Fréttatíminn - 15.05.2015, Blaðsíða 26
Það stoppaði
ekki síminn
hjá mér og
allir voru að
athuga hvort
það væri ekki í
lagi með mig.
Ég leit út eins
og verulega
veikur maður.
Gaman að því.
V íkingur Kristjánsson hefur verið í höfuðborginni undanfarna daga að sinna
kynningarmálum fyrir kvikmynd-
ina Bakk sem frumsýnd var á
dögunum, en ætlar að bruna heim
á Suðureyri um leið og viðtalinu
lýkur. Hann býr þar ásamt unnustu
sinni, Kolbrúnu Elmu Schmidt, og
dóttur sem fæddist daginn eftir að
tökum á Bakk lauk, síðla síðasta
sumars. Með þeim býr einnig
dóttir Kolbrúnar.
„Maður er alltaf stressaður
þegar kemur að því að fá við-
brögð fólks á því sem maður er að
gera,“ segir Víkingur. „Við vissum
alveg að þetta væri skemmtilegt
og myndinni yrði ekki slátrað,
en þessi viðbrögð eru ofar okkar
væntingum,“ segir hann. „Þetta er
stærsta kvikmyndarullan mín til
þessa. Ég hef aldrei áður fengið að
vera á plakatinu,“ segir Víkingur.
„Ætli ég hefði fengið þetta hlut-
verk nema vegna þess að Gunni
er góður vinur minn,“ segir hann
og talar þar um Gunnar Hansson,
handritshöfund myndarinnar og
mótleikara sinn.
Getur verið meira heima
Víkingur flutti vestur á Suður-
eyri fyrir tveimur árum. Kynntist
stúlku þaðan og varð ástfanginn,
og ástin teymdi hann vestur á firði.
„Ég var orðinn þreyttur á þessu
harki hér í bænum,“ segir Víking-
ur. „Konan mín fékk sumarvinnu
fyrir vestan og við ákváðum að
prófa. Ég er Ísfirðingur og bjó þar
fram að 15 ára aldri, en hef eigin-
lega ekkert verið þar síðan,“ segir
hann. „Ég átti að vera í Bláskjá í
leikstjórn Vignis Valþórssonar um
veturinn í Borgarleikhúsinu en
sagði mig úr því verki og fór bara
að vinna í fiski á Suðureyri. Ég
Maður er
dæmdur úr
leik þegar
maður flytur
úr bænum
Kvikmyndin Bakk var frumsýnd í síðustu viku og hefur lofsam-
legum dómum um myndina rignt inn á undanförnum dögum.
Víkingur Kristjánsson, annar aðalleikara myndarinnar, segir
dómana koma sér og þeim sem að myndinni standa þægilega
á óvart. Þau vissu að myndin væri skemmtileg og fannst
gleðilegt hvað margir voru þeim sammála. Víkingur býr
vestur á fjörðum, á Suðureyri, og kann því vel.
tók lyftarapróf og fór bara í einhverja ævintýra-
mennsku, þangað til ég fór í Bakk sem var tekin
síðasta sumar. Einnig tók ég að mér lítið hlutverk
í kvikmyndinni Þrestir eftir Rúnar Rúnarsson“
segir Víkingur.
„Síðasta vetur hef ég bara tekið að mér alls-
kyns verkefni. Veislustjórn, og ýmiskonar leik-
stjórn fyrir vestan. Ég var að vísu búinn að taka
að mér hlutverk í Lísu í Undralandi hjá Leikfélagi
Akureyrar í vetur, en sagði mig úr því líka,“ segir
Víkingur. „Það er meira en að segja það að ferðast
reglulega frá Ísafirði til Akureyrar um miðjan vet-
ur,“ segir hann. „Sérstaklega meðan litla stúlkan
er svona lítil,“ en Víkingur eignaðist dóttur í lok
síðasta sumars. „Vignir Valþórsson var að leik-
stýra því líka svo hann er örugglega farinn að
taka þessu persónulega,“ segir Víkingur. „Það
sem gerði mér kleift að vera bara fyrir vestan í
rólegheitum var það að ég fékk mjög fín laun fyrir
sýningar á erlendri bílaauglýsingu sem ég lék í
fyrir fimm árum, og hefur verið í sýningu allar
götur síðan. Ég gat því sagt nei við Lísu í Undra-
landi og verið heima með konu og barni.“
Kannski ekki góður á sviði?
Á Suðureyri búa 300 manns og segir Víkingur að
listalíf sé ekki mikið, enda fáir sem búa þar. Suð-
ureyri er þó aðeins í 20 mínútna akstursfjarlægð
frá Ísafirði og segir Víkingur að hann vinni mikið
þar. „Maður er auðvitað litinn smá hornauga á
Suðureyri,“ segir hann og glottir. „Fólk var alveg
að fíla það að ég væri að vinna í fiski, maður var
ekki alveg vonlaus. Fólki finnst eitthvað spes við
það að maður sé að vinna í listinni,“ segir hann.
„Stundum er maður ekki að gera neitt, og það
þekkist ekki á Suðureyri. Ég ætla samt ekkert að
fegra það neitt. Stundum er maður bara eitthvað
að dúllast með dóttur sinni,“ segir hann. „Lista-
líf á Vestfjörðum er samt bara fínt, þó er nú meira
litið á það af flestum sem hobbí.“
Kolbrún Elma Schmidt
og Víkingur Kristjáns-
son með dóttur sína
sem fæddist daginn
eftir að tökum á Bakk
lauk. Ljósmyndir/Björg
Sveinbjörnsdóttir
Framhald á næstu opnu
26 viðtal Helgin 15.-17. maí 2015
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
Hágæða postulín
- með innblæstri frá náttúrunni
Verið velkomin
í verslun RV og
sjáið úrval af
glæsilegum
hágæða
borðbúnaði