Fréttatíminn - 15.05.2015, Page 44
44 heilsa Helgin 15.-17. maí 2015
Útivist Íris Marelsdóttir skrifaði bók uM gönguleiðir að fjallabaki
Í ris Marelsdóttir heillaðist af Fjallabaki þegar hún var barn að aldri og fór um Fjallabak á
gömlum Willys jeppa með foreldr-
um og systkinum. „Ég fékk að gista
í gamla torfhlaðna sæluhúsinu við
Landmannahelli (önnur hús voru
ekki til staðar) og svaf vært þrátt
fyrir umtalaðan draugagang. Gekk
skriðurnar Suður-Námum til Land-
mannalauga þar sem ekki var kom-
inn bílvegur og Jökulgilskvíslin var
aðeins á færi stórra fjallatrukka. Á
námsárunum var sumartími not-
aður við tjaldstæðavörslu í Þórs-
mörk og síðar var sumartíminn
notaður til landvörslu á Syðra-Fjalla-
baki. Svo lærði ég sjúkraþjálfun við
Háskóla Íslands og gönguhópur
sjúkraþjálfunardeildar Reykjalund-
ar hefur verið á göngu síðustu 15
árin. Hópurinn hefur
gengið þær leiðir sem
sagt er frá í bókinni,“
segir hún.
F j a l l a b a k e r
skemmtilegt nafn
yfir svæðið sem ligg-
ur norðan Suðurjökl-
anna og eru mörk
þessa svæðis ógreini-
leg. Þórsmörk er ekki
talin til þessa svæðis
en gönguleiðin vin-
sæla til Þórsmerkur
frá Landmannalaug-
um liggur í gegnum
þetta svæði. Hekla
er útvörður svæðis-
ins í vestri og virkj-
anasvæði Þjórsár í
norðri. Í austri er stundum miðað
við Eldgjá og Mýrdalsjökull er út-
vörður í suðri. Svæðið allt er fjöl-
breytt en um leið erfitt yfirferðar
á margan hátt. Brött fjöll, jöklar,
vatnsföll og hamrabelti. Torfajök-
ulsaskjan, megineldstöð, liggur í
hjarta þessa svæðis og ekið er inn
í Torfajökulsöskju þegar komið er
yfir Frostastaðaháls og beygt til
Landmannalauga.
Í bókinni Gönguleiðir að Fjalla-
baki er lýst 12 helgarferðum um
þetta svæði. Leiðirnar byrja á einum
stað, enda á öðrum, því er gert ráð
fyrir að bifreið fylgi göngumönnum
og náttstaður er í skálum ferðaþjón-
ustuaðila. Upplagt fyrir hópa. Fyrri
dagleiðin er lengri eða um 17-25 km
en seinni dagleið er frá 8-12 km.
Hægt er að tengja leiðirnar saman
og úr verður nokkurra daga ferð eða
nota leiðarlýsingar til dagsferða.
Gönguleiðin um Syðra-Fjallabak,
gamla þjóðleiðin sem farin hefur
verið frá landnámi, leiðir mann að
fortíðinni og sögu genginna kyn-
slóða. Gengið er af stað frá gamla
kofanum í Króki á bökkum Markar-
fljótsins sem er nokkuð tært á þess-
um slóðum þar sem jökulvatnið er
ekki komið í það. Afar þægilegur
skáli er á Hungurfit og þar er til-
valið að gista. Færanleg göngubrú
er sett á Markarfljótið og þarf að
kanna hvort brúin sé komin áður
en lagt er af stað. Þarna eru flúðir
og gaman að skoða farveginn. Síðan
er gengið eftir gamalli reiðleið nið-
ur með Markarfljóti, vaðið yfir Tor-
fakvísl á grunnu vaði og þá er Torfa-
hlaup fram undan, þröngt gljúfur í
farvegi Markarfljótsins.
Gengið er upp með glúfrinu,
stefnan sett á Stóru-Súlu og farið
um Klámbrekkur í Bratthálskrók
og Stígsver. Í Stígsveri er komið
að Kaldaklofskvísl
og henni er fylgt
áleiðis í Hvanngil og
að Hvanngilskróki.
Áfram er ánni fylgt
og leiðin vefur sig
utan um Hvanngils-
krók. Hér er komið
inn á stikaða leið og
fyrr en varir blasir
við Mælifellssandur,
Tangarfoss í Bláfjalla-
kvísl og fossinn Fald-
ur í Kaldaklofskvísl.
Hér er tilvalið að
setjast niður og njóta
útsýnisins. Á fram
heldur gangan eftir
stikaðri leið og fyrr
en varir er komið í
skála Ferðafélags Íslands í Hvann-
gili, búinn öllum þægindum.
Næsta dag er haldið áfram eftir
þessari gömlu þjóðleið og leiðin
liggur inn Hvanngilið eftir stikaðri
leið. Gengið er undir hlíðum Ófæru-
höfða og eftir tveggja kílómetra
göngu er komið að Gamla-bóli, sem
er lítið steinhlaðið hús frá 18. öld.
Gatan er greinileg áfram til austurs
og er þessi dagleið hluti af Strúts-
stíg, leið sem Ferðafélagið Útivist
hefur gengið í mörg ár og heldur
við góðum skálum fyrir göngu-
fólk. Farið er upp úr Hvanngili fyrir
sunnan Röðul og farið um gil á milli
Einstigsfjalls og Sléttafjalls. Í Ein-
stigsfjalli má finna gott kennileiti
en þar er hleðsla hlaðin af smala-
mönnum á síðustu öld. Ferðalok
eru við Slysaöldu eftir grunnt vað á
Kaldaklofskvísl. Þar er best að bif-
reið bíði göngumanna. Þegar þetta
er skrifað er bílaslóðin að Slysaöldu
ómerkt og ráð að leita frekari upp-
lýsinga hjá landvörðum.
Töfraheimur
að Fjallabaki
Fréttatíminn heldur áfram að hita upp fyrir útivistarsumarið.
Hér fáum við að glugga í nýútkomna bók Írisar Marelsdóttur um
gönguleiðir að Fjallabaki.
Ævaforn þjóðleið
KróKur – KlámbreKKur – Hvanngil –
KaldaKlof – SlySaalda
Besti göngutími: Júlí, ágúst, septem-
ber. Athugið að göngubrúin á Markar-
fljóti við Krók er tekin af á haustin og
sett aftur á þegar farið hefur verið
með fé á fjall. Athugið hvort brúin
hefur verið sett niður áður en lagt er
af stað í gönguna.
Upphaf og leiðarendi: Gangan hefst
á hlaðinu við gamla skálann í Króki
en þangað liggur seinfarin jeppaslóð
frá skálanum í Hungurfit. Þessi vegur
gengur undir nafninu Þverárbotna-
leið og liggur á milli fjallvegarins F210
um Syðra-Fjallabak og fjallvegarins
F261 upp Emstrurnar og inn á leiðina
um Syðra-Fjallabak. Leiðarendi er við
Slysaöldu en þangað er ómerktur og
stundum ógreinilegur vegslóði frá
fjallvegi F210 yfir Syðra-Fjallabak.
Vegalengd: Fyrri dagur 14,0 km, seinni
dagur 7,7 km, samtals 21,7 km.
Heildarhækkun: 450 m.
Gististaðir: Skáli ferðaþjónustuaðila í
Hungurfit á Þverárbotnaleið og skáli
Ferðafélags Íslands í Hvanngili á
Syðra-Fjallabaki.
Markverðir staðir: Farvegur Markar-
fljótsins og göngubrú yfir vatnsfallið,
Torfahlaup, Klámbrekkur, steinboginn
í farvegi Kaldaklofskvíslar, Tangar-
foss í Bláfjallakvísl, fossinn Faldur í
Kaldaklofskvísl, steinboginn í Hvann-
gili, Hvanngils hnausar, Gamla ból í
Hvanngili, Slysaalda.
Vöð á leiðinni: Torfakvísl, Brattháls-
kvísl, upptök Kaldaklofskvíslar. Hvergi
þarf að vaða dýpra en í hné.
Kort af svæðinu: Sérkort Landmanna-
laugar – Þórsmörk 1:100 000 (2014),
Mál og menning. Staðfræðikort 1912
IV 1:50 000 (1990), DMA/Landmæl-
ingar Íslands.
Frekari gagnaöflun: Árbók Ferða-
félags Íslands 1976 (Fjallabaksleið
syðri), Hrakningar og heiðavegir III.
Bindi 1953. Göngur og réttir, fyrsta
bindi 1983. Páll Ásgeir Ásgeirsson
(2010), Hálendishandbókin – ökuleiðir,
gönguleiðir og áfangastaðir á hálendi
Íslands.
Íris Marelsdóttir hefur skrifað bók um gönguleiðir að Fjallabaki. Hér skoðum við eina
gönguleið úr bókinni.
Nýherji / Borgartúni 37 / Kaupangi Akureyri
netverslun.is
FRÁBÆRT VERÐ Á HÁGÆÐA SJÓNVÖRPUM
LITIR
SEM
LIFNA
VIÐ
Örþunnt og flott háskerpu sjónvarp með 1920 x 1080 punkta upplausn.
Frábær myndgæði, Snjallsjónvarp með innbyggðu Wi-Fi.
Verð aðeins: 159.990 kr.
5 ÁRA
ÁBYRGÐ
48″ W7
3D gæði á frábæru verði. Full háskerpa með 1920 x 1080 punkta upplausn.
Snjallsjónvarp með innbyggðu Wi-Fi.
Tilboð: 236.591 kr. Verð áður: 269.990 kr.
5 ÁRA
ÁBYRGÐ
Ótrúlega nett háskerpu sjónvarp á frábæru verði. 1920 x 1080 punkta
upplausn og innbyggt Wi-Fi.
Tilboð: 99.990 kr. Verð áður: 114.990 kr.
Lítið og nett háskerpu sjónvarp á hagstæðu verði. Innbyggt Wi-Fi.
Verð aðeins: 79.990 kr.
55″ 3D
5 ÁRA
ÁBYRGÐ
40″ R5
5 ÁRA
ÁBYRGÐ
32″ R5