Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.05.2015, Síða 62

Fréttatíminn - 15.05.2015, Síða 62
Áslaug Jónsdóttir rithöfundur sló í gegn á bókamessunni í Abu Dhabi. Forlagið HUDHUD keypti útgáfuréttinn að fimm bókum hennar. Ljósmynd/Hari  Bækur ArABískt forlAg keypti útgáfurétt Að fimm Bókum áslAugAr Jónsdóttur Íslensk skrímsli slógu í gegn í Abu Dhabi é g er afar sátt við móttökurnar þarna, gestrisni mikil, fólkið var bæði alúðlegt og yndis- legt. Þetta var mjög jákvætt, fyrir utan 40 stiga hitann,“ segir Áslaug Jónsdóttir rithöfundur sem er ný- komin heim af stórri bókamessu í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Ísland var heiðursgestur á bóka- messunni í Abu Dhabi í síðustu viku og gerði íslenska sendinefndin góða ferð þangað. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum keypti arabískt forlag útgáfurétt að bókum þriggja íslenskra höfunda, þeirra Auðar Jóns- dóttur, Viktors Arnars Ingólfssonar og Einars Más Guðmundssonar. Stóri sigurvegarinn var samt Áslaug en forlagið HUDHUD publishing keypti útgáfuréttinn að fimm bókum eftir hana og meðhöfunda hennar, þau Kalle Güettler og Rakel Helms- dal. Um er að ræða Skrímslabækurn- ar góðkunnu en alls hafa verið gefnar út átta bækur um þau á íslensku. „Mér skildist á fólki þarna að það væri þörf á gæðabókmenntum fyrir börn sem væru ekki bara kennslu- bækur. Í skrímslabókunum ganga aðalpersónunar í gegnum ýmsa erf- iðleika saman en ná alltaf að sættast. Ég held að krakkar eigi auðvelt með að samsama sig þessum skepnum,“ segir Áslaug þegar hún er spurð í vinsældir bókanna. „Á fyrsta degi messunar las ég þýðingar á ensku fyrir stóran hóp af skólabörnum og strax á eftir kom til mín stúlka og spurði hvort hún gæti keypt bók. Ég gat því miður ekki boðið bók til til sölu, en sagðist vona að bækurnar kæmu einhvern tíma út á arabísku. Nú ætlar það að rætast.“ Auk þess að koma á næstunni út á hinu arabíska málsvæði hafa Skrímslabækurnar komið út á 14 tungumálum, til að mynda frönsku og fjórum tungumálum á Spáni: kast- ilísku, galisísku, basknesku og kata- lónsku. „Kínverjarnir eru þó dugleg- astir. Þeir drífa sig af stað um leið og það kemur ný bók. Nýjasta bókin er einmitt á leið í prentun, þeir vilja alls ekki missa af bók úr seríunni.“ -hdm  eurovision mAríA ólAfs og hópurinn komin til vínAr Íslenski hópurinn sem stendur að framlagi okkar í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva er kominn til Vínarborgar. María Ólafsdóttir mun stíga á svið fimmtudagskvöldið 21. maí, og vonandi aftur tveim dögum síðar á úrslitakvöldinu. Það var mikil spenna í hópnum þegar hann lagði af stað frá RÚV og segir Felix Bergsson, kynnir okkar í keppninni, mikla jákvæðni vera í allri umræðu um íslenska lagið. Hann segir þó að blaðamenn í Vín vera á því að þrjú lög séu lang sigurstranglegust í keppninni í ár. o kkar maður í Vínarborg, Felix Bergsson, mætti til Austur-ríkis á mánudaginn fyrstur allra og byrjaði að fylgjast með þeim keppendum sem flytja sín lög á fyrra undanúrslitakvöldinu í Eurovision í næstu viku. Hann segir aðbúnaðinn einkar glæsilegan hjá Austurríkis- mönnum og spennuna gríðarlega. „Það er mjög vel séð um allt hér,“ segir Felix. „Í ár er 60 ára afmælishátíð keppn- innar og það er greinilegt að það verð- ur öllu tjaldað til,“ segir hann. „Það eru miklu fleiri blaðamenn og aðdá- endur mættir nú en oft áður á sama tíma, ætli það sé ekki vegna þess líka að fólk er ánægt með að fá keppnina aftur svona miðsvæðis í álfuna,“ segir Felix sem segir Eurovisionsvæðið í Vín vera mjög þétt og minni svolítið á þorp. „Það hefur verið þannig undan- farin tvö ár að það tók svolítinn tíma að komast að höllunum frá hótelun- um. Hér í Vín er þetta mjög þétt og auðvelt að komast á milli. Borgin iðar samt af Eurovisionstemningu og það er allt tipp topp, eins og við er að bú- ast af Austurríkismönnum.“ Blaðamenn sem skipta hundruðum í þessari keppni eru oft mjög sannspá- ir og í blaðamannahöllinni er alltaf veðbanki sem er sýnilegur öllum. Hann breytist á hverjum degi eftir hverja æfingu, en oft eru efstu sætin ansi rétt þegar kemur að aðalkeppn- inni. Felix segir þrjú lög alltaf vera í umræðunni í ár. „Það eru lögin frá Ástralíu, Svíþjóð og Ítalíu sem menn eru mest að veðja á,“ segir hann. „Þau eru alveg svakalega góð og ef einhver ætlar að veðja á sigurinn þá mæli ég með að setja pening á eitt af þessum,“ segir Felix. „Svo eru nokkur sem gætu komið á óvart og þá er talað um lögin frá Slóveníu, Eistlandi og Bret- landi í þeim efnum. Þegar Ísland ber á góma eru allir mjög jákvæðir. Eins eru allir mjög spenntir fyrir komu Friðriks Dórs með hópnum, en það er greinilegt að margir eru aðdáendur lagsins sem hann flutti hér heima,“ segir Felix. „Annars verður mjög spennandi að sjá þau á fyrstu æfingunni þeirra sem er á morgun [í gær],“ segir hann. „Mitt uppáhald í keppninni er þó norska lagið. Mér finnst það alveg svakalega flott og ég vona að það verði flott á sviðinu,“ segir Felix Bergsson, kynnir okkar í Eurovision. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Allir mjög spenntir fyrir íslenska laginu í Vínarborg Lögin sem hafa mest áhorf á YouTube í ár: Eurovision-sérfræðingar segja margir að hægt að sé að finna væntanlega sigurvegara í keppninni með því að skoða hvaða lög fá flest áhorf á Yo- utube. Miðað við það eru Ítalir langsigurstranglegastir. 1. Ítalía 24, 3 milljónir 2. Rússland 4,1 milljónir 3. Aserbaídsjan 3,4 milljónir 4. Albanía 2,9 milljónir 5. Finnland 1,9 milljónir 6. Bretland 1,8 milljónir 7. Armenía 1,5 milljónir. 8. Ástralía 1,3 milljónir 9. Eistland 1,2 milljónir 10. Pólland 1,2 milljónir - 15. Ísland 810 þúsund María Ólafs, Friðrik Dór og íslenski hópurinn í Eurovision lagði af stað til Vínarborgar í vikunni. Fyrsta æfing hópsins var í gær, fimmtudag. Ljósmynd/Hari Kópa Libre í Hamraborginni Tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindarson, Blaz Roca, mun standa fyrir tónlistar- og matarveislu í Hamraborg í Kópavogi í lok ágúst. Erpur, sem uppalinn er í Kópa- voginum, hefur lengi verið einn háværasti talsmaður Hamraborgarinnar sem hefur átt undir högg að sækja hjá menningarvitum og fagurkerum landsins lengi. Erpur segir staðsetninguna fullkomna fyrir þessa tegund hátíðar og mun ásamt bæjaryfirvöldum sjá um skipulagningu. Hátíðin hefur fengið nafnið Kópa Libre. Listamenn tilkynntir á ECF Tónlistarhátíðin Extreme Chill Festival tilkynnti í vikunni hvaða listamenn koma fram á hátíðinni í ár, en hún fer fram ár- lega í byrjun ágúst á Hellissandi. Dagskráin í ár er ekki af verri endanum en tónlistar- menn á borð við: Biosphere, Hilmar Örn Hilmarsson, Steindór Andersen, Mixmaster Morris, Studnitzky, Stereo Hypnosis, Dj Flugvél og Geimskip, Jónas Sen, Tonik En- semble, Futuregrapher, Ruxpin, Skurken, Jóhann Eiríksson og fleiri munu koma fram á hátíðinni. Ívar snýr aftur með tvær sýningar Ívar Örn Sverrisson leikari flutti til Noregs árið 2010 ásamt fjölskyldu sinni þar sem eiginkona hans hefur nú lokið námi í arkítektúr. Í Noregi hefur Ívar starfað með sjálfstæðum leikhópum svo sem Grusomhetensteater og Jo Strømgren Kompani, en báðir eru rótgrónir og þekktir hópar í Noregi og Evrópu. Ívar hefur einnig leikið í Ronju ræningjadóttur í Þjóðleik- húsinu í Osló og tekið að sér hlutverk sem dansari og leikari við norsku Óperuna. Nú ber svo vel í veiði að Jo Strømgren hópurinn er kominn hingað til lands og sýnir þrjú verk í maímánuði. Ívar leikur aðalhlutverkið í tveimur þeirra. Annars vegar er um að ræða verkið The Border sem sýnt verður í Tjarnarbíói 18. og 19. maí kl. 20 en hins vegar Eldhúsið sem sýnt verður í Tjarnarbíói 23. maí kl. 14. Sú sýning hentar sérstaklega vel fyrir börn á aldrinum 4-12 ára. Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu Tjarnarbíós. Ísland-Nepal styrktartónleikar Samtökin Ísland-Nepal sem starfrækja munaðarleysingjaheimili í Katmandú halda stórkostlega tónlistarkemmtun fyrir alla sem vilja sameinast um að leggja hönd á plóginn og styðja við bakið á verkefninu, laugardaginn 23. maí á Gauknum. Mikið af besta tónlistarfólki landsins mun koma fram á samkomu fólki til skemmtunar. Sumir hafa ekki komið fram árum saman og gera það nú af þessu sérstaka tilefni. Meðal þeirra sem koma fram eru Meistarar dauðans, Q4U, Dikta, Esja og Smutty Smiff, sem mun líka stjórna uppboði þar sem hann selur úr ljósmyndasafni sínu myndir af fremsta tónlistarfólki heims. Tónleik- arnir hefjast klukkan 17. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Flott föt, fyrir flottar konur 62 dægurmál Helgin 15.-17. maí 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.