðan og nú er komið að þeim
tímamótum að hætta sölu á EGF vörulínunni. „Þetta var í
grunninn til sama varan en öll áhersla á þróun og rann-
sóknir hefur verið á Bioeffect og þær vörur eru nú með
meiri virkni. Það hefur lengi staðið til að taka þetta skref
og nú loks getum við boðið upp á BioEffect á Íslandi,“ segir
hún.
Við Berglind ákváðum að hittast í höfuðstöðvum ORF
líftækni ehf að Víkurhvarfi 3. Í fyrstu finn ég ekki skrif-
stofurnar og þegar ég spyr til vegar annars staðar í húsinu
er ég spurð hvort ég sé að „fara í mælingu.“ Ég átta mig
ekki á því hvernig mælingu var verið að tala um fyrr en
aðrar konur koma á eftir mér sem eru sannarlega að fara
í mælingu. „Við erum stöðugt með rannsóknir í gangi og
hingað kemur fólk reglulega í mælingar. Vísindamennirnir
hér gera tvíblindar rannsóknir, sem þykja þær albestu, til
að vinna að þróun vörunnar okkar,“ segir hún.
Tæplega 40 manns starfa hjá ORF líftækni og Sif
Cosmetics; á rannsóknarstofunni, í gróðurhúsinu, við
pökkun, markaðssetningu og þjónustu við dreifingaraðila.
Á veggnum í mötuneytinu blasa við innrammaðar blaðsíður
úr öllum þekktustu tímaritum heims, meðal annars Vogue,
ELLE, Harper’s Bazaar og Marie Claire, þar sem farið er
fögrum orðum um BioEffect og á dögunum valdi franska
tískuritið Madame Figaro húðdropana frá fyrirtækinu 5.
bestu snyrtivöru í heimi en neðar á listanum eru meðal
annars ilmurinn Chanel no 5 og kavíarkrem frá La Prairie.
„Þetta er gríðarleg viðurkenning og sýnir að varan okkar
hefur sannarlega stimplað sig inn á snyrtivörumarkaðinn,“
segir Berglind. „Okkar markmið er að verða eitt stærsta
snyrtivörumerkið í bransanum.“
Ungfrú Ísland 18 ára
Aðeins hálft þriðja ár er síðan Berglind hóf störf hjá Sif
Cosmetics en þrátt fyrir að hafa ekki einsett sér það sem
ung kona hefur hún verið viðloðandi snyrtivörubransann
frá því hún var um tvítugt þegar hún starfaði hjá fjölskyldu-
fyrirtækinu Rolf Johansen & Co og sá þar um kynningu og
markaðssetningu hérlendis á snyrtivörumerkjum á borð
við Ĺ Oreal, Lancôme, Maybelline og Vichy. Þrátt fyrir að
vera orðin 49 ára gömul farsæl viðskiptakona eru margir
sem helst muna eftir Berglindi sem Ungfrú Ísland árið
1984.
„Ég er fædd og uppalin í Reykjavík, gekk í Langholts-
skóla en fór síðan í Verzlunarskóla Íslands. Þegar ég tók
þátt í fegurðarsamkeppninni hafði ég verið að æfa dans
hjá Sóleyju Jóhannsdóttur sem þá var nýkomin heim frá
Danmörku með ferska strauma í danslistinni. Við vorum
nokkur undir hennar stjórn sem voru með danssýningar
Framhald á næstu opnu
18 viðtal Helgin 15.-17. maí 2015