Fréttatíminn - 15.05.2015, Page 46
Helgin 15.-17. maí 201546 tíska
Fyrir töff týpur sem hjóla
Fyrsta tískusýningin sinnar tegundar á Íslandi – sýning á
klassískum reiðhjólafatnaði – fer fram á Kex hostel í næstu
viku. Þar verður sýndur fatnaður frá Reiðhjólaverzluninni
Berlin, Farmers Market, Leví s Store og Kormáki & Skildi,
auk virðulegra borgarhjóla. Eigandi Reiðhjólaverzlunarinn-
ar Berlin segir ástæðulaust að hjóla 5 kílómetra í vinnuna
klæddur eins og maður sé að taka þátt í Tour-de-France.
V ið stofnuðum Reiðhjóla-verzlunina Berlin fyrir þremur árum og höfum
síðan reynt að kenna fólki að það
þarf ekki að vera í spandex til að
hjóla innanbæjar,“ segir Alexander
Schepsky, eigandi Reiðhjólaverzl-
unarinnar Berlin. Hann stendur
fyrir tískusýningunni „Reykjavík
Bike Fashion Show“ á Kex hostel í
næstu viku í samstarfi við Farmers
Market, Levi´s Store og Kormák &
Skjöld. „Við höfum verið að ræða
það síðustu ár að halda tískusýn-
ingu til að sýna fólki hvað það er
mikið af flottum fötum sem henta
vel í styttri ferðir innanbæjar. Það
er algjör óþarfi að klæða sig eins
og maður sé að fara að taka þátt í
Tour-de-France þegar ætlunin er
bara að hjóla 5-6 kílómetra í vinn-
una. Hjólin sem við seljum í Reið-
hjólaverzluninni Berlin eru borgar-
hjól og fólk hjólar ekki jafn hratt á
þeim og á keppnishjólunum. Þess
vegna svitnar fólk líka síður og
ástæðulaust annað en að vera bara
flottur í tauinu,“ segir Alexander.
Á tískusýningunni verða sýnd
borgarhjól og fatnaður sem er sér-
hannaður til hjólreiða frá Reið-
hjólaverzluninni Berlin, sérstök
reiðhjólalína frá Levi´s Store og svo
fallegur fatnaður frá Farmers Mar-
ket og Kormáki & Skildi sem hentar
einstaklega vel til hjólreiða.
Reiðhjólaverzlunin Berlin er ný-
flutt af Snorrabrautinni þar sem hún
var frá stofnun og á Geirsgötu við
gömlu höfnina þar sem mikil upp-
bygging hefur átt sér stað að und-
anförnu. Eigendur verslunarinnar
hafa undanfarin ár staðið fyrir svo-
nefndu Tweed Ride að breskri fyrir-
mynd þar sem hjólreiðafólk hefur
komið saman og hjólað um borgina
á virðulegum borgarhjólum í klass-
ískum fatnaði og dröktum í anda
breskra hefðarmanna og -kvenna.
Tískusýningin er því enn ein viðbót-
in við kynningu á því hvernig hægt
er að hjóla innanbæjar í fallegum
fatnaði sem hentar jafnt í vinnuna
eða á kaffihúsið og víst er að hægt
verður að finna fatnað á tískusýn-
ingunni sem er tilvalinn í næsta
Tweed Ride sem fer fram laugar-
daginn 30. maí. „Auðvitað skiptir
máli að vera sýnilegur en það er
hægt á fleiri vegu en að vera í neon-
gulu vesti. Okkur langar einnig að
vekja áhuga hjá íslenskum hönnuð-
um til að hanna fatnað sem hentar
vel til hjólreiða,“ segir Alexander.
Tískusýningin fer fram á Kex mið-
vikudaginn 20. maí, klukkan 20.30.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Levi´s Store er með sérstaka fatalínu
– Commuter – sem er sniðin að þörfum
hjólreiðafólks.
Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar
býður upp á virðulegan fatnað fyrir
virðulega karlmenn.
Hjá Farmers Market er hægt að finna
fallegar flíkur fyrir bæði kyn sem henta
jafn vel til hjólreiða og á kaffihúsið.
Í Reiðhjólaverzluninni Berlin fást borgarhjól, hjólahjálmar auk fatnaðar sem er sér-
hannaður fyrir hjólreiðafólk.
S. 551-2070 & 551-3366 • www.misty.is
Laugavegi 178 • OPIÐ: Mán. - fös. 10 - 18, Laugardaga 10 - 14
Nýr sumarliturÚrval af vönduðum herraskóm
Úr leðri, margar gerðir, margir litir. Til dæmis þessir.
Stærðir frá 41 - 47
Verð: 15.485.- og 17.885.-
Teg DECO - stærðir 30-38
D,DD,E,F,FF,G á kr. 9.980,-
buxur á kr. 4.650,-
Póstsendum hvert á land sem er
GALLABUXUR
STÆRÐIR 4254
VERÐ: 11.990 KR
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga k
l. 11–18
Opið laugardaga
kl. 11-16
Sumartoppar
Verð 8.900 kr.
Einn litur
Stærð 36 - 46
Verð 6.900 kr.
Einn litur
Stærð 36 - 46
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Við bjóðum gott
verð alla daga
Kjóll kr 6900
Tökum upp nýjar vörur daglega