Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.05.2015, Page 48

Fréttatíminn - 15.05.2015, Page 48
48 matur & vín Helgin 15.-17. maí 2015 www.odalsostar.is Havartí Krydd er náskyldur einum þekktasta osti Dana, úr smiðju hinnar frægu ostagerðarkonu, Hanne Nielsen. Ljúfur, mildur og smjörkenndur ostur með sætri papriku og votti af piparaldinum. Frábær partíostur, með nachos eða á steikarsamlokuna. HAVARTÍ KRYDD FJÖRUGUR Þ að eru stórir hlutir að gerast í bjórmenning-unni á Íslandi um þessar mundir,“ segir Freyr Rúnarsson, bjórstjóri á Skúla Craft Bar við Fógetagarðinn. Skúli var opnaður rétt fyrir síðustu jól og viðtökurnar hafa verið afar góðar að sögn Freys. Á staðnum er boðið upp á frábært úr- val af handverksbjór, bæði af krana og flöskum. Íslendingar eru að vakna „Viðtökurnar hafa í rauninni ekki komið mér á óvart. Ég hef fundið þennan áhuga í gegnum bloggið mitt síðustu tvö árin. Íslendingar eru að vakna og vilja fá góðan bjór og spá í það hvað þeir eru að drekka,“ segir Freyr sem hefur um árabil haldið úti Bjórbókinni á netinu. Freyr starfar sem læknir og er í sérnámi í heimilislækningum. Hann lærði úti í Danmörku og  Bjór Freyr rúnarsson er Bjórstjóri á skúla CraFt Bar Hefur grúskað í bjórfræðunum í 20 ár Freyr Rúnarsson leikur tveim- ur skjöldum í lífinu. Á daginn er hann læknir en á kvöldin hefur hann unun af því að smakka góðan bjór. Hann fær heldur betur útrás fyrir þetta áhugamál sitt í starfi sínu sem bjórstjóri á Skúla Craft bar. Á þriðjudagskvöld verður sann- kölluð veisla á Skúla þegar sjö bjórar frá hinu virta brugghúsi Founders verða í boði á krana. Og einn eftirsóttasti bjór heims í kaupbæti. fannst erfitt að koma heim því úr- valið af góðum bjór var mun betra þar. „Ég flutti heim 2010 og þá gat maður keypt eðalbjór nánast hvar sem er í Danmörku. Það var ekki svo hér en ástandið er allt annað í dag. Nú er orðið búandi hér, nokkuð sem læknar í sérnámi ættu að athuga,“ segir hann. Þessu breytta og betra ástandi þakkar Freyr fleiri metnaðarfull- um börum en einnig auknu úrvali í Vínbúðunum. Þar eigi heildversl- unin Járn & gler mestan heiður skilinn. Founders eitt af uppáhalds brugghúsunum Og nú er Freyr kominn bak við bar- borðið á Skúla og sér um að velja góða bjóra fyrir gesti. Tólf tegundir eru fáanlegar á krana hverju sinni og er úrvalið síbreytilegt en einnig er að hægt að velja úr 130 tegund- um á flösku. Og þar leynist ýmis- legt forvitnilegt, að sögn Freys. Freyr og félagar á Skúla hafa verið með skemmtilegar uppákom- ur að undanförnu. Eitt kvöldið var hægt að kynna sér hvernig maður parar saman bjór og osta og Freyr hefur boðið upp á svokallaða bjór- stund við barinn þar sem hann situr með litlum hópi og fer í gegnum bjórana á barnum og fræðir við- stadda. Eins hafa verið svokölluð „tap takeover“ sem eru afar vinsæl í bjórheiminum. Þá eru dælur stað- arins allar lagðar undir bjóra frá einu brugghúsi. Það var gert með norska brugghúsið Nøgne Ø fyrir skemmstu og á þriðjudagskvöldið er komið að hinu virta brugghúsi Founders. Boðar Freyr frekari heimsóknir á næstunni. „Ég hef verið að grúska í þessu í 20 ár og hef fengið leyfi frá konunni til að ferðast í þeim eina tilgangi að smakka bjór. Founders dúkk- aði upp fyrir nokkrum árum og ég hef fylgst með þeim á netinu síðan. Þeir fá gríðarlega góða dóma og eru eitt af mínum uppáhalds brugg- húsum. Ég er ánægður og stoltur að geta boðið upp á bjórana þeirra á Skúla,“ segir Freyr. Ótrúlegt að geta boðið upp á KBS Rúsínan í pylsuendanum fyrir bjór- áhugafólk verður svo að á þriðjudag verður einnig í boði takmarkað magn af afar umtöluðum bjór, KBS eða Kentucky Breakfast Stout. Járn & gler var með hann í sérpöntun á dögunum og var slegist um það litla magn sem í boði var. KBS er 11.2% Russian Imperial Stout, bruggaður með súkkulaði og úrvals espresso kaffibaunum og svo látinn þroskast á bourbon eikartunnum í 6 mánuði í bjórhellum Founders. Hann er bara seldur einu sinni á ári og er afar eftirsóttur í bjórheiminum. „Það er hálf ótrúlegt að maður skuli geta boði upp á KBS á Ís- landi,“ segir Freyr en KBS hefur líka verið fáanlegur á Microbar. „Persónulega hef ég ekki gaman af „hype“ bjórum og er yfirleitt neikvæði gaurinn. En þessi stendur bara alveg undir „hype“-inu.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Founders á skúla á Þriðjudagskvöld Freyr Rúnarsson er bjórstjóri á Skúla Craft bar. Hann hefur verið að grúska í bjórfræðum í tvo áratugi. Ljósmynd/Hari Founders Brewing er amerískt handverksbrugghús í Grand Rapids Michigan í Bandaríkjunum. Það voru tveir áhugasamir heimabrugg- arar, Mike Stevens og Dave Engbers, sem ákváðu að segja föstum störfum sínum lausum og snúa sér alfarið að bjórgerð fyrir hinn almennan markað. Þeir helltu sér út í svimandi há bankalán og stofnuðu svo brugg- húsið árið 1997. Í upphafi fóru þeir „öruggu“ leiðina og brugguðu bara hefðbundinn bjór, ekki vondan en ekkert sem menn tóku sérstaklega eftir, þeir voru á barmi gjaldþrots þegar þeir félagar ákváðu að venda kvæði sínu í kross og skapa bjór eins og þeir vildu í raun og veru sjálfir sjá bjórinn, eitthvað eins og þeir höfðu sjálfir alltaf bruggað heima í kjallaranum. Bjór með hortugheit, eitt- hvað sem var ekki fyrir fjöldann heldur meira fyrir alvöru bjóráhugafólk. Þetta gekk svona líka vel upp hjá þeim félögum. Vinsældir bjórsins jukust ár frá ári og nú er brugghúsið metið meðal bestu brugghúsa veraldar. Þessir bjórar verða í boði á Skúla. Freyr leiðir okkur í gegnum þá: All Day IPA (RB 95/100) – 4.5% session ipa. Full- kominn IPA, léttur og þægilegur en með aðeins humlabit og ögn ávexti. Virkilega vel smíðaður IPA, allt í góðu jafn- vægi. Það ráða allir við þennan. Centennial IPA (RB 99/100) – 7.2% IPA. Hér er á ferð einn flottasti IPA að margra mati með 99 stig af 100. Hann er nokkuð beiskur og með sítruskeim eins og IPA sæmir en þó með nægilegan maltkarakter til að skapa gott jafn- vægi með ristuðum keim og karamellu. Einn besti IPA að mati bjórstjóra Skúla. Porter (RB 100/100) – 6.5% Porter. Ef þú fílar porter þá er þessi algjört möst. Kolsvartur í glasi með mjúka fallega froðu. Í nefi er kaffi og karamella. Í munni er hann flókinn og skemmtilegur með rist- uðum nótum, espresso og dökkt súkkulaði í bland við dökka þurrkaða ávexti. Rubæus (RB 92/100) - 5.7% ávaxtabjór. Ofsalega ferskur og flottur með blómlegum humlum á móti djúsí hindberjum. Virkilega flottur sumarkarl. Dirty Bastard (RB 98/100) - 8.5% scotch ale. Geggjaður bjór, hiti, flækjur, þéttleiki og svo ristað korn, toffee og þurrkaðir dökkir ávextir í bragði. Pale Ale (RB 86/100) - 5.6% pale ale af bestu sort. Ekkert flókið, bara gott. Þessi er fyrir alla. Blushing Monk (RB .....) - 9.2% Imperial fruitbeer. Þessi er spennandi, þetta er einn af þessum sjaldgæfu hvítu hröfnum. Imperial ávaxtabjór með haug af hindberjum og svo auka- skammti af hamingju. Blushing tilheyrir svo kallaðri backstage series sem er sérlína hjá Founders, alls konar tilraunastarfsemi sem oftast kemur bara út einu sinni og svo aldrei aftur. Þennan verða menn bara að prófa. Einkunnir í sviga eru af Ratebeer.com

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.