Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.05.2015, Page 42

Fréttatíminn - 15.05.2015, Page 42
42 heilsa Helgin 15.-17. maí 2015  Heilsa mikilvægt að ala ekki á matvendni barna Fái börn holla og fjölbreytta fæðu eiga þau ekki að þurfa að taka inn fjölvítamín. Hinsvegar þurfa börn á Íslandi að fá D-vítamín aukalega þar sem það finnst vart í fæðunni og þar sem hér er ekki nóg sólarsljós. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty Laufey Steingrímsdóttir nær- ingarfræðingur segir börn eiga að geta fengið öll vítamín og steinefni úr fæðunni, nema D-vítamín. Hún segir mikil- vægt að foreldrar ali ekki á matvendni, börn geti haft ánægju af því að borða allan mat, séu þau vanin á það. Á að gefa börnum vítamín? v ið þurfum alls ekkert að gefa börnum fjölvítamín, ekki nema við mjög sérstakar aðstæður. Ef barn fær góðan mat og borðar fjölbreytta fæðu á það alls ekkert að þurfa,“ segir Laufey Stein- grímsdóttir, prófessor í næringar- fræði við Matvæla- og næringar- fræðideild Háskóla Íslands. „Það er þó sterklega mælt með því að við gef- um D-vítamín aukalega og það hefur verið gert alla tíð, einfaldlega vegna þess að D-vítamín er í mjög fáum fæðutegundum. Við getum myndað það í húðinni ef við erum með sól en við búum þetta norðarlega svo við fáum það ekki í nægilegu magni með sólarsljósinu. Það er því mjög mikil- vægt fyrir bæði börn og fullorðna að fá þetta vítamín aukalega þrátt fyrir að maður borði holla fæðu.“ Laufey segir töku á lýsi bestu leiðina til að fá D-vítamín en geti börn ekki tekið lýsi beint sé hægt að gefa þeim lýsisbelgi, eða D- vítamíntöflur. Mikilvægast sé að pína ekkert ofan í börnin. Ekki nauðsynlegt að gefa járn „Járnskortur var sérstakt vandamál hér á Íslandi þegar mjólkurneyslan fór hér fram úr öllu hófi. Mjólk er afskap- lega holl en hér áður fyrr var hún allt of stór hluti af fæðunni, sérstak- lega hjá börnum. Börn eru vanalega sólgin í mjólk og það er þægilegt að gefa þeim mjólk og skyr og súr- mjólk en þá er svo lítið pláss fyrir annan mat og mjólkin inniheldur ekki járn í neinu teljandi magni. Járnskortur og blóðleysi var afleið- ing af því og það getur haft mjög al- varlegar afleiðingar. En upp úr 2002 hófst markviss vinna við að bæta þetta, t.d með stoðmjólkinni sem er járnbætt og almennri fræðslu, og nú hefur orðið algjör viðsnúningur svo það er ekki nauðsynlegt að gefa börnum járn aukalega ef þau fá fjöl- breytta fæðu úr öllum fæðuflokk- unum.“ Matvendni Foreldrar matvandra barna óttast margir hverjir að börnin fái ekki næringu úr fábreyttri fæðunni. Laufey segir matvendni oftast tengjast uppeldi, börnum finnist sá matur sem þau eru vanin við góð- ur. „Í fyrsta lagi á aldrei að dekstra börn til að borða mat sem þeim finnst ekki góður og við eigum aldrei að pína börn til neins, en það er samt gott að halda alltaf áfram að bjóða upp á matinn. Hinsvegar á ekki að láta undan öllum duttl- ungum, það verður að finna einhvern milliveg. En börn ættu að geta borðað allt sem foreldrar þeirra borða, þau eiga alls ekki að fá einhvers sérmat, hvorki heima né á veitingastöðum. Það eru oft sérstakir barnamatseðlar á veit- ingahúsum sem eru oftast mun nær- ingarsnauðari en það sem foreldr- arnir borða. Af hverju ættu þau að fá hamborgara og samlokur á meðan foreldrarnir fá steik eða fisk? Börn- um finnst vanalega sá matur bestur sem þau fá við sérstakar aðstæður, eins og í veislum eða á veitingastöð- um þess þá heldur er sniðugt að nota þau tækifæri til að kynna börn fyrir nýjum mat. Annað getur alið á mat- vendni.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Laufey Steingrímsdóttir. • Staðfest með rannsóknum sl. 14 ára - vinnur á einkennum tíðahvarfa kvenna. • Inniheldur staðlað tofu extract, ekki erfðabreytt (GMO frítt) • Náttúruleg lausn fyrir konur án hormóna. „Femarelle er algjört undraefni fyrir mig“ -Soffía Káradóttir Náttúruleg lausn við áhrifum tíðahvarfa • Staðfest með ra nsóknum sl. 14 ára - vinnur á einkennum tíðahvarfa kvenna. • Inniheldur staðlað tofu extract, kki erfðabreytt (GMO frítt) • Náttúruleg lausn fyrir konur án hormóna. „Femarell r algjört un r i fyrir ig“ -Soffía K r ttir Náttúruleg lausn við áhrifum tíðahvarfa

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.