Fréttatíminn - 15.05.2015, Qupperneq 28
„Við erum alltaf með það í bakhöndinni
að koma í bæinn. Það er meira atvinnu-
öryggi hjá mér í bænum og slíkt, en mig
langar bara að búa fyrir vestan og koma
svo bara suður í verkefni,“ segir hann.
„Við eigum fimm börn samtals og það er
meira en að segja það að rífa allt upp. Að-
almálið er það að fólk hér í bænum viti það
að það er ekkert mál fyrir mig að koma
suður í verkefni. Það er svolítið lenskan að
um leið og einhver leikari flytur út á land,
þá er hann dæmdur úr leik,“ segir Vík-
ingur. „Ég er ágætlega settur þarna. Leik-
húsin hafa aldrei verið neitt hrifin af mér,“
segir hann með glotti. „Ég er einn stofn-
enda Vesturports og hef troðið mér inn í
þær sýningar, en mér hefur aldrei verið
boðið hlutverk í leikhúsi. Kvikmyndaleik-
stjórar hafa þó oft samband, kannski er
ég bara vonlaus á sviði. Maður spyr sig,“
segir Víkingur. „Ég var líka skrifaður út
úr Rétti 3,“ segir hann glottandi. „Ég fæ
að vera dáinn í þeim þáttum.“
Saknar atsins
Víkingur segir að það sé svolítið síðan
hann var í leikhúsi og þurfti að mæta á
æfingatímabilinu og vera á kafi í verk-
efninu. Hann segist ekki sakna þess
beint, en hann saknar félagsskaparins
sem er í slíkum verkefnum. „Það koma
svona tímabil sem það er rólegt. Maður
saknar ekki athyglinnar, en maður saknar
bransans. Fólksins og atsins sem er í
gangi,“ segir hann. „Ég sakna ekki leik-
hússins beint, en það er mjög gaman að
vera í sýningu sem gengur vel. Við hjá
Vesturporti hittum oft naglann á höfuðið
með okkar sýningum og það hefur verið
gaman,“ segir Víkingur, en næsta haust
tekur hann þátt í uppfærslu Vesturports á
leikritinu Brim í Tékklandi.
Þú endar þá kannski sem trillusjómaður
á Vestfjörðum?
„Nei, það geri ég alveg örugglega ekki,“
segir Víkingur.
Það hefur ekkert hvarflað að þér að fara
að skrifa leikverk, eða bók?
„Ég hef oft pælt í því og ætlaði alltaf að
vera rithöfundur,“ segir Víkingur. „Svo
held ég að ég sé enginn maður í það. Ég
hef ekki þolinmæði í það. Ég er um-
kringdur fólki sem er alltaf að segja mér
að skrifa og það hefur blekkt mig svolít-
ið,“ segir hann. „Það gerist bara ekkert,“
segir Víkingur og hlær.
Blaðaviðtal breytti ímyndinni
Á Vestfjörðum er veturinn langur. Vík-
ingur segir að öll sú rómantík sem borgar-
búar hafi gagnvart landsbyggðinni sé
bundin við sumartímann. „Það eru fleiri
en einn og fleiri en tveir sem koma til mín
og segja, „djöfull er ég ánægður með þig.
Mig hefur alltaf dreymt um að flytja bara.“
Það er alveg sama hvert Reykvíkingar
fara á landsbyggðina, þeir verða ástfangn-
ir af staðnum og ætla að kaupa hús þar
og slíkt. Ég hef upplifað þetta sjálfur, en
síðan kemur vetur,“ segir Víkingur. „Rút-
ínan á veturna er alveg eins úti á landi.
Á Suðureyri fer sólin í október og kemur
ekki aftur fyrr en í mars. Það er ekki fyrir
alla að upplifa þetta. Brúnirnar þyngjast
og maður fer að bölva vælinu í Reykvík-
ingum, en að sama skapi mjög frábært að
upplifa árstíðarbreytingar mjög skýrt eins
og þær eiga sér stað þar,“ segir Víkingur.
„Eins og staðan er í dag þá ætlum við að
vera þarna.“
Víkingur segir fjölskyldu sína óttast um
geðheilsu hans í einangruninni um leið
og þau öfunda hann af því að búa í henni.
Hann segir að viðtal sem hann fór í hjá
DV um það leyti sem hann flutti vestur
hafi breytt miklu í ásýnd sinni út á við, en
blaðið málaði hann sem þunglyndissjúk-
ling sem flúði á Vestfirði. Víkingur segir
það vera fjarri sanni. „Það flaug blaða-
maður vestur til okkar með ljósmyndara
og ég var svo mikill bjáni að opna mig upp
á gátt með blaðamanninum. Ég tala um
að ég sé skítblankur eins og annar hver
Íslendingur, eins og gengur og gerist.
Tala um erfiðleika í mínu fyrra
sambandi og eitthvað fleira,“ segir
hann. „Svo fæ ég viðtalið sent og
það er alltof mikið verið að tala um
þetta, sem ég vildi ekki. Þegar ég
les svo viðtalið þá er mynd af mér á
bryggjunni á Suðureyri þar sem ég
er með einhvern svona svip,“ segir
hann og grettir sig. „Svo komu
fyrirsagnirnar „STÓRSKULDUG-
UR – TEKUR ÞUNGLYNDISLYF,“
segir Víkingur og hristir hausinn.
„Það stoppaði ekki síminn hjá mér
og allir voru að athuga hvort það
væri ekki í lagi með mig. Ég leit
út eins og verulega veikur maður.
Gaman að því,“ segir Víkingur.
Barnið með fæðinguna
planaða
Í kvikmyndinni Bakk leika þeir
Víkingur og Gunnar Hansson
vini sem fara bakkandi hringinn
í kringum landið. Víkingur segir
dúettinn vera mjög skemmtilegan
og dínamískan. „Mín týpa, Viðar,
er búinn að búa á Hellissandi með
mömmu sinni allt sitt líf og er
mjög félagslega heftur, en ekkert
skrýtinn samt,“ segir Víkingur.
„Hrikalega góður drengur. Ef þú
ert með kvikmynd þar sem þarf
að leika sympatískan mann, þá er
ég rétti maðurinn,“ segir hann og
hlær. „Fólk er alveg að kaupa það.
Það vorkennir mér. Ég fæ að gera
allt það fyndna í myndinni og svo
er Gunni svo hrikalega skemmti-
legur sem hinn vinurinn. Ferlið
var allt alveg hrikalega gaman.
Við byrjum í tökum í byrjun ágúst
og keyrum hringinn í bongóblíðu
allan tímann,“ segir Víkingur.
„Þetta var líka svolítið stress
þar sem konan mín var komin
á steypinn, alveg kasólétt. Hún
var sett þann 8. september og
ég átti að vera búinn þann 6.
Það var mikið hringt enda hún á
lokametrunum,“ segir Víkingur.
„Þegar við vorum á Austfjörð-
unum, þá hugsaði ég með mér.
Þetta má ekki gerast núna, ég er
eins langt í burtu og hægt er,“
segir hann. „Svo erum við komin
að Vík í Mýrdal, og ég er á mínum
síðasta tökudegi þá hringir Kol-
brún og segir að nú sé eitthvað að
fara að gerast. Senunum mínum
var hliðrað til svo ég mundi klára
og ég brunaði vestur. Ég var
kominn um hálf ellefu um kvöldið,
og um klukkan hálf fjögur um
nóttina vorum við komin upp á
spítala,“ segir hann. „Stelpan var
með þetta í fílófaxinu í bumbunni.
Þetta tókst allt saman vel, bæði
myndin og fæðingin,“ segir Vík-
ingur Kristjánsson leikari.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Fólk var alveg
að fíla það að
ég væri að
vinna í fiski,
maður var ekki
alveg vonlaus.
Ég sakna leikhússins ekki beint, en það er mjög gaman að vera í sýningu sem
gengur vel.
28 viðtal Helgin 15.-17. maí 2015
Tjarnarbíó
18 og19 maí . .
maí .
Hof Akureyri
22
Borgarleikhúsið
18 og19 maí . .
maí .
HofAkureyri
21
BORDERTHE
miðasala á www.midi.is