Iðnaðarmál - 01.05.1960, Síða 3
'Gfiii
Nytsamar nýjungar .............. 74
Ný viðhorf, forustugrein...... 75
Bragi Hannesson hdl.: Fram-
tíðarhorfur .................. 76
Plastpípur til geislahitunar o.fl. 79
Plasthúðun smáhluta, þurr að-
ferð..........!.............. 80
Pökkun og umbúðir................ 81
Ný sjálfvirk vél til þvottar
á saltfiski.................. 84
Hljóðbylgjur til að lírna plast . 85
Nytsamar nýjungar ............ 92
Forsíðumynd: Gunnar Rúnar.
Endurprentun háð leyfi útgefanda.
Ritstjóm:
Guðm. H. Garðarsson,
Loftur Loftsson,
Sveinn Björnsson (ábyrgðarm.).
Utgefandi:
Iðnaðarmálastofnun Islands,
Iðnskólahúsinu,
Skólavörðutorgi, Reykjavík.
Pósthólf 160. Sími 19833—4.
Áskriftarverð kr. 100,00 árg.
PRENTSM IÐJAN HÓLAR HT
V._____________________________________y
lONAOARMAL
7. ÁRG. 1960 • 5. HEFTI
NÝ VIÐHORF
Á hinni fyrstu ráðstefnu íslenzkra verkfræðinga, sem haldin var í septem-
ber þ. á., voru gerðar nokkrar ályktanir, sem hver á sinn hátt vekja athygli á
veigamiklum rannsóknarverkefnum, sem leysa þarf og nátengd eru framtíðar-
þróun efnahagslegra framfara hér á landi. Þannig leggur ráðstefnan til, að
hafnar séu athuganir á nýtingu vinnuafls og fjármagns í íslenzku atvinnulífi,
þannig að til leiðbeiningar megi verða við rnótun fjárfestingarstefnu þjóðar-
búsins. Þá telur ráðstefnan sömuleiðis nauðsynlegt, að tæknimenntun í landinu
verði tekin til gagngerðrar endurskoðunar, þannig að hún verði aukin og
endurskipulögð í samræmi við kröfur tímans, og einnig, að látin verði fara
fram nákvæm athugun á tækni- og vísindamálum þjóðarinnar með það fyrir
augum að skapa heildarstefnu í þeim, þar sem lögð sé áherzla á, að auknum
hluta þjóðarteknanna sé varið til tækni- og vísindaþróunar.
I uppsiglingu er félagsskapur, sem mun hafa að aðahnarkmiði að stuðla að
bættri stjórnun fyrirtækja og stofnana landsmanna og greiða hvers konar
hagræðingarstarfsemi (rasjonaliseringu) götu. Á öðrum vettvangi er verið að
vinna að því, að koma á fót skipulegri verkstjórnarfræðslu. Þá er verið að
vinna að því að gera iðnnám hagnýtara en nú er. Stefnt er að því að koma á
fót meistaraskóla. í athugun er, hversu korna megi fyrir skipulegri fræðslu og
þjálfun ófaglærðs verkafólks. Vaknaður er til fulls áhugi á því, að taka upp
ákvæðisvinnufyrirkomulag, sem byggt sé á vinnulagsathugunum. Rætt er um,
að koma á fót samstarfsnefndum launþega og stjórnenda í fyrirtækjum, og svo
mætti áfram telja.
Bæði í ályktunum verkfræðingaráðstefnunnar og þeim margvíslegu ráð-
stöfunum, sem hér hafa verið nefndar og í undirbúningi eru á vegum ýmissa
aðila, kemur fram trúin á það, að með því að bæta mannlega þáttinn og
skapa honum betri skilyrði til að njóta sín í atvinnulífinu sé að vænta bættra
lífsskilyrða og afkomu.
Hér er tvímælalaust stefna inn á rétta braut, og staðfestir það reynslu
margra annarra þjóða, sem lengra eru komnar í efnahagsþróun. Einkunnar-
orðin aukin þekking í þágu atvinnulíjsins mundu sóma sér vel fyrir hina fram-
farasinnuðu íslenzku þjóð næsta áratuginn.
5. B.
IÐNAÐARMÁL
75